blaðið - 21.12.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 MaAÍÖ
Bílaumboð:
Ríkisstjórnin:
Wýr eigandi að
Toyota og Lexus
Smáey ehf., félag í einkaeigu Magn-
úsar Kristinssonar, keypti í gær
P.Samúelsson hf., umboðsaðila Toy-
ota og Lexus hér á landi. Samkomu-
lag er um að kaupverð verði ekki
gefið upp. Magnús, sem er einnig
varaformaður í Straumi-fjárfestinga-
banka, segir að Toyota umboðið
hafi ávallt lag sig fram um að veita
afburðaþjónustu og að áhersla verði
lögð á að viðhalda og styrkja þann
þátt starfseminnar aukþess sem um-
boðið verði eflt til lengri tíma. „Ég
hlakka til að takast á við verkefnin
sem eru framundan í samvinnu við
starfsmenn,“ segir Magnús.
Farsæll rekstur í 35 ár
P. Samúelsson var stofnað þann 17.
júní 1970 til innflutnings og sölu
á Toyota. Tíu árum síðar gerðist
félagið beinn umboðsaðili Toyota
Motor Corporation og hóf milli-
liðalausan innflutning frá Japan. Á
þessum tímamótum settu eigend-
urnir sér það markmið að gera Toy-
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Magnús Kristinsson
ota að algengustu bílategundinni
hér á landi og náðist það markmið
átta árum síðar þó svo tegundin
hafi aldrei verið sú söluhæsta á einu
ári. Árið 1990 var því markmiði svo
náð og hefur Toyota haldið þeirri
stöðu síðan. ■
SEKSY
' kvenmannsúr með bleikri skífu úr ekta bleikri perlumóðurskel
og bleikum steinum. Armbandskeðjan er með bleikum Swarovski
kristöllum sem einfalt er að minnka eða stækka að vild.
Utsölustadir:
Jens Kringlunni • Gilbert úrsmidur Laugavegi 62 • Helgi Sigurösson úrsmióur
Skólavörðustíg 3 ■ Georg Hannah úrsmlður Keflavík • Guðmundur B. Hannah
úrsmióur Akranesi ■ Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guömundssonar Selfossi
Gjafakörfur matgæðingsins
Éh
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Vill Surtsey á heims-
minjaskrá UWESCO
Á ríkisstjórnarfundi í gær var sam-
þykkt að leggja inn umsókn til UN-
ESCO þess efnis að Surtsey verði sett
á heimsminjaskrá. Surtsey mynd-
aðist í eldgosi sem hófst þann 14.
nóvember 1963. „Umsóknin verður
tilbúin fyrir fyrsta febrúar nk. svo
hún komi til álita á næsta fundi UN-
ESC0,“ segir Sigríður Anna Þórðar-
dóttir umhverfisráðherra. Hún segir
Surstsey vera einstakt fyrirbæri.
„Það er til gríðarlega mikið af rann-
sóknum um eyjuna allt frá upphafi
og við vitum mikið um þróunina og
hvernig líf hefur verið að kvikna þar
með árunum." Sigríður segir ferlið
hjá UNESCO vera seinlegt og ætla
má að það taki á annað ár að koma
málinu í gegn. „Þetta hefur í sjálfu
sér ekki miklar breytingar frá því
sem nú er fyrir eyjuna sjálfa. Við
höfum haft þetta þannig að eyjan
er friðlýst og aðgangur að henni er
ekki heimill fyrir almenning, en þar
vega rannsóknarhagsmunir þyngst.
Það stendur ekki til að breyta þeim
Surtsey hóf að myndast 1963
reglum neitt frá því sem nú er, það er
ekki tímabært.“ Signður segir málið
spennandi og hún á ekki von á öðru
en að það fái góðar undirtektir. ■
Lóðaúthlutun á Kópavogstúni:
Flosi Eiríksson kom hvergi
nálægt málsmeðferð
Sagði sigfrá málinu með bókun á vettvangi bæjarráðs um leið og
umsóknarfrestur um lóðirnar rann út
„Ég sagði mig frá þessu máli öllu,“
segir Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi
í Kópavogi og oddviti minnihluta
Samfylkingarinnar, þegar grennsl-
ast var fyrir um aðkomu hans að
úthlutun lóða á Kópavogstúni, sem
greint var frá í Blaðinu í gær. „Eina
umsóknin, sem ég sá varðandi Kópa-
vogstúnið, var mín eigin þegar ég
fyllti hana út.“ Flosi kvaðst hafa
lagt fram bókun um það í bæjarráði
Kópavogs þegar umsóknarfrestur
rann út, þess efnis að hann segði sig
frá allri umfjöllun.
„Ég ætla að byggja mér hús þarna
undir mig og mína fjölskyldu og
þar ætlum við að búa, vonandi um
ókomna tíð, enda hef ég eiginlega
aldrei búið annars staðar en í Vest-
urbæ Kópavogs,“ sagði Flosi í sam-
tali við Blaðið.
Hann sagðist
sjálfur ætla að
taka til hendinni,
endaerFlosihúsa-
smiður að iðn.
Nokkra athygli
hefur vakið að
þrátt fyrir að
hundruð um-
sókna hafi borist
um fimm ein-
býlishúsalóðir
á Kópavogstúni
þótti aðeins ein umsókn tæk fyrir
þrjár af lóðunum. Um þær var því
ekki dregið eins og flestar aðrar
lóðir. Þessar þrjár lóðir, nr. 4, 6 og
8 við Kópavogsbakka, komu í hlut
Emils Þórs Guðmundssonar, sem til
skamms tíma var tæknifræðingur
hjá byggingarfulltrúanum í Kópa-
vogi, Flosa og Björns Inga Sveins-
sonar, sem er náinn vinur Gunnars
I. Birgissonar, bæjarstjóra.
Rétt er að taka fram að í frétt
Blaðsins í gær var rangt farið með
húsnúmer við Kópavogsbakka, en
þau eru eins og greinir að ofan.
Birgir H. Sigurðsson, skipulags-
stjóri Kópavogs, var viðstaddur fund
bæjarráðs þegar umsóknirnar voru
teknar fyrir, en hann vildi ekki tjá
sig um málsmeðferðina á nokkurn
hátt, þegar Blaðið hafði samband
við hann í gær, og vísaði á bæjarstjór-
ann. Ekki náðist í Gunnar I. Birgis-
son í gær. ■
Flosi Eiríksson,
bæjarfulltrúi
í Kópavogi.
Veiðikortið 2006
Kortið gildir sem veiðileyfi
í 23 veiöivötn vítt og breitt
um landið. Veiðikortið er
fjölskylduvænt og stuðlar
að notalegri útiveru.
Ný vötn eru:
- Þingvallavatn fyrir landi
þjóðgarös
- Ljósavatn
- Hraunsfjörður
Nánari upplýsingar um önnur
vötn eru á vef Veiðikortsins
www.veidikortid.is
Gefðu gleðilegt sumar í jólagjöf!
Sölustaðir: ESSO stöðvarnar - veiöibúöir og víðar
Frl heimsending á netpöntunum - www.veidikortid.is
Leiðrétting:
Nafnbirting
í Blaðinu í gær undir liðnum „Hvað
finnst þér“ var farið rangt með
nafn fréttaritstjóra Fréttablaðsins.
Hann heitir að sjálfsögðu Sigurjón
M. Egilsson og er hér með beðist vel-
virðingar á þessum mistökum.
TAKIÐ
AF YKKUR SKÓNA!
Cl
rúmco
Laujtholts\-cRi m 104 Rvk Slmi 568*7900