blaðið

Ulloq

blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 13

blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 13
blaðið MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 ERLENDAR FRÉTTIR I 13 Samkeppnisyfirvöld í Frakklandi: Ólöglegt samráð glæsihótela Sex af fínustu hótelum Parísar- borgar hafa verið sektuð fyrir ólög- legt samráð um verðlagningu og markaðssetningu. Rannsókn sam- keppnisyfirvalda sem stóð í fjögur ár leiddi í ljós að hótelin skiptust á nákvæmum upplýsingum um verð á herbergjum og komu sér saman um verðskrá og markaðsáætlanir. Sektirnar sem hótelunum er sam- tals gert að greiða fyrir athæfið nema 709.000 evrum (rúmum 53 milljónum íslenskra króna). Crillon- hótelið fær sekt upp á 248.000 évrur og er það hæsta einstaka sektin. Hót- elið sem stendur við Concorde-torg var byggt árið 1758 fyrir Loðvík XV. hefur í seinni tíð einkum verið vin- sælt meðal kvikmyndastjarna og tónlistarmanna á borð við Arnold Schwarzenegger og Madonnu. Hótel í sérflokki Hin hótelin sem um ræðir eru Bristol, Meurice, Piazza, Athenne, Ritz og George V. Þau eru öll meðal þeirra allra glæsilegustu í borginni og þar kostar nóttin að meðaltali um 700 evrur (rúmar 50.000 íslenskar krónur) en verð fyrir dýrustu sví- turnar nemur allt að 6.000 evrum (um 450.000 íslenskum krónum). Samkeppnisyfirvöld komust að því að þau hefðu misnotað stöðu sína en fyrir utan að vera öll 1 sérflokki eru þau nálægt hvert öðru miðsvæðis í borginni. ■ Nokkur af fínustu hótelum Parísar hafa verið sektuð fyrir ólöglegt samráð um verðlagn- ingu og markaðssetningu. Tony Blair, forsætlsráðherra Bretlands, segist ekki hafa fengið upplýsingar um áform Banda- ríkjamanna um að varpa sprengjum á höfuðstöðvar Al Jazeera-sjónvarpsstöðvarinnar. Áœtlanir Bandaríkjanna gegn Al Jazeera: Blair neitar vitneskju um málið Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, hefur neitað því að hafa fengið upplýsingar um áform Banda- ríkjamanna að varpa sprengjum á höfuðstöðvar Al-Jazeera-sjónvarps- stöðvarinnar. Dagblaðið The Daily Mirror sagði frá því í síðustu viku að Blair hefði fengið Bush ofan af því að gera loftárás á höfuðstöðvarnar í Doha í Qatar í apríl 2004. Bandarísk stjórnvöld hafa vísað fréttinni á bug og sagt að hún sé fáránleg en fram að þessu hefur breska forsætisráðu- neytið neitað að tjá sig um málið. Blair fékk skriflega fyrirspurn í breska þinginu á mánudag um hvaða upplýsingar honum hefðu bor- ist um það hvaða aðgerðir stjórnvöld í Bandaríkjunum hefðu í hyggju að grípa til gegn sjónvarpsstöðinni Al- Jazeera. Svar forsætisráðherrans, sem einnig var skriflegt, var stutt og skorinort: „Engar“. Talsmaður forsætisráðuneytisins tjáði sig ekki frekar um svar forsætisráðherrans. Ekkertgrín Kevin Maguire, aðstoðarritstjóri The Daily Mirror, segist ekki trúa því að hótunin um að sprengja höf- uðstöðvarnar hafi verið gerð í gríni eins og ónefndur embættismaður innan breska stjórnkerfisins orðaði það. Waddah Khanfar, framkvæmda- stjóri A1 Jazeera, kom til London í síðustu viku til að krefjast skýringa á minnisblaðinu sem The Daily Mirror byggði frétt sína á. Hann segist ekki vita hverju skuli trúa en bætti við að A1 Jazeera myndi ekki gefast upp fyrr en það hefði fengið svör. ■ brimborg VOLVO for life ÖU erum mð einstök, hvert og eitt okkar. Engitin á sinn líkan. Fyrir okkur ert þú miðja alheimsins. Þegarþú ert annars vegar er takmark okkar bara eitt: að uppjylla óskir þinar og þarfir á þann hátt að þú lítir á Brimborg sem öruggan stað til að vera á. Við erum meðþéraha leiðl Öruggur stadur til að vera á Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njarðarbraut 3, sími 422 7500 | www.volvo.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.