blaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 22
22 I FERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaðiö
„Þaö jafnast ekkert á við það,
að skella sér í gott sólbað"
Þá er sólin farin að hækka á lofti og ekki langt í að ferðaskrifstofur kynni ferðabæklinga sína fyrir næsta sumar. Margir eru þegar farnir að
skipuleggja ferðaiög næsta sumar og hafa hug á að dvelja á erlendri sólarströnd, í einhverri stórborginni eða á framandi slóðum. Fólk getur nú
tekið flugið hvert í heim sem er með stuttum fyrirvara og jafnvel litlum kostnaði en það gleymist oft að gera ráð fyrir öðru sem nauðsynlegt er.
Vegabréfsáritanir og bólusetningar er dæmi um það sem fólk þarf að huga að og óiíkt flugfarinu þarf að huga að þessu með góðum fyrirvara. Það
vill enginn skemma friið sitt með óþarfa veikindum eða verða strandaglópar út af vöntun á vegabréfsáritun. Þegar þetta er klárt er svo ekkert því
til fyrirstöðu að skella sér í stuttbuxurnar og taka rútuna í Leifsstöð.
Panta þarf tíma í bólusetn-
ingu með góðum fyrirvara
,Það er allt of algengt að fólk hugi
ekki að bólusetningum fyrr en rétt
fyrir brottför" segir Helgi Guðbergs-
son yfirlæknir Heilsuverndar Reykja-
víkur. Helgi segir að nú sé hægt að
fá flugfar til fjarlægra landa með
stuttum fyrirvara en fólk gleymi að
taka með í reikninginn að bólusetn-
ingar taki mun lengri tíma.
„Við erum með yfir 20 bóluefni
sem eru notuð en það fer eftir því
hvert er farið og hversu lengi á
að dvelja hvort nauðsynlegt er að
bólusetja. Bólusetningar eru nauð-
synlegar til margra landa og nefni
ég sem dæmi lönd í Afríku, Asíu,
suður- og mið-Ameríku og eyja í
Karabíska hafinu."
Helgi mælir með því að fólk panti
tíma í bólusetningu sex vikum
fyrir brottför því oft þarf að bíða í
nokkrar vikur eftir að fá tima. „Þá
99..........................
„Sumir erlendir skólar
gera kröfur um að
nemendur sem koma
frá öðrum löndum séu
bólusettir, þetta á t.d.
við um suma skóla í
Bretlandi og í Bandaríkj-
unum. Það er því ekki
aðeins áhætta viðkom-
andi svæðis heldur líka
kröfur svæðanna sem
skera úr um hvort þörf
sé á bólusetningu."
þurfa flest efnin tvær vikur til að
fara að virka og sum lengur." Helgi
segir að bólusetningar geti verið
dýrar en afar nauðsynlegar og að
þetta sé kostnaður sem fólk verði að
gera ráð fyrir.
„Það fer eftir því hvað fólk er að
fara að gera í þeim löndum sem
það heimsækir hvort nauðsynlegt
er að bólusetja það. Þannig skiptir
máli hvort fólk er að fara i nokkra
daga borgarferð til austur-Evrópu
eða hvort fólk ætli að dvelja þar í
nokkrar vikur og ferðast um sveitir
og héruð. Ef ferðin er stutt og dvalið
í borg er ekki þörf á bólusetningu
en það verður nauðsynlegt ef ferðin
verður löng og ferðast til afskekktra
svæða. Ef ferðast er um mið-Evrópu
og dvalið í skógum og á afskekktum
svæðum þarf að bólusetja við
blóðmaur.“
Helgi segir það nokkuð algengan
misskilning að fólk telji að bólusetn-
ingar sé ekki þörf ef það dvelji á
fínum hótelum. „Það eru moskítkó-
flugur alls staðar og því nauðsyn-
legt að bólusetja óháð því hvernig
ferðamátinn er.“
Bólusetningar þörf á
Suðurskautslandið
„Ef farið er í gegnum lönd þar sem
bólusetningar er þörf þarf að bólu-
setja fólk jafnvel þótt viðdvölin sé
stutt. Þannig þarf bólusetningu ef
farið er til suðurskautssvæðisins því
á leiðinni þangað er farið í gegnum
lönd þar sem bólusetningar er þörf.
Ef fólk veikist á Suðurskautsland-
inu getur líka verið erfitt að komast
undir læknishendur.”
Helgi segir algengustu bólusetn-
ingar vera endurteknar barnabólu-
setningar og að bólusett sé gegn lifrar-
bólgu af A stofni.
