blaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 19
blaóiö FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006
VIÐTALI 19
vilja alls ekki sjá þessa breyt-
ingu og kannski stendur kirkjan
frammi fyrir því að hvað sem hún
gerir þá muni hún klofna
Hafa samkynhneigðir ekki verið
full grimmir í garð biskups með
því að saka hann um fordóma?
Ég vil ekki saka biskup íslands
um að vera fordómafullur maður
en mér finnst hann hafa talað
óvarlega og með særandi hætti
til tiltekins hóps. Séra Karl hefur
ekki verið þekktur fyrir það að
vera þröngsýnn eða fara fram með
illum vilja. Hann hefði hins vegar
getað orðað afstöðu sína með
nærgætnari hætti en hann gerði.
Ég held hins vegar að hann sé í
vanda sem æðsti embættismaður
þjóðkirkjunnar.“
Heit ást
Víkjum að ástinni. Nú ertþúyfir-
lýsturhommi. Verðurðu auðveld-
lega ástfanginn?
„Ég verð ekki eins auðveldlega ást-
fanginn nú og ég varð áður. Maður
hleypur ekki af stað við fyrsta
blossa. Ég er núög ástfanginn af
mínum manni. Ég elska hins vegar
mjög heitt og læt yfirleitt ekki af
þeirri ást. Ég elska manninn minn
mest af öllum en ég elska bæði kon-
una mína fyrrverandi og manninn
minn fyrrverandi mjög mikið og
hef samband við þau bæði.“
99...................................................................
Ég elska manninn minn mest aföllum en ég elska bæði konuna mína fyrrverandi
og manninn minn fyrrverandi mjög mikið og hef samband við þau bæði."
þankagang. Sagan af Kristi er stór-
kostleg saga og ég held að það sé
svolítið af John Lennon í Kristi.
Stundum segi ég bæði í gríni og
alvöru, en kannski meira í alvöru
en gríni, að ég sé Lennon-Egne-
risti. Sem manneskja stóð Lennon
fyrir svo margt gott. Thorbjörn
Egner setti fram snilldarboðskap
í verkum sínum. Boðskapurinn er
hreinn og beinn og svo einfaldur
að það skiptir engu hvort þú ert
tveggja ára eða áttræður, þú skilur
hann. Hann gengur út á að betra
sé að vera góður en slæmur. Það
skilar meiru til þín og líf þitt verður
auðugra og fallegra ef þú ert góður
við annað fólk. Þetta er boðskapur
sem ég vil fylgja í lífinu.“
frænda minn verða fyrir bíl. Hann
dó og eftir það hefur dauðinn
alltaf verið glottandi við hliðina
á mér. Ég var unglingur þegar ég
missti vinkonu og vin í sitt hvoru
bílslysinu. Góð vinkona mín dó
svo kornung úr krabbameini frá
ungri dóttur sinni og strákur sem
ég var með í nokkra mánuði var
myrtur í svefni af geðveikum vini
sínum. Ég get talið upp fleiri sem
dóu alltof ungir.“
Hvað áhrif hefur þessi missir
haft á þig?
„Þótt sumum kunni að þykja erf-
itt að ímynda sér að ég geti verið
auðmjúkur þá eru það þó áhrifin
sem dauðinn hefur. Maður verður
auðmjúkari gagnvart lífinu og
tilverunni. Sér hvað manneskjan
er viðkvæm og hversu lítið þarf
að bera útaf til að mannslíf sé
eyðilagt. Þótt ég gangi ekki um
og hugsi um dauðann á hverjum
degi þá er hann alltaf nálægur og
yfirgefur mig aldrei. Það er orðinn
eðlilegur hluti af lífinu að maður-
inn með ljáinn sé alla tíð á sveimi,
fyrir aftan mig, fyrir framan mig
og við hliðina á mér.“
Ertu trúaður?
„Já, ég er það. Ég er ekki kirkju-
rækinn en ég er kristinn maður
og hef tileinkað mér kristilegan
kolbrun@bladid.net
Þú nefnir fyrrverandi konu.
Hvernig getur fólk verið árum
saman með manneskju af gagn-
stœðu kyni og uppgötvað svo allt
í einu að það hneigist að sama
kyni?
„Þetta er ekki eins og að fá vitrun.
Maður uppgötvar ekki einn góðan
veðurdag uppi í sóffa að maður er
samkynhneigður. Sá sem er inni
í skápnum með tilfinningar sínar
er uppfullur af sömu fordómum
og ríkja í samfélaginu. Það kostar
hann mikla kvöl að berjast við til-
finningar sínar og stundum lifir
hann í verulegri angist.
Ég kynntist fyrrverandi konu
minni þegar við vorum mjög ung.
Við urðum miklir vinir eins og við
erum enn í dag. Sambönd byggj-
ast jú að stórum hluta á vináttu.
Það er ekki bara það sem gerist í
svefnherberginu sem skiptir máli,
þótt það skipti auðvitað miklu
máli líka. Vináttan hélt samband-
inu saman og ég bældi samkyn-
hneigðar tilfinningar mínar og
afneitaði þeim. Svo stóð ég frammi
fyrir því að geta það ekki lengur.
Þetta var erfiður tími hjá okkur
en sérstaklega hjá henni þvi eins
og hún orðaði það sjálf: Ef önnur
kona hefði verið í spilinu þá hefði
hún átt möguleika í baráttunni en
hún gat ekki keppt við karlmann.
Endirinn varð þó hamingjusamur
því hún fór erlendis í framhalds-
nám, er gift í Bretlandi og á tvær
yndislegar dætur.
í seinna sambandinu gerðist það
sama og í mörgum samböndum,
takturinn var ekki eins og báðir
aðilar vildu hafa hann. Þess vegna
skildum við.“
Heldurðu að þú verðir alla ævi
með manninum þínum?
„Ég vona það. Hann er sautján
árum yngri en ég og mun sennilega
lifa mig. Eg vona að ég verði honum
ekki óþægilegt gamalmenni."
Hugsarðu stundum um það
hvernig þú verður sem gamall
maður?
„Inn við beinið er ég svo forlaga-
trúar að mér finnst dónalegt og
hrokafullt að gera ráð fyrir að
verða gamall maður. Auðvitað
vona ég að ég nái því en mér finnst
ekki rétt að storka örlögunum með
því að reikna með að svo verði.“
Nálægð dauðans
Hafa margir dáiðfrá þér?
„Dauðinn hefur alla tíð verið
mjög nálægur mér. Þegar ég var
fimm ára horfði ég á fjögurra ára
\ ‘
SKJAR0/VA/
á fimmtudögum
Fimmtudagskvöld eru pottþett sjonvarpskvöld
á SKJÁEINUM.
Family Guy kl. 20.00
Malcolm in the Middle kl. 20.30
Will&Gracekl. 21.00
King of Queens kl. 21.30
House kl. 22.00
Sex inspectors kl. 22.50