blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 28
28 I TÆKI OG TÓL
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaöiö
Móna Lísa
hamingjusöm
Nú hefur tæknin verið nýtt 1 það að útskýra hið leyndardómsfulla hálf-
bros sem prýðir frægasta málverk sögunnar, Mónu Lísu. Hollenskir vís-
indamenn segja Mónu brosa vegna þess að hún hafi verið hamingju-
söm, nánar tiltekið 83% hamingjusöm.
Nýstárleg tækni
í þessari skemmtilegu notkun á
tækninni þá skönnuðu vísinda-
menn frá háskólanum í Amsterdam
eftirprentun af þessu meistaraverki
Leonardo da Vinci’s og greindu
hana í nýstárlegum hugbúnaði er
kallast „emotion recognition,“ eða
tilfinningakennsl á íslensku. Hug-
búnaðinn hönnuðu hollensku vís-
indamennirnir i samstarfi við koll-
ega sína við háskólann í Illinois í
Bandaríkjunum.
Niðurstöðurnar sýndu að hin
fræga fyrirmynd málverksins var
83% hamingjusöm, 9% ofboðið, 6%
hrædd og 2% reið. Þá var hún minna
en 1% hlutlaus og ekki vitund hissa.
Svarar ekki goðsögninni
Harro Stokman, prófessor við há-
skólann í Amsterdam, sem tók þátt
í tilrauninni viðurkenndi fúslega
að vísndamennirnir gerðu sér grein
fyrir að niðurstöðurnar yrðu óvís-
indalegar, sérstaklega þar sem að
hugbúnaðurinn sem notast var við
er ekki til þess gerður að greina
duldar og óræðar tilfinningar. Það
gat því ekki numið þá kynferðislegu
falboðningu sem margir áhuga-
menn um málverkið lesið úr augum
Mónu Lísu. Þar að auki er þessi
tækni fyrst og fremst hönnuð til að
greina nútímalegar stafrænar kvik-
og ljósmyndir og þarf viðfangsefni
hverrar greiningar að vera skannað
inn í hugbúnaðinn í hlutlausu og
tilfinningalausu ástandi til þess
að hægt verði að nema tilfinningar
þeirra af einhverri marktækni.
Endursköpuðu andlitið
Vísindamennirnir tókust þó á við
þetta verkefni af fullri alvöru og
notuðu andlit tíu kvenna af mið-
jarðarhafsuppruna til þess að end-
urskapa eins nákvæma útgáfu af
andliti Mónu Lísu og mögulegt var.
Þeir báru síðan endurskapaða and-
litið saman við málverkið fræga.
Stokman segir að þetta virki ekki
ósvipað því og að kasta köngulóar-
vef yfir andlitið og brjóta það síðan
niður í litlar einingar. Síðan eru
borinn saman mismunur á útvíkun
nasa eða dýpt hrukkanna í kringum
augun. Hann sagðist sannfærður
um að fyrst niðurstöður þeirra væru
svona afgerandi þá væri það klárt í
sínum huga að viðfangsefni mál-
verksins, Móna Lísa, væri bullandi
hamingjusöm.
Xbox og MSN
í eina sæng
Tölvuleikjaáhugamönnum verður
bráðlega gert kleift að fá tilkynn-
ingar í farsímann sinn þegar að
vinir þeirra spila leiki á Xbox 360
leikjatölvuna frá Microsoft. Hug-
búnaðarrisinn er að vinna að þróun
kerfis sem gerir þeim sem eru að
spila í tölvunni á Netinu í gegnum
netleikjaþjónustu þeirra, Xbox live,
mögulegt að senda skilaboð í far-
síma vina sinna.
TAKIÐ
AF YKKUR SKÓNAÍ
u
rúmco
íu 104 Rvfc Sfani 568-7900
Á heimasíðu breska rikissjón-
varpsins, BBC, kemur fram að þessi
þróun sé hluti af áætlunum Micro-
soft til að tengja saman þær mörgu
þjónustur sem fyrirtækið rekur
á Netinu. Jason Langridge, tals-
maður Microsoft í Bretlandi, sagði
að til stæði að tengja Xbox Live við
skilaboðaskjóðu Microsoft, MSN
messenger.
MSN messenger er hluti af sam-
anþjöppuðum hugbúnaðarpakka
úr Windows stýrikerfinu sem mun
rúmast í farsímum. Þannig verður
hægt að ræsa MSN messenger á
farsimanum sínum og mögulegt
að skoða hotmail-póstinn sinn. Til-
kynningarnar um spilamennsku
mundu síðan berast yfir Netið í
gegnum Xbox live og birtast í far-
sima hins aðilans sem skilaboð á
MSN messenger. Þjónustan er ekki
tilbúin til þess að fara á almennan
markað en Langridge segir að ekki
sé langt í það. „Þetta gætu verið
um það bil sex mánuðir eða svo.”
t.juliusson@bladid.net
Bill Gates og félagar hjá Microsoft eru hættir að framleiða veraldarvefsvafra fyrir tölvur helsta samkeppnisaðila síns.
Hœtt að íramleiða
Internet Explorer
vafrann fyrir Mac tölvur
Microsoft hefur ráðlagt öllum Apple
Mac notendum sem notast hafa við
Internet Explorer vafrann að skipta
yfir í aðra vafra, t.d. Safari frá Apple,
Firefox eða hinn Islandstengda
Opera. Þessar ráðleggingar komu
í kjölfar yfirlýsingar þess efnis að
hugbúnaðarrisinn hyggist hætta að
framleiða Internet Explorer fyrir
Apple Mac tölvur. Engar fleiri örygg-
isendurnýjanir eða viðbætur verða
framleiddar fyrir vafrann frá og með
komandi áramótum. Vafrinn sjálfur
verður fjarlægður af Mactopia heima-
síðu Microsoft og því munu Mac eig-
endur ekki lengur geta sótt hann á
tölvur sínar.
Aðrir möguleikar í stöðunni
Núverandi útgáfa af Internet
Explorer fyrir Mac tölvur er um
þriggja ára gömul, sem gerir hana
úrelta í samanburði við þann Int-
ernet Explorer vafra er fylgir með
Windows stýrikerfinu. Microsoft
hafði tilkynnt það í júní síðast-
liðnum að þeir hefðu hætt þróun á
vafranum fyrir Mac tölvur og reka
nú síðasta naglann i líkkistu þess
samstarfs. Vafrinn sjálfur verður
ekki lengur boðinn til niðurhals
eftir 31. janúar næstkomandi. Einu
fyrirsjáanlegu vandkvæði sem
þessi ákvörðun gæti bakað Mac not-
endum er að þeir komast ekki inn
á heimasíður sem eru sérstaklega
hannaðar fyrir Internet Explorer
vafrann. Það vandamál gæti verið
víðfeðmara en marga grunar því að
netkönnunarfyrirtækið SciVisum
kannaði 100 breskar heimasíður í
júní síðastliðnum og kom þá í ljós að
10% þeirra virkuðu ekki þegar reynt
var að skoða þær í Firefox.
t.juliusson@bladid.net