blaðið - 30.11.2005, Síða 30

blaðið - 30.11.2005, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaöifi Þórður og Stoke ná ekki sáttum Svo virðist sem enska knattspyrnu- félagið Stoke City, sem er í eigu íslenskra fjárfesta, og Þórður Guð- jónsson, knattspyrnumaður sem er á mála hjá félaginu, nái ekki sáttum við gerð starfslokasamnings. Þórður er með samning við Stoke út júní á næsta ári og er á heimleið. Hann hefur þegar ákveðið að leika með f A í Landsbankadeildinni næsta sumar og Skagamenn og Þórður hafa gert sér vonir um að hann losni um næstu áramót. Þórður sendi fyrir nokkrum vikum tilboð inn til for- svarsmanna Stoke og taldi hann það vera mjög sanngjarnt tilboð frá sér. Því var hafnað. Samningur Þórðar við Stoke er til 30. júní 2006 ,Nei, við höfum ekki náð samkomu- lagi um hvernig þeim málum eigi að vera háttað. Eg bauð þeim starfs- lokasamning miðaðan við það sem gengur og gerist hér á Englandi. Hann var mjög sanngjarn,” sagði Þórður Guðjónsson knattspyrnu- kappi í samtali við Blaðið í gær. „Ég fekk gagntilboð sem var ekki í neinni líkingu við það sem gengur og gerist hér á Englandi og telst ekki sanngjarnt að neinu leyti. Ég veit hvað hefur verið í gangi annnars staðar á Englandi þegar menn eru leystir undan samningi og eins og málin eru í dag þá er boltinn bara hjá þeim. Það lítur því allt út fyrir að ég verði hér út samninginn sem er til 30. júní á næsta ári,“ sagði Þórður. Skagamenn og Þórður gerðu ný- lega samkomulag sín á milli um að Þórður leiki með ÍA á næstu árum en Þórður og hans fjölskylda eru að flytja til íslands á ný eftir margra ára dvöl erlendis. Að sjálfsögðu völdu Þórður og hans kona að búa á Akranesi enda af mikilli og dyggri ÍA-fjölskyldu. „Sem betur fer eru Skagamenn mjög skilningsríkir á mína stöðu hér hjá Stoke og þeir taka bara á móti mér í júní. Það verður bara að hafa það eins og staðan er í dag,“ sagði Þórður Guðjónsson í samtali við Blaðið í gær. ,Hann má fara frá okkur." Gunnar Þór Gíslason er formaður Stoke City Football Club og Gunnar hafði þetta að segja um málið þegar Blaðið náði sambandi við hann í gær. „Við stöndum alls ekki í vegi fyrir þvi að hann fari upp á Skaga. Það hentar okkur ágætlega ef Þórður yrði leystur undan samningi núna en það þýðir ekki að við ætlum að borga honum laun á meðan hann er í annarri vinnu. Hann má fara frá okkur. Ekkert mál,“ sagði Gunnar Þór í gær. En getið þið ekki náð saman? „Hann vill fá of mikinn pening fyrir að fara frá Stoke að mínu mati. Við borgum honum laun samkvæmt samningi þangað til hann hættir hjá okkur. Þetta er eins og hver önnur vinna. Hann er að fara í aðra vinnu að því er okkur skilst og honum er frjálst að fara okkar vegna. Þekkir þú til þess að einhver fái borgað frá fyrrverandi vinnuveitanda fyrir að fara í aðra vinnu? Ég bara spyr,“ sagði Gunnar Þór Gíslason, for- maður Stoke City Football Club, í samtali við Blaðið í gær. Eins og eflaust má sjá er mál Stoke og Þórðar Guðjónssonar í hnút og því ekki að vænta starfslokasamn- ings á milli aðila á næstunni. Maður veit þó aldrei - það á aldrei að segja aldrei. Hver veit nema að samningur verði svo undirritaður innan viku. Hreinsar loftið Eyðir lykt Drepur bakteríur FRI HEIMSE um allt lani ING kaupbæti ECC Skúlagötu 63 Sími 5111001 Opið 10-18 www.ecc.is NBA: Clippers hefur komið á óvart Fátt hefur vakið jafn mikla athygli í upphafi leiktíðarinnar í NBA og gott gengi Los Angeles Clippers. Liðið hefur mörg undanfarin ár vakið kátínu hjá þeim sem fylgjast með íþróttum og á sínum tíma kom upp sú hugmynd að ráða leikarann góðkunna Billy Crystal sem þjálfara af þeirri einföldu ástæðu að hann var eini maðurinn sem mætti á