blaðið

Ulloq

blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 14

blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 14
blaðið= Útgáfufélag: Árogdagurehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. KJARNORKUVA FYRIR DYRUM Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, gaf í gær til kynna stuðn- ing sinn við frekari kjarnorkuvæðingu á Bretlandi, en þar í landi er verið að fara yfir orkumál í heild sinni. Þessar fregnir ættu ekki að koma lesendum Blaðsins algjörlega á óvart, því síðastliðið sumar var um það fjallað á þessum síðum, að Bretar hyggðust beisla kjarnorkuna í auknum mæli á næstu árum. Afstaða bresku ríkisstjórnarinnar í þessum efnum er skiljanleg. Mörg orkuver Bretlands - bæði kjarnorkuver og olíubrennsluver - eru komin svo til ára sinna að loka verður þeim á næstu árum. Talið er að þriðj- ungur þeirra verði úr leik fyrir 2020 og einhvern veginn verður fram- leiða orku í staðinn og gott betur, því orkuþorstinn eykst sífellt. Þar er Bretum, líkt og mörgum öðrum, þröngur stakkur sniðinn. Vand- ræði þeirra eru svo enn meiri vegna alþjóðlegra samninga og krafna um- hverfisverndarsinna um hömlur á „gróðurhúsalofttegundir" og afnám olíu- og kolabrennslu til orkuframleiðslu. Það skilur ekki marga kosti eftir. Mörgum finnast það öfugmæli, en kjarnorkuver menga minna en aðrar tegundir orkuvera og kalla ekki á náttúrufórnir líkt og vatnsaflsvirkj- anir, hvort sem er við Kárahnjúka eða Yangtze. En fari eitthvað úr- skeiðis í kjarnorkuveri getur það haft hreint skelfilegar afleiðingar, nær og fjær. Við þetta bætist að Bretar hafa engan veginn staðið sig sem skildi í þeim efnum á undanförnum árum og jafnframt sýnt furðulegt skeytingar- leysi um hagsmuni annarra í því samhengi. Þar eru okkur íslendingum kjarnorkuverin í Sellafield og Dounreay efst í huga. Vinnubrögð breskra stjórnvalda í málefnum þeirra hafa ekki verið til þess fallin að auka traust á kjarnorkuvinnslu á breskri grundu og síst í nágrenni við hafið. Eitt lítið slys í þessum stöðvum gæti eyðilagt íslenskt efnahagslíf á einni nóttu, jafnvel þó svo að skaðinn á lifríkinu væri smávægilegur. Islensk stjórnvöld verða að fylgjast grannt með þessari þróun á Bretlandi og leg- gja á það eindregna áherslu, að efling kjarnorkuiðnaðarins þar í landi verði sem lengst frá sjó. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. ABalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vb!@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: (slandspóstur. Allt til innpökkunar! Jólapappír í úrvali Eingöngu sala til fyrirtækja. 'SRSÍÍÍ' Opiíftákl. 06.00-16.00. Réttarhálsi 2-110 Rvk - Sími: 535-8500 - info@flora.is 14 I ÁLIT MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaöi6 fHK\)AW B^AR$T>bjTiR TtNfJST ÆðíSLEGT < o& sttLYiitxr og swt umr wik. \ VfriGH TiUNisr TKKi fc> T>AUS$kóLi ) \ v n VÁ$K6iJíSTibi J--- -&oLVAV BTiXÞl- ) . —Aí\LnjoTÍj»S Ad hominem Einu sinni bjargaði ég mér frá falli milli bekkja í menntaskóla með því að fá 9,5 í latínu. Ekki situr þó eftir í minni mínu snefill af þessum latínulærdómi. En þó að latína sem slík hafi ekki skipt mig máli síðan veturinn 1981-82 er latínufrasinn í fyrirsögninni mér afar hugstæður. Svokallaðar ad hominem rökfærslur snúast um það að vikið er frá um- ræðuefninu að persónu þess sem deilt er við. Dæmigerðar ad hominen setn- ingar eru t.d.: „Þetta segir þú nú bara af því að þú ert öfundsjúkur“. Eða: „Þú hefur nú alltaf verið að sleikja upp þetta hægri lið og stendur með því í þessu máli eins og öðru.“ Það skelfilega er að málflutn- ingur af þessu tagi er ekki einskorð- aður við þá lægst settu í umræðufló- runni heldur á hann sér hvarvetna stað. Jafnvel þeir stjórnmálamenn, sem maður hefur mest álit á, gera sig seka um ad hominem rök: „Hva, varst þú ekki einu sinni að vinna á Þjóðviljanum?" Netverjinn nafnlausi Nafnlausi „kommentarinn" á Verald- arvefnum er að verða nokkurs konar erkitýpa. Hann birtist i framlagi ótal manna, helst sem viðbrögð við skrifum annarra. Þessi manngerð virðist ekki vera illa menntuð því hún hefur ágæt tök á íslensku, en gerir sér alltaf far um að vera ein- staklega ómálefnaleg. Hér að neðan kemur klassískt dæmi um ad hominem rökfærslu hinna nafnlausu á Netinu. Um er að ræða viðbragð við grein Egils Helga- sonar þar sem hann veltir vöngum yfir því hvort samfélagsleg þörf sé á því að stemma stigu við gegndar- lausri auðsöfnun fárra aðila í vest- rænum samfélögum: „Egill verður enn fornari í skoð- unum, nú hefur hann ekki einungis áhyggjur af líflegri fjölmiðlun, brennivíni og vegagerð. Velgengni fólks er honum líka mikið áhyggju- efni þessa dagana. Dame Jóhanna Sigurðardóttir getur fagnað skoð- Ágúst Borgþór Sverrisson anabróður en ég skil vel að vini Eg- ils, Illuga, sé svolítið bumbult.