blaðið - 30.11.2005, Síða 32
32 I AFÞREYING
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaðiö
RÁÐSTEFNA
UM
ÓLÖGLEGA
DREIFINGU
Umræða um höfundarrétt
og Netið hefur aukist mjög
undanfarið og á Norðurlöndun-
um, sem og annars staðar, hafa
yfirvöld eða höfundaréttarsam-
tök lögsótt þá sem dreifa tónlist,
kvikmyndum, sjónvarpsþáttum
og tölvuleikjum án heimildar.
I síðastliðinni viku var hald-
in ráðstefna hér á landi sem bar
heitið Nordic IP (Intellectual
Property) Seminar, eða norræn
ráðstefna um hugverkarétt-
indi.Á ráðstefnunni komu
saman aðilar sem allir hafa
það að markmiði að vernda
höfundarétt að hugverkum
ýmis konar og ræða sín á
milli hvernig best sé hægt að
stemma stigu við ólöglegri
dreifingu höfundaréttarvarins
efnis. Gestir voru m.a. frá:
Höfundaréttarsamtökum
tónlistar- og kvikmynda-
geirans á Norðurlöndum
Motion Picture Association
(MPA) - Samtökum banda-
rískra kvikmyndaframleiðanda
International Federation
of Phonographic Industry
(IFPI) - Alheimssamtökum
tónlistarframleiðenda.
FBI (bandarísku Alríkis-
lögreglunni) og Interpol
Rannsóknaraðilum/
handhöfum ákæruvalds
á Norðurlöndum
Meðal þess sem rætt var á
ráðstefnunni eru helstu dómar
sem fallið hafa utan Evrópu
eins og svokölluð „Grokster" og
„Kazaa" mál þar sem hugbún-
aðarframleiðandinn var talinn
stuðla að ólöglegri dreifingu á
hugverkum og þar af leiðandi
dæmdur ábyrgur fyrir notk-
un hugbúnaðarins. Þá hafa
nokkrir norrænir dómar sem
tengjast ólöglegri dreifingu
á skráarskiptaforritum fallið
undanfarna mánuði. Meðal
þeirra eru sænskur dómur þar
sem notandi var fundin sekur
um að dreifa kvikmyndinni
Hip Hip hora í gegnum DC++
skráarskiptaforritið. Fékk
viðkomandi 15.000 sænskar
krónur í sekt fyrir þessa einu
mynd en það samsvarar u.þ.b.
120 þúsund íslenskum krónum.
Lögleg dreifing
Aðilar frá FBI og Interpol
ræddu einnig aðkomu þeirra að
rannsókn höfúndaréttarbrota
á Netinu en þær stofnanir skila
mikilvægu hlutverki þegar brot
eiga sér stað á milli landa, eins
og oft er með dreifingu tónlistar-
og kvikmyndaskráa í gegnum
skráarskiptaforrit. Að lokum
kom það fram að gifurleg aukn-
ing er á sölu á löglegri tónlist á
Netinu og vex hún nú hraðar en
ólögleg dreifing. Þá ætla fyrir-
tækin Warner og Disney að hefja
sölu á kvikmyndum á Netinu
á Norðurlöndum á næsta ári.
Á íslandi stendur yfir
rannsókn um þessi mál.
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um að
raða tölunum frá 1 -9 lárétt
og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni fyrir í hverri línu,
hvort sem er lárétt eöa lóðrétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem uþþ eru gefnar.
1 3 5
8 5 1
9 6 7 4 1
6 4
5 8 1 7
9 4
3 6 2 4 1
1 3 2
4 3 7
Lausn á síðustu þraut
6 5 7 3 2 4 8 9 1
3 9 2 8 6 1 7 5 4
8 1 4 5 7 9 3 2 6
5 7 6 2 9 8 1 4 3
4 3 9 7 1 6 5 8 2
1 2 8 4 3 5 9 6 7
2 6 3 9 5 7 4 1 8
7 4 5 1 8 2 6 3 9
9 8 1 6 4 3 2 7 5
m Tœkni
Glœpir
borga sig
Tölvuglæpir í heiminum veltu
hærri fjárhæðum en fíkniefn-
amisferli í fyrra samkvæmt
sérfræðingi sem vinnur
fyrir ríkisstjórn Bandaríkjanna.
Búist er við að tölvuglæpir
verði enn víðtækari með
tölvuvæðingu þriðja heimsins.
Talið er að veltan hafi verið
um 6.658 milljarðar króna.
luðu sér í fimm efstu sætin í keppninni í gær. Eins og sjá má
1 skeggjaðir og fúiir út í gyðinga.
Þessar föngulegu s'
eru ekki ailir skákál
Natalia Pogonia
Baráttan er hörð um titilinn Ungfrú skákheimur en keppni
stendur yíir á veísíðunni www.lwcbc.com. Fjöldi stúlkn-
anna sem berjast um titilinn nálgast nú eitt hundrað og
verður ein þeirra krýnd sigurvegari í þetta fyrsta skipti
sem keppnin er haldin. Aðstandendurnir segjast trúa þvi
að skák þuríi ekki eingöngu að vera alvarleg og þreytandi
heldur einnig skemmtileg.
Deila má um hversu raunveruleg og fagmannleg keppnin
er þar sem hún treystir á að skráðir notendur sendi inn
myndir af skákdrottningunum. Eins og sjá má eru mynd-
irnar af misjöfnum gæðum. Þá er heimasíðan nokkuð
kauðslega unnin en slíkt tíðkast reyndar líka hjá virðing-
armeiri keppnum eins og Ungfrú heimur. Hins vegar má
nefna að i dómnefnd eru merkilegir menn á borð við Nigel
Natalia Kovaleska íessica Basland
Delgado Trujillo
Luftgítar - ég
dansa ekki
Finnar hafa einstaka til-
hneigingu til að vera kúl, sjá-
ið bara Mika Hákkinen. Ef
það klikkar þá reyna þeir að
minnsta kosti. Nú hafa há-
skólanemar við Háskólann
í Helsinki fundið leið til að
láta heyrast í luftgítarnum
hjá þeim sem vilja vera
rokkstjörnur en geta það
ekki. Með vefmyndavél
og appelsínugula hanska
að vopni getur þú mynd-
að sígild rokklistaverk
með aðstoð tölvunnar þinnar. Á
síðunni http://airguitar.tml.hut.fi Luftgítar með hljóði. Þetta
má þó sjá hversu svalur maður er vi,jum viö síá á Ölveri.
með græjuna.
Flauelstölvur
Löngum hafa fartölvur
þótt leiðinlegar í út-
liti fyrir utan tilraun-
ir Apple með iBook.
Hins vegar hefur
Intel, í samvinnu við
fyrirtækið Ultrasuede,
ákveðið að breyta þessu.
Hugmyndin er að klæða
hefðbundna kjöltutölvu
með flaueli og gera hana
svipaða nýjustu Nokia
GSM simunum. Nú geta
Ally McBeal stelpurnar í lög-
fræðinni því valið milli PC
og Apple en hingað til hefur
Apple verið vinælli hvað fal-
legar fartölvur varðar.