blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaAÍÖ
Forsetinn heimsækir
Fjölskylduhjálp íslands
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson
kom í opinbera heimsókn í húsa-
kynni Fjölskylduhjálpar íslands, í
gamla fjósinu við Miklatorg, í gær.
Ásgerður Jóna Flosadóttir sagði Fjöl-
skyldhjálpinni mikill heiður sýndur
með heimsókninni. „Forsetinn
hefur sýnt málaflokknum áhuga
í gegnum árin og hann lýsti í gær
ánægju sinni með það starf sem við
vinnum hér,“ sagði Ásgerður. „Við
höfum verið með matarúthlutun
alla miðvikudaga síðan í september
2003. Þetta eru þriðju jólin okkar og
við gerum ráð fyrir að vera með á
milli 250 - 300 fjölskyldur hér hjá
okkur á morgun.“ Að sögn Ásgerðar
hefur Ólafur Jóhann Ólafsson,
rithöfundur gefið 250 hamborgar-
hryggi. „Þetta er annað árið í röð
sem Ólafur styður okkur á þennan
hátt en einnig njótum við aðstoðar
fjölmargra fyrirtækja hér á landi,
en án þeirra væri þetta ekki hægt.“
Ásgerður bætti því við að í dag ætti
að úthluta þeim rúmlega 1500 jóla-
pökkum sem safnast hefðu undir
jólatréð í Kringlunni. „Þetta hefur
verið allveg yndislegt fyrir þessi
jól og það er mjög gaman að geta
hjálpað fólki sem til okkar leitar." ■
Tilraunaverkefni:
Ráðherrar ræstu
vetnisrafal
Tilraunaverkefni var hleypt af stokk-
unum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
í gær. Geir H. Haarde utanríkisráð-
herra og Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra kveiktu á vetnisr-
afli sem er hluti verkefnis verkfræði-
deildar Bandaríkjahers. íslendingar
og Bandaríkjamenn standa sameig-
inlega að verkefninu sem áætlað er
að standi yfir í eitt ár. Markmiðið er
að kanna áreiðanleika vetnisrafals
sem varaafls í breytilegri veðráttu.
Hið breytilega veðurfar hér á landi og
reynsla íslendinga afvetnistirlaunum
réð miklu um staðarval tilraunar-
innar. Það var utanríkisráðuneytið
sem annaðist umndirbúning verkefn-
isins í náinni samvinnu við iðnaðar-
ráðuneytið og íslenska NýOrku, sem
annast mun rekstur rafalsins í sam-
starfi við Bandaríkjamenn. ■
Ómissandi
fyrir allt
áhugafólk
spyrnu
Eldri bœkur
áítilboði
Dagur B. Eggertsson:
Ánægður með viðbrögðin
- segir Ingibjörgu hafa stutt sig til framboðs en ákvörðunin sé að
öðru leyti hans.
Dagur B. Eggertsson segir ákvörðun
sína um að sækjast eftir fyrsta sæt-
inu í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík hafi fengið góð viðbrögð
innan flokksins. Segir Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur hafa stutt hann
til framboðs en ekki hafi verið rætt
um einstök sæti.
Framboðinu vel tekið
Dagur B. Eggertsson kynnti
ákvörðun sína um framboð á sér-
stökum blaðamannafundi í fyrra-
dag. Þá kynnti hann einnig sjö
áherslupunkta undir yfirskriftinni
Nýja Reykjavík. Þar er m.a. lögð
áhersla á að fjölga húsnæðisfram-
boði, auka þjónustu og hrinda af
stað úrbætum í umferðarmálum.
Dagur segir þessa áherslupunkta
ekki vera gagnrýni á gjörðir R-list-
ans heldur sé hann fyrst og fremst
að skýra sínar áherslur. „Núna
þegar ég er að ganga til liðs við Sam-
fylkinguna og fara í prófkjör í fyrsta
skipti þá finnst mér eðlilegt að ég
tali býsna skýrt fyrir hvað ég stend
í stjórnmálum og hverjar mínar
áherslur eru og verða.“
Dagur segir framboð sitt hafa
hlotið góðan hljómgrunn meðal
fólks og margir hafi komið að máli
við hann. „Framboðinu hefur verið
vel tekið og það eru ýmsir sem hafa
séð ástæðu til að ræða við mig á
undanförnum vikum og mér þykir
mjög vænt um það. En ákvörðunin
er auðvitað mín á endanum og eins
það að sækja þar til forystu.“ Þá seg-
ist hann ekki hafa kannað það sér-
staklega hvort framboð hans njóti
stuðnings meðal flokksforystu Sam-
fylkingarinnar. Aðspurður hvort að
framboð hans kæmi til að áeggjan
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur vís-
aði Dagur í orð hennar í fjölmiðlum.
