blaðið - 30.11.2005, Page 38

blaðið - 30.11.2005, Page 38
38IFÓLK MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaöiö SAMKYNHNEIGÐ- IR í HELVÍTI? Umfjöllunin um ættleiðingar og tækni- frjóvganir samkynhneigös fólks er að mestu liðið undir lok, sem betur fer. Smáborgarinn fann nefnilega fyrir mörgum skrýtnum tilfinningum þegar þessi umræða stóð sem hæst. Honum fannst í rauninni sem hann lifði í óraun- verulegu og skondnu ævintýri, á sorg- legan hátt. Smáborgaranum fannst þetta tal allt svo tilgangslaust og skildi í rauninni ekki af hverju var verið að tala um þetta. Enn síður skildi hann af hverju var í sífellu verið að draga fram illa upplýst fólk með sínar gegnsæu skoðanir. Það sem Smáborgarinn átti erfiðast með að skilja var í rauninni af hverju það þurfti umræðu um þessi mál því það er nú 21. öldin. Af hverju í ósköpunum ættu samkynhneigðir EKKI að fá að ættleiða börn og fara í tækni- frjóvgun? Þetta er svo sjálfsagt að Smáborgarinn skilur ekki enn af hverju allar þessar umræður áttu sár stað enda horfir hann á samkynhneigða og sér manneskjur. Manneskjur sem eru alveg eins og hann enda er honum alveg sama hvað þau gera heima hjá sér. Rétt eins og Smáborgarinn veit að samkynhneigðum er sama hvernig kyn- líf Smáborgarinn stundar, hvort hann vill vera ofan á eða undir, hvort hann sé kúrari eða snúi sér á hliðina eftir fullnægingu og hvort hann lætur sig dreyma um makann eða Brad Pitt þeg- ar hann stundar sjálfsfróun. Hverjum er ekki sama? Guð má vita, að öllum er drullusama. Sorglegast fannst Smá- borgaranum þegar fólk fór að vitna í Guð og Biblíuna sem dæmi um hversu röng samkynhneigð er. Því hver er Guð ef hann fordæmir samkynhneigða? Það myndi sá Guð sem Smáborgarinn þekkir ekki gera né myndi Smáborg- arinn trúa á Guð sem það gerði. Enda einkennist þessi umræða af svo mikl- um hroka. Hver er Smáborgarinn að banna náunga sínum að eignast börn? Það kemur engum það við. Ef það er til helvíti þá fara hinir hrokafullu þangað á meðan samkynhneigðir hlæja með sínum börnum! HVAÐ FINNST ÞER? Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags íslands. Hvað finnst þér um ákvörðun heilbrigðisráðherra í gær? „Ég er auðvitað bara mjög ánægður með að hann hafi ákveðið að fella þessa reglu- gerð úr gildi,“ segir Sigursteinn. „Enda var ekki um annað að ræða í stöðunni, eins og við höfum bent á. Ég er bara feginn því að hann hafi komist að þessari niðurstöðu og ákveðið að gera þetta núna fyrir mánaðamótin. Þetta þýðir að það skerðingarhlutfall sem verið hefur í gildi áður, gagnvart þeim sem fengið hafa of- greiðslur, verður áfram í gildi. Þetta er því bara það sem við höfum verið að fara fram á og ég er feginn að þetta hafi orðið niðurstaðan hjá ráðherranum." Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, ákvað í gær að fella úr gildi nýja reglugerð um skerðingu bótagreiðslna til öryrkja og ellilífeyrisþega. Rod Stewart orðinn pabbi aftur Söngvarinn Rod Stewart er orðinn faðir í sjöunda sinn. Hann og kær- N asta hans, Penny Lancaster, eignuðust dreng. Bæði móður og syni heilsast vel og allt hefur gengið að óskum. „Ég er stoltur af Pen fyrir hugrekkið og hvað hún var sterk að ganga í gegnum þetta allt. Við njót- um hverrar stundar með