blaðið - 21.12.2005, Qupperneq 16
16 I HEIMSPEKI
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 bla6iö
Vist er jólasveinninn til!
Undanfarna daga hefur merk heim-
spekileg spurning, sem alla jafnan
er aöeins leitað svara viö innan
veggja heimilisins, rataö á síður DV.
Spurningin er sú hvort jólasveinn-
inn sé til. Ritstjóri DV, Jónas Krist-
jánsson, lýsti því yfir í leiðara blaðs
síns í gær, að jólasveinninn væri
ekki til. Blaðið mótmælir þessarri
þröngsýnu og gleðisnauðu skoðun,
því vitaskuld er jólasveinninn til og
gott betur, því þeir eru að minnsta
kosti þrettán og heimildir eru um
þá mun fleiri.
En eftir situr hin heimspekilega
spurning og hún er ekki ný af
nálinni. Árið 1897 skrifaði 8 ára
gömul stúlka, Virginía O'Hanlon,
lesendabréf til dagblaðsins New
York Sun, þar sem hún bað blaðið í
einlægni að segja sér sannleikann
um jólasveininn. Bréfið rataði með
einhverjum hætti á borð ritstjórans
Francis P. Church, sem þótti spurn-
ingin svo brýn, að hann svaraði
Virginíu litlu í forystugrein blaðsins
og tók af öll tvímæli um það að jóla-
sveinninn væri til, þó ekki hefðu
margir séð hann berum augum
eða tekið á. Blaðið getur tekið undir
hvert orð í þessum ríflega aldar-
gamla leiðara og íslenska þýðingu
hans má lesa hér að neöan.
Okkur er það ánægja að svara bréfi til blaðsins skjótt og með svo áber-
andi hætti og viljum um leið láta í ljós þakklæti fyrir að hinn trúfasti
bréfritari skuli fylla vinaflokk blaðsins:
Ég er 8 ára gömul. Sumir af vinum mtnum, sem eru litlir, segja aðjóla-
sveinninn sé ekki til. Pabbi segir oft, „efþað stendur í blaðinu, þá erþað
þannig.“ Viljið þið því vera svo væn ogsegja mérsatt: Er jólasveinninn
til?
Virginia O’Hanlon.
Virginía! Hinir litlu vinir þínir hafa rangt fyrir sér. Þeir hafa orðið fyrir
efasemdum efahyggjutíma og trúa engu nema því, sem þeir sjá. Þeir
halda að ekkert geti verið til, sem er ofvaxið skilningi þeirra litlu huga.
Allir hugar, Virginía, hvort sem er í fullorðnum eða börnum, eru litlir. í
þessum mikla alheimi okkar er maðurinn aðeins skordýr, maur, þegar
við berum greind hans saman við takmarkalausa veröldina umhverfis
okkur og þá greind, sem þarf til þess að skilja allan sannleika og þekk-
ingu heimsins.
Jú, Virginía, víst er jólasveinninn til!
Hann er jafnörugglega til eins og ást og örlæti og trú eru til. Þú veist
að nóg er af því öllu og einmitt það gefur lífi þínu mesta fegurð og gleði.
Æ, hversu dapurlegur væri þessi heimur ef jólasveinninn væri ekki til!
Hann væri ámóta dapurlegur og ef engar Virginíur væru til. Þá væri
ekki til nein barnsleg trú, enginn skáldskapur og enginn kærleikur til
þess að gera þessa tilveru bærilega. Við hefðum enga ánægju nema þá,
sem skilningarvitin nema. Hið ytra ljós, sem bernskan fyllir heiminn
með, yrði slökkt.
Að trúa ekki á jólasveininn?! Maður gæti allt eins sleppt því að trúa
á álfa. Þú gætir fengið hann pabba þinn til þess að ráða til sín menn til
þess að fylgjast með öllum reykháfunum á aðfangadagskvöld í von um
að fanga jólasveininn, en jafnvel þó svo þú sæir ekki jólasveininn koma
niður, hvað myndi það sanna? Enginn sér jólasveininn, en það er engin
sönnun þess að hann sé ekki til. Raunverulegustu hlutir í heimi eru
þeir, sem hvorki fullorðnir né börn geta séð. Hefurðu einhverntíman
séð álfadans? Auðvitað ekki, en það er engin sönnun þess að þeir dansi
ekki. Enginn getur skilið eða ímyndað sér öll óséð og ósýnileg undur
veraldarinnar.
