blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 40

blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 40
40 I AFPREYING MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaðið Þessi jólin er ljóst að fjölmargir munu brosa breitt þegar þeir opna pakkana sína og sjá annað hvort hina nýju handleikja- tölvu Sony, PlayStationPortable, eða flagg- skip Nintendo, Nintendo DS. Kostir Hvor vél hefur sína kosti og er ljóst að fólk þarf að vanda valið þegar gjöf er keypt. PlayStationPortable hefur höfðað til eldri hóps og er markaðssett að mörgu leyti sem framhaldsvél fyrir PlayStation 2. Að sama skapi er Nintendo DS frekar ætluð yngri aldurshópi og e.t.v. breiðari hópi en Nintendo. Munur Báðar vélarnar eru mjög frambærilegar og stórskemmtilegt er að leika sér með þær. Aðalmunurinn á þessum tveimur tölvum er annars vegar að PSP er í raun allsherjar gagnaveita þar sem hægt er að spila tölvuleiki, kvikmyndir, tónlist og vafra um á þráðlausu neti með henni. Nintendo DS er aftur á móti mun meira leiktæki og töluvert gagnvirkari þar sem hún státar af tvöföldum skjá og er annar þeirra snertiskjár sem býður upp á alls konar skemmtilega möguleika. Helsm ieihfr í handfölvurnor ds' Það eru bó tveir þeirra sem fá það Barist um yfírráð Nintendo og Sony berjast harðri baráttu um hylli neytenda á markaði handhægra leikjatölva. Aðrir eiga ekki roð í risana. A Ekki aislæmt Það er ljótt að segja að Bull- etproof sé með öllu slæmur leikur. Það eru nefnilega þrir góðir punktar sem einhver verður að fá hrós fyrir. í fyrsta lagi er grafíkin mjög flott. Þ.e.a.s. útlitið á karakterunum í leiknum er mjög raunveru- legt. Til dæmis er 50 sjálfur nákvæmlega eins og hann er í myndböndunum sínum og Dr. Dre og Eminem í gestahlut- verkum gætu eins verið teknir upp á vídeó. í öðru og þriðja lagi eru tvær góðar hugmyndir. Annars vegar að í nálægð getur 50 drepið menn með alls konar frumlegum aðferðum (stinga í augað, skera á hol, afvopna o.s.frv.). Hins vegar er hægt að sjá hausa splundr- ast á mjög raunverulegan hátt ef maður nær að miða nákvæmlega á hausinn. Það slæma er þó að sjaldnast gefst tími til að miða almennilega. Þegar öllu er á botninn hvolft verður maður að vona að sem fæstir láti glepjast og kaupi þennan leik. Best væri ef hann gleymdist um alia eilífð. PlayStation 2 Best: Grafíkin er flott Verst: Ekki hægt að spila leikinn. agnar. burgess@vbl. is 50 Cent: Bulletproof: ★ Hvar var tíunda kúlan? Hvort sem þú ert aðdáandi tölvuleikja eða sjálfs rappar- ans muntu verða fyrir von- brigðum með þennan leik. Núerdeginum ljósara að 50 Cent er lítið annað en það sem kallað er „sellout" á enska tungu. Með þessum leik spilar hann end- anlega út og er greini- legt að ein- hver vill njóta góðs af því að nafnið hans er vin- sælt (lesist: söluvænt). Leikurinn byrjar á því að maður fer í einhvern óskiljan- legan bardaga þar sem maður er lóðsaður áfram í stuttum skrefum og þarf að skjóta alveg fullt af hermönnum í húsa- sundum. Ekki veit ég almenni- lega hvað allur bandaríski her- inn var að vilja í húsasundin en það verður að liggja milli hluta. Þegar maður loksins er að klára leikinn kemur einhver villingur þó og skýtur mann níu sinnum í bakið, rétt eins og sagan segir að hafi komið fyrir 50 Cent í alvörunni. Það besta er að þá er löngu búið að skjóta mann mun oftar þar sem það er gjörsamlega ómögulegt að hitta almennilega eins og leikurinn er gerður. I raun er mjög fátt hægt að gera í leiknum þar sem söguþráðurinn er vægast sagt illa skrifaður og öll stjórnun á 50 Cent er hörmuleg. Ég meina, fyrir hvern tekur það sjö sek- úndur að líta aftur fyrir sig? Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum írá 1 -9 lárétt og lóðrétt i reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Vissir þú.. ..að orðið Google er komið frá orðinu googol sem táknar eitt hundrað núll í kjölfarið af í. Hugtakið var upphaflega búið til af stærðfræðingnum Edward Kasner og varð vinsælt í kjölfar útgáfu bókar hans „Stærðfræðin og ímyndurn- araflið“. Google segir þetta lýsa markmiði fyrirtækisins fyllilega, að koma skipulagi á þær gífurlegu upplýsingar sem finna má á Netinu. Lausn á siðustu þraut Grand Theft Auto: Liberty City Stories Fáir leikir - ef einhverjir - eru jafn- umdeildir og GTA leikirnir. Aðal- ástæðan er líklega hversu gífurlega vinsælir þeir eru. Ástæðan fyrir þvi er góð þar sem fáir leikir eru jafn- góðir. GTA fyrir PSP er góð sýning á því hvers megnug vélin er vegna þess að öll grafík er mun betri en fólk á að venjast í svo lítilli tölvu. Það má fastlega búast við því að þetta verði einn vinsælasti leikur- inn í ár. Nintendogs Þessi dýraleikur nýtir sér sérkenni DS vélarinnar til fullnustu. Hann krefst þess að maður fari út að ganga með hundinn og haldi í ólina með snertiskjánum en einnig þarf maður að skipa hundinum fyrir með því að nota innbyggðan hljóð- nema. Leikurinn hefur verið gífur- lega vinsæll um allan heim enda hefur hann hvort tveggja uppeldis- gildi og er stórskemmtilegur. 7 1 8 8 6 5 1 9 6 9 1 6 2 7 5 8 9 3 4 6 5 7 3 2 3 4 2 5 8 9 4 1 3 7 6 3 4 6 2 7 8 9 5 1 1 7 9 3 5 6 8 4 2 4 6 2 8 1 9 5 3 7 7 9 3 4 2 5 1 6 8 8 1 5 7 6 3 2 9 4 5 2 7 1 9 4 6 8 3 6 3 4 5 8 2 7 1 9 9 8 1 6 3 7 4 2 5 109 SU DOKU talnaþrautir Skráðu bílinn á www.bilamarkadurinn.is 46 S •

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.