“ Iskrandi sjálfsánægja hins glað- hlakkalega skrifara skín af þessum orðum, maður skynjar hvað honum finnst hann hafa komist vel að orði. En hvað segja þessi orð um hvort þörf sé á því að hemja hina ofurríku? Nákvæmlega ekki neitt. Þetta innlegg er merkingarlaust bull eins og ad hominem málflutningur yfirleitt. Ertu ekki hress? Þegar ég kemst á flug í rökræðum, æsi mig dálítið og hækka róminn, eru algeng viðbrögð þessi athuga- semd: „Voðalega ertu pirraður.“ Yfir- leitt hef ég verið í besta skapi þar til þessi orð eru sögð en verð fyrst pirr- aður þegar ég heyri þetta, reyndar stundum hreinlega brjálaður af vonsku yfir að fá svona svar við rök- studdum málflutningi. Spurningin: „Ertu ekki hress“ öðl- aðist mikið vægi á 8. áratugnum og allar götur síðan þá eru menn taldir dæma sig úr leik ef þeir eru ekki í góðu skapi. Rétt og slétt óánægja eða léttur pirringur þykir nægja til þess að ekki sé mark takandi á mönnum. Bara hinir hressu og glöðu eru marktækir. Þegar ég í ofanálag saka menn um ad hominem málflutning við þessar aðstæður er fokið í flest skjól. Hinn pirraði hefur nú auk geðvonsku gerst sekur um innistæðulausan menntahroka, slær um sig með lat- ínu, sem hann þar að auki kann ekk- ert í. Því þó að latínan hafi bjargað mér frá falli á sínum tíma má hún sín lítils gegn hinum hressu, sjálf- umglöðu og gjörsamlega rökvana málverjum. Höfundur er rithöfundur Klippt & skorið Ríkisútvarpið (RÚV) þykir hafa tekið stakkaskiptum undirstjórn hins nýja útvarpsstjóra, Páls Magnússonar. Innanbúðarmennsegja að þó hafi menn ekki séð helminginn ennþá, miklu meiri breytingar séu í pípunum, en vís- ast þurfa menn að b(ða nýrralagaum RÚVáður en það kemur allt fram. Hins vegar bárust af því fréttir í gær að fyrir jólin ætlaði RÚV að gefa út DVD-diska með ýmsu völdu efni ársins 2004, svo sem helstu fréttir ársins, valin innslög úr Brennidepli, íþróttaannál sem og nokkuratriði með Spaug- stofunni. Er svo fyrirhugað að gefa eldri annála út síðar. Finnst mörgum það í litlu samræmi við þá stefnu RÚV að halda sig við leistann sinn og gera það vel. Fyrir nú utan það að Sam- keppniseftirlitið kynni að vilja athuga umsvif stofnunarinnar á samkeppnismarkaði öðrum en þeim, sem RÚV eru leyfð að lögum. Idómsmálaráðuneytinu er nú unnið hörðum höndum að útgáfu nýrrar teg- undar vegabréfa. í þeim verða tölvulesan- leg gögn, sem á að hraða afgreiðslu, en um leið gera þau öruggari. Hinsvegarverða þau helm- ingi dýrari en hin gömlu og endast skemur. En svona eru framfarirnarvíst, helmingi hraðvirk- ari tölva þýðir yfirleitt að hún hrynji helmingi hraðar en áður. Hitt er svo annað mál, hvort ástæða ertil þess að treysta dómgreind dóms- málaráðuneytisins í þessu. Menn muna víst hvernig aðild íslands að Schengen-svæðinu var lofsungin og stórfengleg fjárútlát hennar vegna samþykkt með bros á vör, en enn er mönnum gert að taka með sér vegabréfin hvertsemfariðer. klipptogskorid@vbl.is Egill Helgason, sá rauðhærði silfur- refur, skrifaði á dögunum pistil á Netið um ritstjórn Styrmis Gunnarssonar á Morgunblaðinu. Sagði hann að Styrmir notaði gjarnan tæpitungu í ýmsum skrifum, þar sem hann vildi senda tilteknum mönnum skilaboð með skrifum slnum, en þau væru venjulegum lesendum jafnan óskiljanleg. Talar Egill um að engu sé líkara en að Styrmir reki leyniþjónustu til hliðar við sitt fasta starf. Styrmir svarar þessu svo fullum hálsi I Stak- steinum í gær, en fáum blandast hugur um að það sé ritstjórinn sjálfur, sem þar yddar. Minn- ist hann á að í kalda strfðinu hafi það síður en svo verið óþekkt að blaðamenn ynnu fyrir leyniþjónustur í hjáverkum. Raunar má segja að pistillinn i gær sé tæpast öllum lesendum skiljanlegur, en ekki fer á milli mála hverjum er verið að senda skilaboð. Ekki satt, Egill?

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.