blaðið - 30.11.2005, Side 25
blaðið MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
FERÐALÖG I 25
Vetrarferðir:
Á skíðum í Aspen
1 vetur er íslendingum í fyrsta skipti
boðið upp á pakkaferðir í Kletta-
fjöllin, skíðaparadís Bandaríkjanna.
Mikil ásókn hefur verið í ferðirnar
til þessa rómaða áfangastaðar.
„Við höfum fundið fyrir áhuga við-
skiptavina okkar á skíðaferðum til
Bandaríkjanna undanfarin ár svo
við ákváðum að slá til og bjóða upp
á eina ferð,“ segir Helgi Eysteinsson,
sölu- og markaðsstjóri Orvals-út-
sýnar. í lok febrúar fer flugvél í leigu-
flugi með farþega fyrirtækisins til
Eagle county flugvallar sem er mitt
á milli skíðasvæðanna Aspen og
Vail í Colorado í Bandaríkjunum.
,Þegar þetta var ákveðið létu viðtök-
urnar ekki á sér standa. Bókanir
voru strax mjög góðar og nú eru
bara örfá sæti laus í ferðina - ef ein-
hver.“ Helgi segir afskaplega líklegt
að fleiri ferðir verði farnar næsta
vetur í ljósi áhugans.
Þjónusta
Aðspurður um helsta muninn á
skíðasvæðunum í Vail og Aspen ann-
ars vegar og Evrópu hins vegar segir
Helgi: „Aspen og Vail eru vönduð-
ustu svæðin í Bandaríkjunum. Sam-
kvæmt því er þjónustustigið náttúru-
lega mjög hátt. Til dæmis er boðið
upp á leiðsögn í fjöllunum, nokkuð
sem ég hef aldrei séð í Evrópu, skíða-
geymslur eru á hverju fjalli. Eins má
nefna minni umferð í brekkunum
en tíðkast sums staðar í Evrópu.
Samt sem áður eiga Vail og Aspen
það sameiginlegt að yfir bæjunum
er evrópskur blær. Andrúmsloftið
er sambærilegt því sem við þekkjum
frá Evrópu. Til dæmis er nóg af
skemmtilegum áningarstöðum í
fjöllunum eins og í Ölpunum.“
Helgi segir muninn á Vail og As-
pen í sjálfu sér vera lítinn. „Aspen
er náttúrulega frægari bær en Vail
er með stærsta skíðasvæðið og fær
sömu einkunn. 1 sjálfu sér er eng-
inn áþreifanlegur munur á svæð-
unum tveimur. Helsti munurinn er
að í Vail er eitt samfellt skíðasvæði
meðan það er dreifðara í Aspen.‘
Þá er víst góð aðstaða fyrir sælkera,
sérstaklega þá sem vanir eru Evr-
ópu. „Þarna er gríðarlegt framboð
af veitingastöðum og börum. Ólíkt
því sem íslendingar eru vanir frá
skíðaferðum í útlöndum er kvöld-
verðurinn ekki borðaður á hótelinu
heldur fer fólk og velur á milli veit-
ingastaða. Það má segja að þarna
fari saman frábær skíðasvæði, hótel
og veitingastaðir.“
Þótt ferð Úrvals útsýnar til Aspen
og Vail sé að fyllast eru bjóða fleiri
ferðaskrifstofur upp á ferðir þangað.
Það getur verið erfitt að finna bestu
leiðinatil útlanda.
Ódýr fargjöld
á Netinu
Með auknum netaðgangi íslend-
inga hefur færst í vöxt að fólk
skipuleggi ferðir til útlanda
á hinum ýmsu heimasíðum.
Yfirleitt fer fólk á heimasíður
flugfélaga og reynir að finna
flug sem hentar. Þetta getur
þó verið þrautin þyngri þegar
huga þarf að samtengjandi
flugum og þess háttar. Til
dæmis dettur mörgum í hug
að fljúga í gegnum Lundúnir
og nýta sér framhaldsflug
með annað hvort Easyjet eða
RyanAir, tveimur ódýrustu
flugfélögunum. Þá þarf að finna
flug frá Islandi sem passar við
og þar fram eftir götunum.
A slíkum stundum er gott að
leita til tveggja heimasíðna.
www.lastminute.com
Eins og nafnið gefur til kynna
er lastminute ætlað þeim sem
eru á síðasta snúningi með
skipulagningu flugferða, sem
sagt kjörið íyrir íslendinga.
Síðan var upphaflega ætluð til
þess eins að finna flugferðir
en hefur aukið við sig síðari
ár og nú má einnig finna
hótelherbergi, bílaleigubíla
og fleira með litlum íyrirvara.
Leitarvélin er öflug og finnur
flug til og frá öllum flugvöllum
í Englandi og Skotlandi.
www.dohop.com
Hin íslenska dohop verður
tveggja ára í desember en
hugmyndin að henni kviknaði
eítir margra klukkustunda
leit að flugi milli Reykjavíkur
og Nice í Frakklandi. Dohop
leitar að flugferðum frá hvaða
flugvelli sem er til hvaða
flugvallar sem er. Leitað er
fyrst og fremst að lággjalda
flugfélögum svo Hklegt er að
þeir möguleikar sem gefnir eru
í leit séu þeir ódýrustu í boði.
Þótt auðvelt sé nú til dags að
bóka sér ferðir á Netinu er góð
regla að vera ekki á síðustu
stundu með pantanir þar sem
ódýrustu sætin fyllast fýrst.
Eins er sniðugt að athuga með
ferðir tveimur dögum íyrir
og eftir fyrirhugaða brott-
för þar sem miðaverð getur
breyst umtalsvert milli daga.
ARSTIÐIRNAR
EFTIR VIVALDI
BATTALÍA
EFTIR BIBER
í flutningi Hjörleifs Valssonar og íslensku kammersveitarinnar
| Þriðjudaginn 29.nóvember & miðvikudaginn 30.nóvember, 2005
í Grafarvogskirkju
kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar og á www.midi.is.
Einnig verða miðar seldir við innganginn bæði kvöldin
Miðaverð 2.000,- krónur.
Aðgangseyrir rennur óskiptur til BUGL.
LYSING