Þú getur tekið hringlu barnsins í sundur til þess að sjá hvað veldur
hávaðanum í henni, en það er hula yfir hinni óséðu veröld, sem sterk-
asti maður heims og ekki einu sinni sameinaðir kraftar allra sterkra
manna, sem lifað hafa, gætu svipt burtu. Aðeins trú, skáldskapur, ást
og kærleikur geta dregið tjaldið frá og birt okkur yfirnáttúrlega fegurð-
ina og dýrðina handan við það. Er það allt raunverulegt? Virginía, í
þessari veröld allri er ekkert annað raunverulegt og varanlegt.
Enginn jólasveinn? Guði sé lof að hann lifir og lifir að eilífu. Eftir
þúsund ár, Virginía, nei, tíu sinnum 10.000 ár, mun jólasveinninn enn
halda áfram að gleðja hjarta bernskunnar.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!!!!
^ cy*v\ r *
...
sUytEut-xdAV**
Iií Tliere a Santn Clttus?
We tuke pleonuré in answérlnK at once
nnd thu» pronUneutly tho couimunicntion
Ixilow, cxpresBlng nt the naxnc tlmo our
grent grnllficatiou tliat itK falthfnl nuthor
Ib nunihcred tuuong thr fritsnds of TtosSl’X:
"PCAH ttcrrom I am H rt <il<1.
••Someot uijr llttlfl fneml* t-Cem 1« noS»nt«
CUu i.
*• r»p» »»v» • If jrou *e* It m Tlie Srs H’« «o.'
“ ÍTo&m tftl! tlie ir-.Jf ii. 1» Ihere aSauta CI*u»?
•* Via.iiii* o’Hamæx.
•* U6 Worr Nnarr-nrTii tmteitT."
ViRotNtA. your littlo frlcnds aro wrong.
They have hcun affcctctt by thes «koptiei»ut
of n skcplical age. They do not Ueiiero
oxccpt tiioy »eo. Thoy thlnk that nothing
ran Im which 1» not comprehcnaibio by
tbeir llttl-s inlnds. AU miuda, Viroinia,
whother tbey ho. men s or cliildron'it. aro
little. In tbia great univorse of ours mau
i» a mcre innect. an ant, in bi» Intelltíct, «s
coinparcd witb tbo boundleas vrorld ubout
hlm, as meaJRU.*etl by tl.e Intelligeuco capa-
blo of graapiug the whoit* of trutb tu»d
knowlcdge.
Ycii, VmotWtA, thero is a Santa Olaua.
He exinta aa ccrlainl v a» icvo antl gcneros-
Ity and dovotion e.xist, nnd you know tbat-
they abouud aml give ,to your llío its higli*
eat beauty and joy. Aias I bow dreary
vvould be tho worid if tbore wcre no Sant*
Claun. lt vvould bo na drcary as If thero
wcro no VtBOltOAS. Tltere wouid be ne>
cblldlikefaitb theu, no poetry, uo romauce
to mnko toierable thls cxlstencc. We
ahould have uo enjoynien';, except In seuso
and sight. Thc eternal llghfc with which
chiidhood lillM tlie world would ku ox-
tingnlahed.
Not bellovo In Sunta C'.ausl You tnight
as wcll uot belicve tu fniricn! You inlght
gct your papa fo hirr mcu to watch in all
the chimueys on Cliristmaa Bvc to catch
Santa CJaus, but even if they did not see
Santa Clauscomingdown, wbat would that
proviif Nobody sees Santn Cianx, but that
is no slgn tluit there is no Sonta Ciaus.
Tfaemost real thlngs In tlio world urc tliosc
that nelther rfiildrcn nor men cnn we. l)id
you ever #w fairies dancing on thc litw nf
Ot eourse not, but that'n no proof that they
aro not therc. Ndboily can coucclve or
iruagine nil ,t)ie wonders thero nrounsccn
ond unseeable Iti the uorld.
You may tear apart thti baby’s rntllc and
see whut makes thu nolse Inside, but there
1« a veil eovering tho unsccn world wliich
not thoHtrongeet mnn, nor even tho uulted
strcugth o£ all tho strongeat men thut ever
livsd, could tear ftpait. Only faith, fitucy,
poetry, love, roraance, can push nsidc tbot-
curtain and view and plcture Oit* supernnl
beauty nnd glory beyond. 1» it all rcnlí
Ah, VlROINlA, ln ftll thls worlil there i»
nothing else real and nbiding.
No Smxta Claus 1 Tlumk God! lio iíves.
nnd he llvcs íorover. A ihoufuwid ycars
from now, Viuoinia, nay, ten tlmea U*n
thousand years from now, he wlll continue
to make giad the hoart of chiidhood.
Vl
L/UtTILBOÐ
aðeins
wm mmm
kr. á mann
1190 kr.
5777000
Hraunbær 121
Tilboöiö gildir alla virka daga
frákl 11:00 til 17:00