, Hún hefur sagt það sjálf í samtali
við fjölmiðla að hún hafi gert það og
ég get bara staðfest það. Ég held að
formaður flokksins gefi engar stuðn-
ingsyfirlýsingar við einstaka fram-
bjóðendur. Hún lá hins vegar ekkert
á því að hún vildi mjög gjarnan að
ég færi í framboð en ég man ekki
til þess að við höfum verið að ræða
einstök sæti í því og svoleiðis einka-
samtöl er heldur ekkert sem maður
ber á torg.“ ■
Ólafur Magnússon:
Mjólka er ekki á spenanum
.Mjólka ehf. kaupir ríkisstyrkta
mjólk.“ Þetta segja Samtök afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði (SAM)
en tilkynning frá þeim birtist á
vefsíðu Bændasamtaka Islands í gær.
Samtökin segja að tími sé kominn
til þess að leiðrétta þann misskiln-
ing sem komið hefur fram í mál-
flutningi Ólafs Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Mjólku i fjölmiðlum
í tengslum við framleiðslu og sölu á
fetaosti fyrirtækisins. I tilkynning-
unni er bent á að Mjólka hafi fengið
mjólk frá lögbýlinu Brúarreykjum
í Stafholtstungum. Það býli sé með
greiðslumark og því kaupi Mjólka
ríkisstyrkta mjólk og sé því í sömu
sporum og aðrar afurðastöðvar hvað
það varðar. Hitt atriðið sem SAM
benda á er að Mjólka hafi keypt und-
anrennuduft til sinnar framleiðslu
á niðurgreiddu heildsöluverði og
hefur Verðtilfærslusjóður mjólkur
greitt með því dufti sem Mjólka
hefur keypt á árinu. Því hafi aðrar
afurðastöðvar greitt niður hráefnis-
kaup Mjólku. Að mati samtakanna
hefur Mjólka því bæði tekið á móti
ríkisstyrktri mjólk frá framleiðanda
auk þess sem aðrar afurðastöðvar
greiða niður undanrennuduft sem
Mjólka notar til framleiðslu sinnar.
Þeir benda á að hið opinbera inni
engar greiðslur af hendi til mjólkur-
**t -
samlaga hér á landi, það kerfi hafi
verið aflagt árið 1992.
Hundalógík
Ólafur Magnússon framkvæmda-
stjóri Mjólku gefur ekki mikið fyrir
rök SAM. „Kaupið þið þarna á Blað-
inu ekki líka ríkisstyrkta mjólk út í
kaffið?" spyr Ólafur. „Þetta er sama
hundalógíkin. Þá getum við líka
sagt að allar kjötvinnslur og súkku-
laðiverksmiðjur séu ríkisstyrktar.
Þessi rök eru bara ekki svaraverð og
við höfum bara gaman af karlagreyj-
unum.“ Ólafur kallar þetta útúrsnún-
inga og tekur dæmi af undanrennu-
dufti. „Ég er að kaupa mjólkurduftið
á þessu verði sem mér býðst, vegna
þess að ég fæ ekki að kaupa það á
heimsmarkaðsverði, sem er miklu
lægra. Duft sem ég gæti keypt er-
lendis frá er með ofurtollum til þess
að vernda íslenskan landbúnað sem
mjólkursamlögin í landinu og Sam-
tök afurðastöðva eru í forsvari fyrir.
Þetta eru bara menn með vonda sam-
visku sem líður illa yfir þeim ofur-
íjármunum sem til þeirra er varið og
í gegnum tíðina hefur verið sólundað
í þetta kerfi sem hefur verið byggt
upp á sjóðasukki og millifærslum.
Mjólka fær enga fjámuni frá hinu
opinbera og um það snýst málið. Hið
sama verður ekki sagt um samkeppn-
isaðila okkar sem eru búnir að vera á
jötunni hjá ríkinu áratugum saman.“
Ólafur segir að lokum: „Ef þessari
tilkynningu frá SAM var ætlað að
efla stuðning almennings við meiri
styrki, sem við köllum MS, þá tökum
við ekki þátt í því.“ „Mjólka er ekki á
spenanum". ■