alla leiki! Clippers hefur mörg undan- farin ár átt grátlegu gengi að fagna og einhverra hluta vegna virðast for- ráðamenn félagsins ekki hafa haft mikinn áhuga á að blása lífi í liðið. Clippers hefur t.a.m. ekki komist í úrslitakeppnina síðan 1997, en árang- urinn þar er reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir þegar allt kemur til alls. Síðan félagið var stofnað í Buffalo árið 1970 hefur það aðeins einu sinni unnið einvígi í úrslita- keppninni og það gerðist árið 1976, þegar liðið hét Buffalo Braves. Frá Buffalo var liðið flutt til San Diego árið 1978 og sex árum síðar færði það sig til Los Angeles þar sem eig- andinn, fasteignajöfurinn Donald T. Sterling, býr. Sterling hefur annað slagið sýnt merki þess að hann ætli sér að gera eitthvað með þetta lið, hann réði t.d. goðsögnina Elgin Baylor sem framkvæmdastjóra, en undarlegar ákvarðanir varðandi leikmannaskipti og leikmannamál almennt hafa oftar en ekki komið á óvart og forðað liðinu frá ásætt- anlegum árangri. Hins vegar kann að vera að loksins hafi Sterling og félögum tekist að snúa gæfuhjólinu sér í vil. Ástæðurnar fyrir góðu gengi Clippers í dag eru einkum tvær. Til- tölulega ung og fjörug framlína og bakvarðasveit sem reynslan hrein- lega lekur af í stríðum straumum. Clippers tók þá ákvörðun að endur- nýja samningana við tvær skærustu stjörnur sínar, sem boðar í rauninni nýja tíma hjá félaginu. Corey Ma- gette fékk tilboð frá Utah Jazz og Elton Brand fékk tilboð frá Miami Heat, en Clippers tókst að halda í framherjana tvo með því að jafna þessi tilboð. Þeir fengu báðir langa samninga sem tryggja þeim stjarn- fræðileg laun, en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Clippers gera slíka risasamninga. Þá var miðherj- anum Chris Kaman gert ljóst að hann kæmi til með að spila mikil- vægt hlutverk og tveir reynsluboltar voru fengnir til að stýra skútunni. Cuttino Mobley var rótlaus hjá Or- lando en sýnir hjá Clippers hvers hann er megnugur og leikstjórnand- inn er svo sjálfur Sam Cassell, sem kom frá Minnesota. Cassell hefur mörg undanfarin ár verið einn besti leikstjórnandi deildarinnar, á löngum köflum hefur hann ekki notið sannmælis og fengið það hrós sem hann á skilið, en tölurnar tala sínu máli og Cassell kann þá list að stýra liði sínu til sigurs. Þetta er kjarninn sem hefur Clippers á kortið. Liðið hefur nú unnið 9 af fyrstu 11 leikjunum sínum og þar með sett félagsmet. Helsti höfuð- verkur Clippers-manna er hins vegar sá að leikmannahópurinn er ekkert sérlega breiður og meiðsli ein- hvers fimmmenninganna í byrjunar- liðinu (sem er í rauninni sjálfvalið) gætu breytt gangi mála mjög snögg- lega. Á bekknum sitja nokkrir ungir og efnilegir leikmenn sem með tíð og tíma gætu látið til sín taka og eldri refir á borð við hinn víðförla Howard Eisley og Walter McCarthy, sem lengstum lék með Boston Celt- ics. Ekki má gleyma þætti þjálfar- ans, Mike Dunleavy. Dunleavy er að hefja þriðja tímabil sitt sem þjálfari Clippers og afrekaskrá hans með LA Lakers og Portland Trail Blazers talar sínu máli, en hann hefur sex sinnum stýrt liði inn í úrslitakeppn- ina, einu sinni komist í úrslitin sjálf og einu sinni verið valinn þjálfari ársins í NBA. Fari svo að leikmenn Clippers verði nokkuð heilsu- hraustir fram á vorið og meiðsli lyk- ilmanna verði ekki til vandræða má rétt eins búast við því að Clippers blandi sér af alvöru í baráttu hinna bestu. Það ótrúlega virðist vera að gerast í Los Angeles; Clippers eru að verða körfuboltastolt borgarinnar á meðan Lakers mega muna sinn fífil sinn fegurri. Hvað er næst, vinnur Steven Seagal Óskarinn?

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.