blaðið - 21.12.2005, Side 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaAÍÖ
Innflytjendalöggjöf
gagnrýnd
Forseti ogutanríkisráðherraMexíkó eru mótfallnir áformum stjórn-
valda í Bandaríkjunum um að reisa veggi til að stemma stigu við
straumi ólöglegra innflytjenda til landsins.
Luis Ernesto Derbez, utanríkisráðherra Mexíkó, er ósáttur við áform Bandaríkjamanna
um að byggja vegg á nokkrum stöðum meðfram landamærum ríkjanna.
Simpönsum er greinilega margt til lista
lagt.
Verk simpansa
blekkir sér-
fræðing
Þýskur listfræðingur hélt að mál-
verk sem málað var af simpansa
væri í raun eftir þekktan meistara.
Dr. Katja Schneider, safnstjóri lista-
safns í Moritzburg sagði að mál-
verkið væri eftir Ernst Wilhelm Nay,
þekktan listmálara sem meðal ann-
ars hlaut Guggenheim-verðalaunin.
,Það lítur út fyrir að vera eftir Ernst
Wilhelm Nay. Hann var frægur
fyrir litaklessur sem þessar,“ sagði
Schneider og virtist vera viss í sinni
sök. Hún roðnaði því sem karfi er
hún komst að því að í raun og veru
væri verkið eftir Banghi, rúmlega
þrítugan kvensimpansa, sem býr í
dýragarði í grenndinni. Þrátt fyrir
að Banghi hafi gaman að því að
mála hefur henni því miður ekki
auðnast að byggja upp stórt safn
verka þar sem Satscho félagi hennar
eyðileggur þau yfirleitt áður en þau
komast í galleríin. ■
Luis Ernesto Derbez, utanríkisráð-
herra Mexíkó, hefur harkalega gagn-
rýnt áform bandarískra stjórnvalda
um að byggja vegg meðfram hluta af
landamærum ríkjanna. Hann sagði
að þingmenn sem samþykktu frum-
varpið litu framhjá því sem farand-
verkamenn frá Mexíkó og öðrum
löndum leggðu til bandarísks efna-
hagslífs og menningar. Sagði forset-
inn að lagasetningin væri heimsku-
leg og myndi koma niður á öllum.
Á föstudag samþykkti fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings frumvarp
til innflytjendalaga þar sem meðal
annars er kveðið á um að reisa veggi
sem alls verða um mo km að lengd
meðfram landamærunum á vissum
svæðum í Kaliforníu, Arizona,
Nýju Mexíkó og Texas. Samkvæmt
lögunum munu hermenn og lög-
reglumenn hjálpast að við að koma
í veg fyrir að fólk læðist yfir landa-
mærin og atvinnurekendur verða að
ganga úr skugga um að verkamenn
á þeirra vegum séu löglegir innflytj-
endur. Derbez sagðist fullviss um
að frumvarpið yrði ekki samþykkt í
öldungadeild þingsins þar sem það
sé fastara fýrir en fulltrúadeildin.
Tillaga Bush ekki með
Vicente Fox, forseti Mexíkó, segir að
veggurinn sé til skammar en hann
hefur árum saman hvatt til þess að
samið verði um lagalega stöðu Mexí-
kana sem haldi til Bandaríkjanna í
leit að atvinnu. George Bush, Banda-
ríkjaforseti, hefur lagt til að farand-
verkamenn fái landvistarleyfi til
þriggja ára en þingmenn vildu ekki
hafa slíkt ákvæði með í lögunum
sem samþykkt voru í síðustu viku.
Yfirvöld telja að um n milljónir
manna séu í Bandaríkjunum sem
hafi komið þangað með ólöglegum
hætti og um helmingur þeirra séu
Mexíkanar. ■
Schwarzenegger bregst við gagnrýni í Austurríki:
Vill að nafn sitt verði
máð af íþróttaleikvangi
Arnold Schwarzenegger, rikisstjóri
í Kaliforníu, hefur farið fram á það
við borgaryfirvöld í fægðingarborg
sinni, Graz í Austurríki, að nafn
hans verði afmáð af íþróttaleikvangi
borgarinnar. Beiðni ríkisstjórans
kemur í kjölfar þess að stjórnmála-
menn í Graz fóru fram á að leikvang-
urinn fengi nýtt nafn. Með því vildu
þeir bregðast við þeirri ákvörðun
Schwarzeneggers að náða ekki
Stanley „Tookie“ Williams, dauða-
dæmdan fanga og baráttumann
gegn glæpum, sem tekinn var af lífi
í síðustu viku. Mikil andstaða er við
dauðarefsingu í Austurríki.
