blaðið - 03.01.2006, Page 14

blaðið - 03.01.2006, Page 14
14 I ÁLIT ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 blaöiö blaöiö---- Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. HVERS VIRÐI ERU FORSTJÓRAR? Fregnir um að tveir fyrrverandi forstjórar FL Group hafi fengið samtals um 290 milljónir króna í starfslokasamninga vekja marga til umhugsunar. Það er ekki nema von, þetta eru hærri upphæðir en almennur verkamaður má eiga von á að fá í í laun á allri sinni starfsævi. Sami verkamaður er með þriggja mánaða uppsagnar- frest í sínu starfi og hann má búast við að fá 400-500 þúsund krónur í sinn hlut ef honum er gert að yfirgefa vinnustað sinn með litlum eða engum fyrirvara. Hvers virði eru íslenskir forstjórar? Sigurður Helgason hafði vissulega átt langan og farsælan feril hjá fyrirtækinu og erfitt að mótmæla því að gera hafi átt vel við hann við starfslok. Hvort að 160 milljónir króna er sanngjörn upphæð verður hver og einn að svara fyrir sig. Ragnhildur Geirsdóttir hafði hins vegar aðeins setið í nokkra mánuði í stól forstjóra og því hlýtur að vera erfiðara að réttlæta þær 130 milljónir sem hún fékk í sinn hlut. Hún hefur örugglega sinnt starfi sínu vel þennan tíma og það er ekki að efa að uppsagnarákvæði hafa verið rúm í samningi hennar. Spurningum um ástæður þess að hún lét af störfum hefur ekki enn verið svarað - stjórnarformaður FL Group hefur ekki enn séð ástæðu til að upplýsa hluthafa um ástæður þess að forstjóri (sem væntanlega var ráðinn eftir vandlega yfirlegu) var látinn taka pokann sinn eftir örfáa mánuði. Þessi mál, ásamt mörgum öðrum, hafa rýrt trúverðugleika FL Group á undanförnum mánuðum. Fátt er verra fyrir fyrirtæki sem vilja að þau séu tekin alvarlega, en dvínandi traust. Slíkt getur haft áhrif langt út fyrir landsteinana með ófyrirsjánlegum afleiðingum. Starfslokasamningar fyrrverandi forstjóra FL Group eru sem olía á eld þeirra launþega sem eru að berjast fyrir mannsæmandi launum í þessu landi. Þetta er enn ein staðfesting á því að hér eru að verða til tvær þjóðir - launabilið eykst sífellt og stjórnvöld standa ráðþrota hjá. Það kom glöggt fram í Kryddsíld á gamlárskvöld þar sem fátt varð um svör þegar Egill Helgason spurði ágengra spurninga um stefnu ráðamanna í kjaramálum. Hvort að æðstu ráðamenn þjóðarinnar eru að fá meira eða minna en hinn almenni launþegi samkvæmt ákvörðun Kjaradóms skiptir ekki öll máli í þessu samhengi - heldur að hér sé sanngjörn skipting launa og að raunveruleg stéttaskipting nái ekki að festa rætur í okkar litla þjóðfélagi. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Rltstjórn & auglýsingar: Bæjarlínd 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 5103700. Símbréfáfréttadeild: 510.3701. Símbréfáauglýsingadeild: 5103711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur. Alla virka daga milli 14og 17 510 3744 blaöiðH PD SSÍ iÍRjjfl WfÆfiú TíiWuM M'E’fi'N vií> Gct-ruT^-a, TfjjA UpP aU>.St\?6 Skálaö fyrir fósturláti Ég fór á kaffihús eitt kvöldið fyrir skemmstu. Þar sat ég lengi í góðum félagsskap og ræddi heimsins gagn og nauðsynjar. Snemma kvölds veitti ég ungum manni athygli sem sat við barinn með ákaflega óræðan svip á andliti og drakk bjór úr flösku. Hann drakk hægt og virt- ist njóta hvers sopa - svona rétt eins og manni sem nýlega hefði frétt að dauðadómi yfir honum hafi verið aflétt. Svipurinn var líka í þá áttina - sýndi fullkomna sátt við lífið og tilveruna. Seint um kvöldið var komið að mér að bæta á bjórbirgðirnar hjá félögum mínum og á barinn var haldið. Að yfirlögðu ráði stillti ég mér upp við hliðina á manninum dularfulla og kastaði á hann kveðju. Hann tók kveðju minni vel og við hófum að ræða saman. Áður en langt var um liðið var ég kominn með skýringu á veru hans á barnum og svipnum góða. Breyttar aðstæður Mér skildist að hann hefði átt ást- konu um nokkurt skeið. Sambandið hafði ekki verið alvarlegt heldur hittust þau öðru hvoru, spjölluðu og drukku kannski svo sem eina rauðvín saman. Þessir fundir þeirra enduðu síðan ávallt á því að þau elsk- uðust. Ég fékk það á tilfinninguna að þeim hafi þótt vænt hvort um annað - en einhverjar ytri aðstæður ollu því að ekkert varð meira úr sambandinu. Slíkur fundur hafði síðast átt sér stað fyrir tæpum tveimur mán- uðum siðan og verið að mati vinar míns svipað til fjölmargra slíkra funda áður... kveðjustundin