blaðið - 21.12.2005, Page 46

blaðið - 21.12.2005, Page 46
46 I FÖLK MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaðið TEKUR EKKI PÁTT í PESSARI VITLEYSU Þegar Smáborgarinn var lítill var alltaf ákveðið tilhlökkunarefni þegar jóla- mánuðurinn rann upp. Þá byrjuðu jóla- Ijós að skjóta upp kollinum, jólalög að hljóma í útvarpinu og hinar og þessar uppákomur út um allan bæ sem styttu biðina eftir jólunum. Smáborgarinn var afskaplega sátturvið þetta, og varsann- kallað jólabarn á fyrstu árum ævi sinnar, eins og líklega flestir eru. Þetta eltist þó af honum, og eru fyrir því nokkrar ástæður. Bæði var það að sakleysi barnæskunnar hvarf á braut, en einnig fannst Smáborgaranum að áherslurnar í þjóðfélaginu væru að breytast. Það sem einu sinni þótti temmilegur fjöldi jólasería og aðventuljósa þykir í dag nær óskreytt hús, og týnist í birtunni af þeim húsum sem eru skreytt sam- kvæmt nýju aðferðinni. ( jólaskreyt- ingum hefur nefnilega, eins og á svo mörgum stöðum, þróunin orðið „magn en ekki gæði". Smáborgarinn veltir því furðu lostinn fyrir sér hver ástæðan sé fyrir þessari þróun. (slendingar eru svo sannarlega úr takti við margar aðrar Evrópuþjóðir þegar kemur að þessari ofgnótt í öllu mögulegu, og engin rök eru fyrir fjölgun jólaljósa fram úr öllu viti. Hvernig er reyndar hægt að beita rökhugsun þegar kemur að jólaljós- um? Þau eru upphaflega hugsuð til að brjóta upp myrkustu mánuði ársins, og veita Ijósi inní líf fólks yfir hátíð Ijóssins. Það er ekki þar með sagt að allt verði betra ef fólk tekur sig til og lætur upp bo seríur og io aðventuljós; ekkertfrekaren þaðværi gaman ef eng- inn setti nein Ijós upp. Þarna á milli er greinilegur millivegur sem mörgum ná- grönnum okkar í nærliggjandi löndum reynist auðvelt að feta, en (slendingum reynist gjörsamlega ómögulegt. Hjá okkur er allt í hæl eða hnakka, svart eða hvítt, allt eða ekkert. Og nú er stóra spurningin: Hvernig í ósköpunum stendur á þessu? Hjá Smáborgaranum eru tvær seríur, þar af ein heils-árs, og mikið af lifandi kertaljósum um þessi jól. Honum dettur ekki í hug að kaupa maríu-og-jósep-með-jesúbarnið-í-jöt- unni-líkneski til að hafa upp á þaki, eða jólasveinalest sem blikkar, býður gleði- leg jól, hellir upp á kaffi, og er einnig þjófavörn og gervihnattamóttakari. Hann telur sig vel geta verið án þess, og er sannfærður um að jólin komi þótt hann taki ekki þátt í þessari vitleysu. HVAÐ FINNST ÞÉR? Stúfur, jólasveinn. Ertu ekki örugglega til? „Ég skil nú ekki hvert maðurinn er að fara með þessu bulli. Það er degin- um ljósara að við bræðurnir erum til eins og þú sérð. Það er ekki hægt að segja það sama um manninn sem þessi Flóki er að vinna fyrir, eða hefur þú hitt þennan Guð sem þessir prestar eru alltaf að tala um? Ég hef aldrei hitt kauða, og enginn bræðra minna heldur. Þetta kemur því úr hörðustu átt þykir mér.“ Séra Flóki Kristinsson hélt því fram við hóp sex ára barna að jólasveinninn væri ekki til. Peter líkar ekki við drukkna Jordan Peter Andre hefur látið í veðri vaka að honum líki ekki allskostar vel er konan hans Jordan verður full. Hann segir að þegar hún sé drukk- in minni hún hann á villta fortíð hennar. Hann sagði í viðtali við Star: „Sama hvað hún segir er mér alveg sama þótt hún fái sér aðeins í glas, því það hjálpar henni að slaka á. Hins vegar líkar mér ekki þegar hún verður full, því þá verður hún annar karakter, og minnir mig á fortíðina sem var ekki góð.“ Sharon minnkar brjóstin Sharon Osbourne ætlar að láta minnka á sér brjóstin, og það aðeins 6 mánuðum eftir að þau voru stækkuð. Hún fór í brjóstastækkun í júlí til að fá þau úr stærð 32C upp í 34DD. Hún sagði við það tilefni: „Ég er mjög glöð að til eru góðir skurðlæknar, því ég vil ekki að geirvörturnar mínar séu í sífelldri leit að klinki á götunni.