„Að öllum líkindum mun ég þurfa
i ríkisstjóratíð minni að taka svip-
aðar og jafnerfiðar ákvarðanir. Til
■ að hlífa hinum
ábyrgu stjórn-
| málamönnum
I Graz-borgar
fB við frekari
mktH- áhyggjum, aft-
»“/1 urkalla ég hér
með rétt þeirra
til að nota
Arnold Schwarze- nafn mitt í
negger, ríkisstjóri í tengslum við
Kaliforníu. Liebenauer
leikvanginn,"
skrifaði Schwarzenegger í bréfi
til borgarstjórnar. Leikvangurinn
var nefndur í höfuðið á Hollywood-
stjörnunni árið 1997. Hann fór fram
á að nafn sitt yrði fjarlægt af honum
fyrir árslok. ■
Þingkosningarnar i írak:
Súnnímúslimar
vefengja úrslitin
Kjörráð í írak hefur hafnað kröfu
súnnímúslima um að þingkosningar
i landinu verði endurteknar. Stærsta
kosningabandalag súnnímúslima
í Irak véfengdi fyrstu tölur úr þing-
kosningunum sem fram fóru í síð-
ustu viku og hótaði því að fara fram
á nýjar kosningar. Kosningabanda-
lagið sem er myndað af þremur
öflugum stjórnmálaflokkum
súnnímúslima segir að svindl hafi
Við seljum bílana
www.bilamarkadurinn.is
viðgengist í kosningunum og kosn-
ingalög verið brotin. Samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum sigraði
kosningabandalag sjítamúslima í
kosningunum og hlaut 58% atkvæða
í suðurhluta landsins. Kosninga-
bandalag súnnímúslima hlaut aftur
á móti 18,6%. Eftir á að telja í þeim
héruðum þar sem súnnímúslimar
eru hvað öflugastir.
Leiðtogar súnnímúslima fara
fram á að kjörráð láti athuga úr-
slitin og leiðrétti þau að öðrum
kosti muni það bera fulla ábyrgð á
„kosningasvindli“ sem muni hafa
víðtækar afleiðingar fyrir öryggi og
efnahag landsins. ■
Bensenbrák
berst til
Khabarovsk
Ibúar í borginni Khabarovsk í Rúss-
landi bjuggu sig undir að eiturefna-
brák bærist með ánni Amur til
borgarinnar í gær. Borgarbúar hafa
komið sér upp birgðum af neyslu-
vatni og gert aðrar ráðstafanir.
Hugsanlegt er að skrúfað verði fyrir
vatns- og hitaveitu í borginni í fá-
eina daga vegna mengunarinnar. Bú-
ist var við því að brákin bærist með
ánni Amur til borgarinnar snemma
í morgun. Brákin þekur um 190
km og mun taka nokkra daga fyrir
hana að fara framhjá borginni þar
sem um 580.000 manns búa.
Bæði Rússar og Kínverjar hafa
reynt að draga úr áhrifum mengun-
arinnar með því að byggja stíflur.
Um 100 tonn af eiturefninu bens-
eni láku út í Songhua-fljót í Kína
eftir sprengingu í efnaverksmiðju
þann 13. nóvember en Songhua-fljót
rennur saman við Amur-ána. Eitur-
efnabrákin olli því að skrúfa þurfti
fyrir vatnsveitu í kínversku borg-
inni Harbin í nokkra daga. ■
Sperrbezirk
Skiltum sem þessum verður hugsanlega
komið upp I nokkrum þýskum borgum
og bæjum fyrir heimsmeistaramótið f
knattspyrnu sem fram fer á næsta ári.
Ekkert
vændi hér
Skilti sem á stendur „Engar vændis-
konur hér“ verða hugsanlega reist
í bæjum og borgum i Þýskalandi
fyrir heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu sem fram fer í landinu á
næsta ári. Búist er við að fjölmargar
vændiskonur muni leggja leið sína
til landsins í tengslum við keppnina.
Vændi er löglegt í Þýskalandi en að-
eins á vissum svæðum og skiltunum
er öðrum þræði ætlað að koma í veg
fyrir að knattspyrnuáhangendur
áreiti konur á öðrum svæðum. Jafn-
framt vilja yfirvöld koma í veg fyrir
að þúsundir vændiskvenna sem
koma til landsins muni fara út fyrir
leyfileg svæði. ■
Meintur hryðju-
verkamaður
handtekinn
Maður hefur verið handtekinn í
tengslum við misheppnaðar hryðju-
verkaárásir í London 21. júlí. Breska
lögreglan segir að maðurinn hafi
verið handtekinn þegar hann kom
til landsins frá Eþíópíu. Maðurinn
sem er 23 ára og kemur frá Totten-
ham, fyrir norðan London, er meðal
annars grunaður um að hafa tekið
þátt í undirbúningi tilræðanna.
Maðurinn var færður til yfirheyrslu
á lögreglustöð og leitað var í húsi í
Tottenham. Fjórir menn reyndu að
koma af stað sprengingum í neð-
anjarðarlestum og strætisvagni (
borginni þann 21. júlí en sprengi-
búnaðurinn virkaði ekki. Árásirnar
misheppnuðu áttu sér stað aðeins
tveimur vikum eftir að fjórir menn
urðu sjálfum sér og rúmlega 50
öðrum að bana í svipuðum árásum.