blaðið - 21.12.2005, Page 13

blaðið - 21.12.2005, Page 13
blaðið MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 VÍSINDI I 13 OPTIFL HEILSUDYNA ELEQTA^-, HEILSUDYNA Apar apa ekki, menn apa Ný vefsíða www. toscana.is HÚSGOGNIN FAST EINNIGIHÚSOAGN AVAU HÖPN S: «7» 2535 húsgagnaverslun TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090 HÚSGÖGNIN FÁST EINNIG i HÚSGAGNAVAL, HÖFN 3: 478 2535 Nýlega voru opinberaðar niður- stöður rannsókna þar sem vísinda- menn telja sig hafa sýnt fram á það að mannskepnan api eftir því sem hún sér á meðan sjálfir aparnir læra hluti upp á eigin spýtur. Er kannski kominn tími til að endurskoða mál- tækið um að apa eftir einhverju? Fyrr á árinu var nefnilega birt ritgerð eftir Victoriu Horner og Andrew Whiten, tvo sálfræðinga við hinn virta St. Andrews háskóla i Skotlandi, sem fjallaði um rannsókn þeirra á simpönsum. Rannsóknin snérist um það að vísindamennirnir sýndu ungum simpönsum hvernig ætti að ná mat úr kassa. Kassinn hafði verið málaður svartur og var með opnanlega hurð á annarri hlið sinni. Maturinn var síðan falinn í hólk á bakvið hurðina. Þegar að vísindamennirnir sýndu öpunum hvernig þeir ættu að nálgast matinn þá bættu þeir við ýmsum ónauðsyn- legum skrefum inn í ferlið til að rugla simpansana í ríminu. Sem dæmi þá lömdu þeir alltaf ofan á kassann og lokuðu slagbrandi á kassanum einungis til þess að opna hann aftur. Þegar þeir höfðu gert slíkt opnuðu þeir loksins dyrnar á kassanum og tóku matinn út. Simpansarnir herma ekki Þar sem að simpansarnir gátu ekki séð inní kassann þá vissu þeir ekki að aukaskrefin voru ónauðsynleg til þess að ná matnum út úr kassanum. Þess vegna endurtóku 2/3 hlutar allra þeirra öll skrefin sem vísinda- mennirnir höfðu farið í gegnum þegar þeir voru að nálgast matinn. Næst notuðust vísindamennirnir við glæran kassa með gegnsæjum veggjum. Sú tilraun skilaði allt öðrum og athyglisverðum niður- stöðum. Þá sáu simpansarnir að auka skrefin voru ekki nauðsynleg til þess að nálgast matinn og einfald- lega fóru beint í það að opna dyrnar án þess að snerta slagbrandinn eða berja á kassann. Menn herma Vísindamennirnir snéru sér því- næst að manneskjum. Þeir sýndu 16 börnum á skoskum leikskóla glæra kassann. Eftir að hafa komið límmiða fyrir innan i kassanum þá sýndu þeir börnunum hvernig ætti að ná honum út. Sú aðferð innihélt hið ónauðsynlega bank ofan á kass- ann og lokun/opnun slagbrandsins. Horner og Whiten komu svo lím- miðanum aftur fyrir í kassanum og yfirgáfu herbergið og skildu börnin eftir með þau skilaboð í farteskinu að þau mættu gera hvað sem er til þess að ná límmiðanum aftur úr kassanum. Börnin gátu séð, á al- veg sama hátt og simpansarnir, að bankið og opnun/lokun slagbrands- ins þjónaði engum tilgangi til þess að ná límmiðanum, en samt fram- kvæmdu um 80% þeirra öll skrefin sem vísindamennirnir höfðu sýnt þeim. Niðurstaðan sýndi því að hvatinn til að herma eftir var mun ríkari í börnunum en hjá simpöns- unum. Vísindamennirnir sem framkvæmdu rannsóknina sögðu að niðurstöðurnar bentu eindregið til þess að mannskepnunni sé eðl- islegt að læra hluti og gjörðir með því að stæla þær, jafnvel þótt að öll almenn skynsemi bendi til þess að það sé ekki besta leiðin til þess að læra þá. Simpansarnir einbeittu sér hins vegar miklu frekar að takmark- inu, að ná hlutnum út, fremur en að aðferðinni. Niðurstöður nýlegrar rannsóknar benda til þess aö menn hermi en simpansar læri hvernig eigi að ná takmörkum sínum með sem auðveldustum hætti. Ekki gleyma að... ...láta þér líða vel á jólunum SIGMA verð 3 sæta 86Í0m!| 2 sæta 69.000.- CALEIDO Tilboð 145.000. stærð: 205x270cm 160x2ÖÖ jóTafríboð fOCfCT korfu aklceöi 2+h+2 kr. 99.000 3+h+2 kr. 109.000 SIGMA TUNGUSOFI Tilboð 109.000 MEMORY HEILSUDYNA 160x200 verl 139.000 Nattborö kr 9.200.- kr 9.900.- kr 7.900.- 80x200 iölátilboð frá 69.000.- t.juliusson@vbl.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.