blaðið - 21.12.2005, Síða 34

blaðið - 21.12.2005, Síða 34
34 I TÓMLIST MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaöiö Rjóminnfleyttur: íslenskir tónspekingar opna sig á Veraldarvefnum Á Veraldarvefnum er að finna fjölda íslenskra vefsíðna er láta sig varða um tónlist og það er henni viðkemur. Eru margar þeirra ansi hreint frambærilegar og metnaðarfullar sem vel má eyða löngum stundum við lestur (og jafnvel hlustun) á, þó aðrar séu verri líkt og gengur og gerist. Hér eru þrjár slíkar teknar til umfjöllunar en á hlekkjasíðum þeirra má rekja sig lengra áfram á hinu íslenska tónlistarneti, hvar margt er um dýrðir af ýmsu tagi. Bland í poka á Mixteipi Palla Börn síðustu þriggja áratuga tutt- ugustu aldar ættu vel að muna eftir ,mixteipunum“ svokölluðu; kass- ettum sem fólk tók upp hvert fyrir annað (þá eða sjálft sig) og á var að finna blöndu af því besta úr tónlist- arsafni framleiðandans. Valið var jafnan vandað gífurlega og oft fylgdu herlegheitunum fagurlega skreyttir bleðlar með nákvæmum lagalistum. Ákveðin fagurfræði var við lýði í þessum efnum og sumir lögðu mikinn metnað í sínar blöndur. Þessa dagana brenna unglingarnir geisladiska fyrir hvert annað og er það vel, en margir sakna hinsvegar kasettnanna og þeirra möguleika sem þær höfðu upp á að bjóða (þá sérstaklega skiptingu þeirra í tvær hliðar, nokkuð sem gagnaðist vel ef sérstakt þema voru við lýði). Einn þeirra er Reykvíkingurinn frækni Páll Hilmarsson, sem opnaði ný- verið síðu tileinkaða mixteipunum og þeirra töfrum, www.mixteip.net. Gefst þar áhugasömum kostur á því að búa til mixkassettu og senda Páli ásamt glósum um þema hennar og lögin þar á, en hann sér um að koma þeim á rafrænt form og á síðuna til niðurhals. Segir Páll í kynning- artexta síðunnar að ástæða hennar sé m.a. sú að hann sakni þess að sitja við græjurnar, fara gegnum plötusafnið og velja á spólu - það sé skemmtilegri iðja en að búa til „pleilista“ í tölv- unni á fimm mínútum: „Það var heilmikil vinna að taka upp spólu, það þurfti að velja lögin ákaflega vandlega því að spólan var í sjálfu sér skilaboð til viðtak- andans og átti að kalla fram einhverjar sérstakar tilfinn- ingar.“ Þegar hafa margir þekktir tónspekingar skilað inn kassettum, má þar t.d. nefna tónlistarmennina Þóri (hann velur uppáhaldslögin sín á spóluna) og Dr. Gunna (sem hefur þemað „Tvítugsafmæli Dr. Gunna“ að leiðarljósi). Metnaðarfull umfjöllum um íslenska og erlenda tónlist Fyrir skemmstu hleypti hópur að því er virðist einlægs íslensks tón- listaráhugafólks af stokkunum nýju vefriti um tónlist og öllu er henni við- kemur. Nefnist ritið Rjóminn, www. rjominn.is (nafnið er sennilega vísan í hinn volduga Sýrða rjóma, sem er til umfjöllunar hér að neðan) og birtast þar daglega plötudómar, auk greina og viðtala er varða hið ansi mikilvæga viðfangsefni þess. Þar má t.a.m. lesa ansi fróðlega grein um nýsjálenska tón- lætur. Rjóminn líður þó nokkuð fyrir ungan aldur sinn og er langt í frá fullkominn. Hinsvegar ber að fagna öllum tilraunum til þess að fjalla