blaðið - 30.11.2005, Síða 37
blaðið MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
DAGSKRÁI37
Stutt trúlofun
hjá Kimberly
Stewart
Það er einungis rúm vika síðan Kimberly, dóttir Rod Stewart, opinberaði
trúlofun sína við Talan og sýndi trúlofunarhring sinn en nú aðeins ellefu
I dögum síðar hefur hún skipt um skoðun. Hún hefur áttað sig á að það sé
of snemmt að trúlofa sig eftir að hafa aðeins verið með Talan í tvo mánuði.
Talan gaf Kimberly hring sem kostaði 300.000 dollara en hringurinn var
annar trúlofunarhringurinn hennar á árinu. Tilkynningin sem þau gáfu
út hljómaði svo: „Það var allt of fljótt að binda sig ævilangt en það er
alla vega betra að hafa stutta trúlofun en að hafa verið giftur í stuttan
tíma.“
Giselle Bundchen í
The Devils
Wears Prada
Fyrirsætan Giselle Bundchen mun leika í kvik-
myndinni The Devil Wears Prada ásamt Mer-
yl Streep. Stúlkan er 25 ára brasilísk fyrirsæta
sem varð fræg fyrir leik sinn í myndinni Taxi
þar sem hún var ein af bankaræningjunum.
David Frankel skrifaði handritið og mun leik-
stýra myndinni sem fjallar um hræðilegan
yfirmann og byggir á samnefndri sögu Lauren
Wisberger’s. Smábæjarstúlka kemur til sög-
unnar í myndinni og fær það hlutverk að vera
aðstoðarmaður áhrifamikils ritstjóra.
*
Skjár 1 - America’s Next Top
Model IV, lokaþáttur -kl. 20:00
Fjórtán stúlkur keppa um titilinn.
Enn er það Tyra Banks sem heldur
um stjórnvölinn og ákveður með
öðrum dómurum hverjar halda
áfram hverju sinni. Stúlkurnar gang-
ast vikulega undir próf sem skera úr
um það hverjar halda áfram og fá
skyndinámskeið í fyrirsætustörfum
sem geta leitt til frægðar og frama í
tískuheiminum efvel gengur.
...kjaftaska
Stöð 2 - Oprah - kl. 21:15
|—Glænýir þættir með
m- llinni einu sönnu
Oprah. Oprah Gail
H Winfreyervaldamesta
: lconan * bandarísku
IBB sjónvarpi. Spjallþáttur
hennar nýtur fádæma vinsælda en
Oprah er fátt óviðkomandi. Gestir
hennar koma úr öllum stéttum þjóð-
félagsins en fræga fólkinu þykir mik-
ilsvert að koma fram í þættinum.
...pianóleikara
Sjónvarpið - Leif Ove Andsnæs
- kl. 22.40
SNorski píanóleikai
rjinn Leif Ove And
jsnæs er i fremstr
Jröð ungra tónlistai
Jmanna um þessai
^mundir og honuir
hefur verið lýst sem músíkalskastí
píanóleikara sinnar kynslóðai
Tónlistaráhugi Andsnæs kviknað
snemma. Fjögurra ára gamall vai
hann byrjaður að læra á píanó 05
þegar hann var fimmtán ára hafð
hann leikið flestar sónötur Beethc
vens og Mozarts.
Svavar er fréttamaður á NFS fréttastofunni
Hvernig hefurðu það í dag?
„Ég hef það Ijómandi gott. Ég er búinn að
vera duglegur í morgun og hef afkastað
miklu'
Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í
fjölmiðlum?
„Ég byrjaði að vinna í fjölmiðlum fyrir um
fjórum árum á fréttastofu Ríkisútvarpsins."
Langaði þig að verða sjónvarpsmaður
þegar þú varst lítill?
„Nei nei. Ég ætlaði að verða slökkviliðs-
maður og kappakstursbílstjóri eins og
venjulegir strákar."
