blaðið

Ulloq

blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 26

blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 26
26 I FYRIR JÓLIN MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaðift Rólegan œsing! Fimm ráð til að auðvelda aðfangadag Aðfangadagur. Klukkan er hálfsex, síðdegis. Lokkandi ilmur leggur úr eldhúsinu og Gunna systir spókar sig i stofunni, á nýjum skóm. Nú eru að koma jól. Nema hvað, pabbi er ekki enn kominn heim frá því að keyra út síðustu gjafirnar og á enn eftir að sturta sig og basla við flibb- ann um stund. Siggi á síðu buxunum hefur ekki hugmynd um hvar bless- aður flibbahnappurinn er og leitar ekki; spilar heldur tölvuleik inni í herberginu sínu og neitar að klæða sig í skyrtuna. Kisu litlu er eitthvað órótt, en það er mömmu líka, enda á hún enn eftir að gera Waldorf-sal- atið og klæða sig. Svo er amma á leiðinni og hún gefur lítið svigrúm fyrir klúður. Nú er helvítis köttur- inn búinn að hrinda sultukrukku á gólfið og það þarf að þrífa upp - svo lyktin er ekki lengur svo lokkandi... það er eitthvað að brenna þarna inni. Mamma læsir sig inni á klósetti og bryður róandi; jólahátíðin er í rúst. En þessu hefði auðveldlega verið hægt að afstýra með smávegis fyrir- hyggju. Blaðið kynnir til leiks fimm ráð til að auðvelda aðfangadag: Taktu hádegið í að und- irbúa kvöldmatinn Nú telst þetta varla byltingarkennt ráð, en furðu margir flaska þó á því að hefja undirbúning fyrir jóla- máltíðina tímanlega og súpa seyðið af fyrirhyggjuleysinu. Flestur jóla- matur er þess eðlis að leggja má grunninn að honum með nokkuð löngum fyrirvara án þess að það komi nokkuð niður á bragði eða áferð. Hamborgarahrygginn sívin- sæla má t.a.m. sjóða löngu áður en honum er stungið í ofninn og sama gildir um kartöflur sem ætlað er að brúna. Salöt eru auðvitað best fersk, en þó getur verið sniðugt að skera niður hráefnið í þau fyrr um daginn. Því ekki að taka hádegi aðfangadags í að tína til og forsníða það sem ætl- unin er að snæða eftir að klukkan slær sex? Leggðu snemma á jólaborðið Sé tími aflögu eftir að hráefni jóla- máltíðarinnar hefur verið gert klárt er ekki vitlaust að nýta hann til þess að leggja á veisluborð kvölds- ins. Að sjálfsögðu fer eftir efnum og aðstæðum hvernig og að hve miklu leyti þeim undirbúningi er háttað, en það kemur á óvart hve mikill tími sparast á að hafa t.d. tínt til á einn stað kerti, servíettur og borðbúnað sem ætlunin er að nota um kvöldið. Eftirrétturinn má bíða Hjá flestum er siður að kóróna jólamatinn með möndlugraut eða góðum heimagerðum ís. Eru slíkir eftirréttir nauðsynlegur enda- punktur á góðri máltíð, en mat- reiðslumeistarar heimilisins ættu þó að forðast að láta hann blinda sér sýn í stressinu sem einkennir oft síðustu mínútur fyrir máltíð. Ef eftirmaturinn er af einhverjum ástæðum ekki tilbúinn til fram- reiðslu þegar klukkan slær sex ætti það síst að vera áhyggjuefni; mat- reiðslumeistarinn og hjálparsveinar hans geta hæglega undirbúið fínan eftirrétt meðan annað heimilisfólk gengur frá eftir stóru máltíðina. Það er jafnvel óvitlaust að láta möndlu- grautinn bíða þar til eftir að jólagjaf- irnar hafa verið opnaðar; þá hefur fólk jafnað sig eftir saltsteikina og getur snúið sér aftur að átinu. Baðaðu þig (og aðra) snemma Margir láta jólabaðið bíða fram á síðustu stundu, vilja vera ferskir og hreinir í jólafötunum þegar ?eir taka á móti heilögum anda regar klukkan slær sex. Er það ágætur siður, hafi reynslan sýnt að síðböð sem þessi séu ekki til trafala. Hins vegar mætti að ósekju k 1 æ ð a flesta fjöl- skyldu- m e ð - 1 i m i upp í jóla- gall- a n n m u n fyrr, enda fæstir þeirra að sinna sérstaklega skít- sælum störfum yfir daginn og því ólíklegt að þeir safni á sig svita- angan og sósublettum milli hádeg- isverðar og jólamáltíðarinnar. Þetta er ekkert mál! Já, rólegan æsing. í alvörunni, hvað heldurðu að gerist ef matur- inn er ekki klár á slaginu sex? Að Lykla-Pétur meini þér að ganga gegnum Gullna hliðið? Nei, Jesú, Pétri og þeim félögum öllum er sjálfsagt sama um slík formsatriði - ætla má að þeir leggi meira upp úr því að fjölskyldan njóti góðrar kyrrðarstundar saman, minnist hins góða í heiminum og kyssi hvort annað af og til á kinnarnar. Gildir þá einu klukkan hvað eða hvað er haft af meðlæti. haukur@vbl.is Sparilegir dúkar og borðklútar Tilvaldir á jólaborðið „Ég hef verið að framleiða spari- lega dúka (löbera) og brauðklúta úr hör,“ segir Margrét Leopoldsdóttir, myndlistarmaður, textílhönnuður og ein þeirra sem sýna á jólasýningu Handverks og hönnunar. „Á dúkana hef ég silkiþrykkt ýmsar lækningajurtir t.d. Bald- ursbrár og Hvönn. Dúkarnir eru í hvítum og ljósum lit og fara því vel á dökku borði. Það er líka hægt að nota dúkana þversum á borðin en þá virka þeir sem diskamottur fyrir tvo,“ segir Margrét. „Brauðklútarnir sem ég framleiði eru stærri en servíettur og not- aðir til að halda hita á brauðum sem gjarnan er borið fram með forréttum um hátíðarnar," segir Margrét. Hún fékk hugmyndina af brauðklútunum þegar hún sá að servíettur dugðu ekki til að halda hita á brauðinu. Margrét var valin úr stórum hópi umsækjenda á jólasýningu Hand- verks og hönnunar og segir að hvíti liturinn hafi vakið mikla athygli. .Hvítur er mikið í tísku núna fyrir 'e HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN AÐ HLÍÐARSMÁRA 13 í KÓPAVOGI ALLAR VHS MYNDIR Á KR. 1250.- (hvergi ódýrari) ÓTRÚLEGT TILBOÐ Á TITRURUM KR. 500.- MEÐAN BIRGÐIR ENDAST www.tantra.is jólin og liturinn hentar líka vel til að hafa undir jólaskrauti eða kerti í jóla- legum litum,“ segir Margrét. Hún framleiðir dúkana og brauðklútana jafn óðum og segist geta framleitt þá í öllum litum og stærðum. Þar sem ekki er sérstakt jólamynstur á dúkunum geta þeir nýst allan ársins hring. Jólasýning Handverks og hönn- unar er til húsa að Aðalstræti 12 og er opin alla daga vikunnar frá kl. 13-17. Hvítur er mikið í tísku núna fyrir jólin og liturinn hentar líka vel til að hafa undir jólaskrauti eða kerti íjólalegum litum," HLÍÐARSMÁRI 13 S. 587 6969 Opið virka daga 12-20 FÁKAFENI 11 S. 588 6969 Laugardaga 12-18

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.