syni okkar og getum ekki tekið augun af honum,“ sagði Rod. Penny var ekki síður ánægð og sagðist himinlifandi yfir að hafa getað átt drenginn og að það hefði verið ein besta reynsla lífs síns. Gary Barlow syngur í brúðkaupi Elton John Söngvarinn Gary Barlow út hljómsveitinni Take That mun syngja í brúðkaupi Elton John og David Furnish. Skipulagningin verður öll í höndum David og hann hefur beðið Gary að syngja. „Ég veit ekki hvað ég ætla að syngja. Ég held hins vegar að ég muni ekki semja neitt nýtt og á örugglega eftir að flytja eitthvað gamalt og gott,‘ sagði Gary. Elton vonast eftir að hann og David verði gefnir saman í Windsor þar sem Karl Bretaprins og Camilla voru gift. „Við erum búnir að vera saman í tólf ár og vitum að samband okkar er traust. Nú viljum við hins vegar tryggja okkur eftil dæmis annar okkar myndi deyja,“ sagði Elton. Jude Law verður í nýrri mynd Siennu Miller Leikaranum Jude Law hefur verið boðið hlutverk í nýrri mynd Siennu Miller sem ber nafnið Factory Girl. Jude og Sienna hættu saman á árinu þegar Jude viðurkenndi að hann hefði heldið framhjá henni með barnfóstru þeirra. Mikið hefur verið rætt um Jude og Siennu síðasta árið enda hefur mörgum þótt ástarmál þeirra heldur betur skrautleg. Með nýjasta útspilinu hafa fjölmiðlar ályktað að þau vilji halda sátt og að Sienna vilji halda honum í nálægð við sig. eftir Jim Unger .Forsætisráðherrann sagði í Silfri Egils í dag að stjórnarfrumvarp um Ríkisút- varpið yrði ekki samþykkt fyrir jól en taldi enn ekki útilokað að það kæmi fram einhverntíma á næstu tveimur vikum. Þótt ýmsir telji Senegal-ferð- irnar tefja nokkuð löggjafarstörf menntamálaráðherrans er líklegt að aðrir þættir ráði meira um þessa töf. Annarsvegar er augljóst að innan Fram- sóknarflokksins er andstaða við hluta- félagsformið sem Halldór var búinn að jánka Sjálfstæðisflokksmönnum, auk efasemda um að hf. á RÚV auki fylgið verulega. Hinsvegar er líklegt að athugasemdir ESA (Eftirlitsstofnunar Efta) standi enn í embættismönnum og valdsmönnum. Upphaflega stóð til að háeffunin firrti menn þeim evr- ópska vanda.“ Mörður Árnason, alþingismaður á http://www.aIthingi.is/mordur/ra- edur_og_greinar/safn/oo2i9ó.php ,,Við í Frjálslynda flokknum erum eini flokkurinn með skýra stefnu í flugvall- armálinu. Við erum staðráðin í því að verjastaðsetninguflugvallarinsíVatns- mýri og förum óhikað með þá stefnu í kosningar í borginni í vor. Persónulega tel ég fráleitt að þessi flugvöllur verði fjarlægður. Verði það ógæfuspor hins vegar stigið, sem ég vona svo sannar- lega ekki, þá er ekki um annað að ræða en hann fari til Keflavíkur. Það mun um leið þýða svo gott sem endalok inn- anlandsflugs hér á landi sem verður reiðarslag fyrir þjóðina sem heild. Að byggja nýjan innanlandsflugvöll á höf- uðborgarsvæðinu er fásinna." Magnús Þór Hafsteinsson, alþing- ismaður áhttp://www.althingi. is/magnush/ „Að sönnu er margt að í okkar samfé- lagi og ýmislegt má finna að í sjávar- útvegsmálum okkar. En í alþjóðlegum samanburði stöndum við mjög vel og engin ástæða til þess að gera lítið úr því. Við gerum okkur nefnilega grein fyrir því að sjávarútveguinn okkar verður að geta gengið einn og óstudd- ur, agaður af samkeppnisumhverfi markaðssamfélagsins og þvi er hann drifkraftur efnahagslegra framfara hér á landi.