Hvernig finnst þér að vinna í sjónvarpi?
„Það er bara mjög gott að að vinna í sjón-
varpi. Það er alltaf nóg að gera þannig að
manni leiðist aldrei."
Er vinnan í sjónvarpi öðruvísi en þú
hefðir búist við?
„( raun og veru ekki af því að konan mín
vinnur hér líka þannig að ég vissi nokkurn
veginn hvernig þetta væri."
þess og svo finnst mér mjög sjálfhverft að
horfa mikið á sjálfan sig."
Geturðu lýst dæmigerðum degi í þínu
lífi?
„Dæmigerður dagur gæti til dæmis verið
að ég vakna klukkan sjö og geri alla fjöl-
skylduna klára, fer í vinnuna, kíki á fund
til klukkan níu, fer síðan að útbúa fréttir,
fer út í tökur til um tólf og svo er klukkan
skyndilega orðin sjö. Á kvöldin klappa ég
aðallega konunni minni og bíð eftir vænt-
anlegu barni sem er að koma fljótlega."
Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið
þitt?
„Ég er voðalega hrifinn af fréttum, frétta-
þáttum og spjallþáttum og finnst Silfur
Egils bráðskemmtilegt."
Hver væri síðasta spurningin í þessu
viðtali ef þú mættir ráða?
„Hvernig heldurðu að restin af deginum
eigi eftir að verða?"
„Bara frábær eins og aðrir dagar."
Horfirðu á þættina
sem þú hefur
verið í?
„Það er mjög
sjaldan. Bæði
af því að ég hef
lítinn tíma til
Gætir þú hugsað þér að eiga ekki sjónvarp?
Fanney Ingólfsdóttir Guðlaugur
Já,já. Gunnlaugsson
Nei, það held ég ekki..
Helga
Guðmundsdóttir
Já, ég átti ekki í sjónvarp
í eitt ár og það var mjög
notalegt.
Hálfdán
Aðalsteinsson
Nei.
Kate Winslet er sátt
við líkama
Kate Winslet hefur fjallað um reynslu sýna af
að koma fram í sundfötum. „Ég hafði miklar
áhyggjur þegar tökurnar voru að hefjast á mynd-
inni Little Children af því að ég þurfti að vera
í sundfötum. Ef ég hefði verið spurð hvernig
það legðist í mig að spóka mig um í sundfötum
og vera í kynlífshlutverkum þegar ég væri
orðin þrítug og ætti tvö börn þá hefði ég
dáið við tilhugsunina," sagði Kate. Nú
segist hún hafa breytt viðhorfunum.
„Nú hugsa ég, í guðanna bænum, maður
á að vera sáttur við það hvernig maður
lítur út og ég einbeiti ég mér að því að
vera glöð með líkama minn. Ég ákvað
að komast yfir þessa hræðslu og nú er
ég sátt og ánægð með mig í sundfötun-
«
Kókoshneta byrjar í skóla
Verðlaunahöfundurinn Ingo Siegner
segir frá Kókoshnetu elddreka
og vini hans Óskari rándreka.
■ iniMtfi
InQO
Gamansöm
saga og
skemmtilegar
myndir.
Gefin út
í fjölda
landa.
Einhyrningurinn minn
Undarlegir atburðir
Fjórða bókin í vinsælum flokki
Er draugagangur
í kofanum í
skóginum?
Lára viil komast
að því hvað þar
er á seyði.
Spennandi
saga!
Kossinn sem hvarf
eftir metsöluhöfundinn David Melling
- sem nefndur var til Kate Greenaway-verðlaunanna fyrir bókina).
Yndisleg bók fyrir prinsa og prinsessur!
"Þetta er dásamleg saga.
Myndskreytingar
Mellings eru
eins snjallar
og smellnar
og texti hans."
The Cuardian
i n n
0kV.O HICUKC