um íslenskt tónlistarlíf á vitrænan hátt - umræðan einskorð- ast allt of oft við „nýjasta plöggið“: tónlistarmenn koma í heimsókn, sína leið list frá 9. áratug síð- ustu aldar, dóm um útgáfutónleika Diktu og viðtöl við hina og þessa tón- listarmenn sem sumir hverjir hafa frá ýmsu að segja. Verkefnið er ansi metnaðarfullt; svo virðist sem Rjóminn sæki sínar fyr- irmyndir til vönduðustu og virtustu tónlistarvefrita heims og stenst jafn- vel samanburð við þau þegar best segja frá plötu eða anlegum leikum og halda svo og Rjóminn virðist hafa nýrri vænt- tón- skýran metnað til þess. Sýrði rjóminn lifir að eilífu Útvarpsþátturinn Sýrður rjómi var alla sína tíð einn sá besti og ævin- týragjarnasti á landinu, bæði hvað varðaði tónlistarval og framsetn- ingu. Einbeittu þáttastjórnendur sér að því að spila allt það besta og framsæknasta í popp og rokktónlist á hverjum tíma fyrir sig og afrekuðu þeir að kynna fyrstir fyrir landanum ýmsa flytjendur sem síðar hafa náð ansi langt á sínu sviði. Mætti þar t.d. nefna hljómsveitina Sigur Rós, en einnig svo margar fleiri. Sýrður rjómi átti síðustu árin heima á Rás 2, en hefur ekki verið í loftinu í ára- bil eftir að misvitrir stjórnendur þeirrar stöðvar í> ákváðu að tím- anum sem Rjóm- anum var úthlut- aður væri betur varið í annað. Til allrar ham- ingju tók Rjóma- stjórinn Árni súri til sinna ráða £ og kom sér upp svokallaðri mp3- bloggsíðu á Net- inu og heldur með aðstoð hennar áfram að kynna íslendingum fram- bærilega músík af ýmsum toga. Er þar hægt að hlaða niður lögum og lesa fróðleik um þau um leið. Verður þetta að teljast hin besta þjónusta og ' ar að auki virðulegt framtak hjá rna, enda auðveldara að rata um í síbreytilegu hafi popptónlistar með stýrimenn eins oghann við stjórnvöl- inn. Slóð síðunnar er www.syrdurrj- omi.blogspot.com og mælir Blaðið eindregið með heimsókn þangað. haukur@bladid.net ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Opið: Mán-Fös: 10-22 Lau-Sun: 10-22 Opið til kl. 22:00 Alla daga fram að Jólum! Farfisa Hljómborð 49 Miðtungsstúrar rióhjr, 100 «ÍÓO & 24 Trommutaktar meft H!)ðmsve«. Klassískur Gítar Poki, Stilliflauta, Auka Strengjasett, Kr. 7.900,- Kr. 10.900,- Þjóðlagagítar Poki, Ól, Gítarneglur, Stilliflauta, Auka Strengjasett. DVD Kennslumyndband. 4* Kr. 12.! Rafmagnsgítar 10 W MagnanTPoki, ÖT, á agr Snúra, Gítarneglur Stilliflauta, Kennslubók. Kr. 18.900,- MAPEX Trommusett Með Trommustól & Trommukjuðum r* Kr. 49.900,- M m WT'B * Farfisa Hljómborð 32 Miðlungsstórar rfótur, 15 Hljóð_n & 100 Trommutaktar með I Kr. 4.900,- Þjóðlagagítar/p.c Poki, Ól, Stilliflauta, Gítameglur. Kr. 19.900,- Rafmagnsbassi 10 W MagnanTPoki, Ól, Snúra, Gitameglur, Heyniatól. 'CatiiThí-.wÍK M,WATT . tumtKV ... wggtiam— Kr. 29.900,- 15 W Magnari, Poki, Ól, Snúra, Gitameglur, Stillitæki. Kr. 22.900,- Stórhöfða 27 • Sími: 552-2125 • www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is ii ★ ÍK * ★ ★ ★ ★ ★ * * * ★ ★ * ★ * ★ * ★ ★ ★ * ★ ★ ★ ★ * * ★ ★ ★ ★

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.