“ Nú virðist þó annað hljóð í strokknum, því þrátt fyrir að hún sé búin að eyða 300 þúsund pundum í fegrunaraðgerðir, þar sem rassi og brjóstum var lift, andlit- inu líka og fita soguð, ætlar hún að minnka brjóstin aftur. „Mér líkar ekki við brjóstin lengur, þau eru of stór!“, segir Sharon. „Ég ætla að láta breyta þeim aftur. Ozzy líkar vel við þau eins og þau eru, en þau eru bara of stór. Þau eru mjög þung.“ Charlize vill ekkert með Bond hafa Charlize Theron hefur afþakkað boð um að leika næstu Bond-stúlku. Ósk- arsverðlaunahafinn neitaði hlutverkinu í næstu Bond-mynd, Casino Royale. Samkvæmt blaðinu The Sun er hún nýjasta stórstjarnan til að afþakka boðið, og fetar þar í fótspor Angelinu Jolie og Scarlett Johansson. Framleiðendur hafa nú bara um mánuð til að finna Bond-stúlku til að leika gegn Daniel Craig. 'X»'J /i' Alla virka claga milli 12 og 14 Útvarpsþáttur um íþróttir XFM 5.FM91.9 EYKJAVIK auglysingar@vbl.is Þessi náungi er eitthvað að misskilja orðið tannfé. HEYRST HEFUR... Ohætt er að segja að Dagur B. Egg- ertssonhafilýst ómenguðu van- trausti á störf Reykjavíkurl- istans og pólitískrar fóstru sinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, þegar hann lýsti yfir framboði sínu í efsta sæti á lista Samfylkingarinnar í væntanlegu prófkjöri. Kjörorð Dags er nefnilega svohljóðandi: „Nýja Reykja- vík - kraftmikil, skemmtileg, ör- ugg og heilbrigð.“ Varla er hægt að álykta annað af þessu en Dagur sé beinlínis að taka undir með Sjálfstæðisflokknum um að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi skilið þannig við Reykja- vík að það þurfi bókstaflega nýja höfuðborg eftir níu ára borgarstjóratíð hennar. Sömu- leiðis munu andstæðingar Dags líka hamra á því að kjör- orð hans bendi eindregið til að borgarstjóraefnið telji að Reykj- avíkurlistinn skilji við borgina þannig að hún sé hvorki kraft- mikil, skemmtileg, örugg né heilbrigð - því ella þyrfti hans varla við til að tryggja borginni þessa eiginleika... m Ahugamenn um skák komu auga á ný- breytni á heima- síðu Hróksins (www.hrokurinn. is) á dögunum, því þar er birt í heild sinni nýj- asta prédikun síra Sigríðar Guðmarsdóttur, sóknarprests í Grafarvogi, þar sem hún fjall- aði meðal annars um gjafmildi og þakklæti. Það er ekki alger tilviljun, því hún gerði starf Hróksins að umtalsefni: „Égkem líka auga á nokkra með- limi taflfélagsins Hróksins hér í kirkjunni ídag, en Hrókurinn er nýkominn úr Grœnlandsferð þar sem þeir kenndu krökkum á austur-Grœnlandi að tefla oggáfu þeim töfl. Þeirsóttu okkur hér í Grafarholti heim í vor og kenndu um 70 börnutn að tefla, svo að við eigumþeim margt að þakka. Það er svo margt hægt að gera tilað gleðja náungann, efsköpunargleðin fœr að leika lausum hala.“ St u ð n i n g s - menn Osk- ars Bergssonar segja hverjum sem er að skort- ur á frambjóð- endum í próf- kjöri Framsóknar stafi af því að menn þori ekki í framboð af því þeir óttist að styggja for- ystuna. Þeir segja fullum fet- um að framboð Björns Inga Hrafnssonar sé hluti af valda- brölti Bræðrabandalagsins, en svo kalla Framsóknarmenn bræðurnar Árna Magnússon félagsmálaráðherra og Pál Magnússon, aðstoðarmann iðnaðarráðherra. Innan flokks- ins telja menn víst að Árni ætli sér þingsæti Jónínu Bjartmarz í Reykjavík suður og Páli sé ætl- að að steypa Siv Friðleifsdótt- ur í suðvesturkjördæminu. Til aðtryggjatökBræðrabandalags- ins á flokknum eigi svo Björn Ingi að verða borgarfulltrúi flokksins í Reykjavík. Stuðn- ingsmenn Björns Inga segja á móti að Óskar sé að búa til skýr- ingu á því af hverju hann þori ekki sjálfur í framboð...

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.