“ Einar Kristinn Guðfinnsson, sjáv- arútvegsráðherra á http://www. ekg.is/ (0 Jnn Unger/dicL by UnKod Media, 2001 Athygli mín hefur verið vakin á því að þú eigir fimm bíla og snekkju á Flórída HEYRST HEFUR... Einar K. Guðfinnsson, sjávar- útvegsráðherra, hefur ráðið Björn Friðrik Brynjólfsson sem aðstoðarmann sinn í ráðuneytið, en Ármann Ólafsson fylgdi Árna M. Mathiesen í fjármálaráðuneyt- ið. Björn Friðrik hefur getið sér gott orð sem íþróttafréttamaður hjá RÚV og víst er um það að hann verður skýrmæltastur allra aðstoðarmanna ríkisstjórnarinn- ar. Verður að vona að hann kveði líka fastar að orði, en þeirri stétt er alla jafna tamt. Björn Friðrik er menntaður bæði í stjórnmála- fræði og hagnýtri fjölmiðlun, en flestum hefur verið ókunnugt um að í honum bærðist íhalds- hjarta, helst að menn héldu að hann væri framsóknarmaður. En síðan segja aðrir að hann hafi svo sem ekki haft neinn sérstakan áhuga á íþróttum áður en hann fór að segja af þeim fréttir... Mú styttist í að síðasta bind- ið í ritverki Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar um Nóbelsskáldið Hall- dór Kiljan Laxness komi út. Talsverður styr stóð um ritun og útgáfu fýrri bindanna og meðal annars reyndi hluti fjöldkyldu skáldsins að koma í veg fyrir ritun hennar af ótta við að Kiljan myndi ekki njóta sann- mælis vegria stjórnmálaskoðana sinna og höfundarins. Þá varð ekki minni hvellur vegna notkun- ar Hannesar á textum Laxness í bókunum. Sjálfsagt verður ró- legra um útgáfu þessa síðasta bindis, enda er aðallega fjallað um þann tima er Laxness var sestur í friðarstól. Það kæmi þó á óvart ef Hannes lumaði ekki á einhverjum nýmælum um meistarann frá Gljúfrasteini. Bókmenntafræðingurinn Helga Kress mun þó væntanlega aðal- lega setjast yfir heimildaskrá alls verksins, sem loks birtist í þessu hinsta bindi... Vinnubrögð Fréttablaðsins eru undrunarefni á fleiri sviðum en þeim sem snúa að eigendum þess. Halldór Guð- mundsson, sem hefur tengst JPV-forlagi, ritdæmdi þar um daginn bók eftir einn af stjörnu- höfundum forlagsins. Halldór var æðsti yfirmaður Eddu þegar forlagið lenti í fjárhags- erfiðleikum, sem Páll Bragi Kristjónsson og Björgólfur Guð- mundsson björguðu því úr, en þá skolaði honum á fjörur JPV og gaf þar út ævisögu Laxness og sinnti ýmsum snúningum fyrir Jóhann Pál Valdemarsson, forleggjara. í fyrrnefndum rit- dómi hóf Halldór JPV-maður umrædda bók JPV forlagsins til skýjanna -áreiðanlega verð- skuldað - og í framhaldinu birti JPV forlagið auglýsingu, þar sem að sjálfsögðu var vitnað í jákvæð ummæli hins óháða ritdómara. í bókabrans- anum velta menn því fyrir sér hvort þetta sé í samræmi við hinar margumtöluðu siðaregl- ur Fréttablaðsins... Gítarguðinn Þór Eldon, sem gerði garðinn frægan með Sykurmolunum og Unun hér um árið, hefur undanfarið ár unnið við suðurströnd Frakk- lands. Nú mun hann hins vegar snúinn heim og segir sagan að fyrir liggi frekara samstarf hans og Ara Alexanders, kvikmynda- gerðarmanns. Svo er aldrei að vita nema hann láti frekar að sér kveða í popptónlist, en að því væri mikill fengur fyrir fram- sækið íslenskt popp...

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.