jafn innileg og ávallt áður. Þau höfðu síðan ekki haft samband hvort við annað í tæpa tvo mánuði þegar vinur minn fékk skyndilega sím- hringingu. Það var vinkonan sem tjáði honum að aðstæður hennar væru nú breyttar. Hún hefði lengi verið í sambandi við annan mann en þau hefðu verið „í pásu“ þegar síð- asti ástarfundur átti sér stað. Fljót- lega upp úr því hafði hinsvegar verið Aðalbjörn Sigurðsson ákveðið að reyna aftur og þau voru hamingjusöm sem aldrei fyrr. í ofan- álag var hún svo ólétt. Vandinn var bara að vinur minn af barnum var faðirinn en konan hafði hinsvegar sagt unnusta sínum að hann væri pabbinn. Hún vildi bara láta vin minn vita hver sannleikurinn væri í málinu. Það fannst henni heiðarlegt. Hún kvaddi með tilkynningu um að hvorki núverandi unnusti né barnið myndu nokkurntíman fá að vita hið rétta frá henni og bað hann að virða þá ákvörðun sína.. Erfið ákvörðun Eins og eðlilegt er tók við ákaflega erfiður tími hjá hinum ókunna vini mínum á barnum. Hann hafði í viku reynt að gera það upp við sig hvað hann ætti að gera - ætti hann að leiða málið hjá sér og láta eins og ekkert væri - eða fara og brjóta niður hurðina hjá vinkonu sinni með rétt- mæta kröfu um að fá að taka þátt í uppeldi eigin barns. Vandamálið leystist af sjálfu sér seinnipart dags- ins sem ég hitti á hann þegar konan hringdi aftur og sagðist hafa misst fóstur. Ég skálaði þarna á barnum við manninn í fyrsta og vonandi síð- asta sinn fyrir fósturláti. Mér verður oft hugsað til þessa manns þegar vinkonur mínar hefja reglulegar femínískar ræður sínar um bága stöðu konunnar í nútíma samfélagi. Mér verður líka hugsað til félaga míns sem fær ekki að hitta börnin sín vegna þess að fyrrver- andi kona hans ákvað að beita þeim fyrir í mjög erfiðu skilnaðarferli. Þegar sömu vinkonur mínar ræða frjálslega um hversu betur heimur- inn væri staddur ef það væru konur sem stjórnuðu honum. Ég veit og viðurkenni að í ýmsum málum þarf að leiðrétta kynbundna mismunun. Ég veit hinsvegar af reynslunni að þegar konur eru í þeirri stöðu nýta þær völd sín ekkert síður en karlmenn - og oft á ekkert geðfeldari hátt. Aðalbjöm Sigurðsson Höfundur erfréttastjóri á Blaðinu Klippt & skoríð Hjörleifur Guttorms- son vekur athygli landans á mengunar- stefnu íslenskra stjórnvalda ■ í áramótapistli á heimasfðu sinni og á þrusugóðri ræðu Harolds Pinter f tilefni af Nóbelsverðlaun- unum sem hann hlaut í fyrra. Pinter skefur þar ekki af gagnrýni sinni á stefnu bandarfskra stjórnvalda og ábyrgð á ofbeldisverkum um allan heim. „Glæpir Bandaríkjanna hafa verið kerfisbundnir, viðvarandi, grimmdarlegir, mis- kunnarlausir, en fáir hafa í raun rætt um þá. Bandaríkin mega eiga það. Þau hafa stundað kaldrifjað valdatafi á heimsvfsu á sama tfma og þau hafa þóst vera að berjast fyrir góðum málstað. Það ersnilldarleg,, jafnvel hnyttin og afar árangursrfk dáleiðsla." Klippari tekur ofan fyrir hispursleysi skáldsins. Tveir stærstu stjórn- málafokkar landsins skiptu um forystu á nýliðnu ári. Mikið hefurverið fjallað um það hvernig Ingi-1 björg Sólrún Gísladóttir hefur staðið sig eftir að hún tók við forystu Samfylkingarinnar og sýnist sitt hverjum. Hinsvegar hefur minna verið fjallaö um Geir H. Haarde og gengi hans eftir að Davíð fór frá stýri Sjálfstæðisskútunnar. Segja má að Geir standi ennþá í skugga Davíðs og hann hefur verið ótrúlega Iftið áberandi í opinberri umræðu undanfarna mánuðl. Klippari verður að viðurkenna að það tók hann örlitla stund að rifja upp hvaða kall það var sem mættur var f Kryddsíldina á Stöð 2 á gamlársdag. klipptogskorid@vbl.is En það var Ifka skipt um varaformann flokksins. Segja má að Þorgerður Katrfn hafi heldur ekki gert neinar rósir sfðustu mánuði, frekar en for- maðurinn. Þorgerður þurfti á köflum að svara fyrir furðulegar ákvarðanir sfns ráðuneytis. Það er sama hvort stefnt var á styttingu náms til stúdentsprófs, samræmd próf framhalds- skólanema eða annaö - ávallt tókst Þorgerði og félögum að fá kennara landsins upp á móti sér. Þorgerður svaraði reyndar fyrir mörg þessa vandræðamála, oft af Iftilli sannfæringu. Einn slag þorði hún hins vegar ekki að taka - um- ræðuna um fjárlagafrumvarpið - heldur ákvað hún að flatmaga frekar f sólbaði f Senegal. Það verður forvltnilegt hvernig þessari mistæku forystu tekst að leiða flokkinn á nýju ári.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.