„Sumir erlendir skólar gera kröfur
um að nemendur sem koma frá
öðrum löndum séu bólusettir, þetta
á t.d. við um suma skóla í Bretlandi
og í Bandaríkjunum. Það er því
ekki aðeins áhætta viðkomandi
svæðis heldur líka kröfur svæðanna
sem skera úr um hvort þörf sé á
bólusetningu.“
Helgi segir að innflytjendur á
íslandi sem hyggist heimsækja
heimaland sitt þurfi bólusetningar.
„Fólk sem hefur búið hér i langan
tíma er oft orðið ónæmt eftir að hafa
Helgi Guðbergsson yfirlæknir Heilsu-
verndar Reykjavíkur
búið við aðrar aðstæður í langan
tíma.”
Helgi segir mörg dæmi um að fólk
hafi veikst erlendis og jafnvel látist
vegna veikinda sem það hefði losnað
við hefði það verið bólusett.
Hvað með magakveisurnar, er
hœgt að bólusetja við þeim?
„Það er hægt að bólusetja við
sumum tegundum magakveisa en
svo ætti fólk líka að leita sér ráðlegg-
inga varðandi mataræði á hverjum
stað og hvað ber að varast."
h ugrun@bladid. net
BNL6
NEDERLAND + SCHENGEN STATEN
25-06-04 g. 24-09-04
MULT sar«“SJ"“*
OUUOMOffftr
PEKING
25-06-04 G0M18831
DC
REPORT HPP EINDHOVEN 270428789Í
D.J.TERBRA/
Vegabréfsáritanir
geta tekið margar vikur
Með hækkandi sól hugsa sér
margir til hreyfings. Með bættum
flugsamgöngum er orðið auðveld-
ara að ferðast til fjarlægra landa.
Þetta breytir því hins vegar ekki
að til margra landa er krafist vega-
bréfsáritunar og betra að hafa
tímann fyrir sér þegar sækja þarf
um vegabréfsáritun.
Á heimasíðu utanríkisráðuneytis-
ins má sjá langan lista yfir fjarlæg
lönd og hvort þurfi vegabréfsáritanir
til þeirra eða ekki. Vegabréfsáritanir
eru veittar í erlendum sendiráðum
viðkomandi lands og á sumum ræðis-
skrifstofum. Ef viðkomandi land er
ekki með sendiráð hérlendis þarf að
fá vegabréfsáritun hjá viðkomandi
landi erlendis. Sem dæmi um þetta
má nefna að vegabréfsáritanir til
Afganistan fást í sendiráði landsins
í Osló. Það getur tekið margar vikur
að fá vegabréfsáritun og því vissara
að athuga þau mál í tæka tíð.
Ef tekið er stutt yfirlit yfir löndin
má sjá að til flestra Afríkulanda þarf
vegabréfsáritun. Til sumra landa
þarf ekki áritun ef dvalið er innan
ákveðins tímaramma. Þannig þarf
ekki áritun til Caymaneyja ef dvalið
er skemur en mánuð. Til Dóminik-
anska lýðveldisins þarf ekki áritun
ef dvalið er skemur en í 3 mánuði.
Til stríðshrjáðra landa eins og Iraks
er ekki vitað hvort vegabréfsárit-
unar er þörf. Enda ólíklegt að fólk
hafi hug á að eyða sumarfríinu þar
eins og staðan er. Til nágrannaríkis-
ins Irans þarf hins vegar vegabréfs-
áritun. Ef ferðast er til asíulanda er
misjafnt hvort vegabréfsáritunar er
þörf. Þannig þarf vegabréfsáritun
til Kína og Kambodíu en ekki til
Japans. Þeir sem hyggjast ferðast
til suður-Ameríku þurfa ekki vega-
bréfsáritun til Argentinu, Brasilíu
og Kolumbíu en hins vegar er árit-
unar þörf til Venesúela ef dvalið er
lengur en í 3 mánuði.
Misjafnt er hvort löndin hafa
gagnkvæman samning við ísland
en ef svo er ekki er ferðamönnum
bent á að fá upplýsingar um hvort
vegabréfsáritunar er þörf. Sem
dæmi um þetta er Andorra, þangað
er vegabréfsáritunar ekki þörf en
hins vegar eru ekki gangkvæmir
samningar á milli landanna og því
ættu þeir sem ferðast þangað að fá
þær upplýsingar staðfestar.
hugrun@bladid.net
Hugmyndaríkar konur.
... athugið!
BRAUTARGENGI
<?>
Impra - nýsköpunarmiðstöð heldur námskeiðið
Brautargengi / Reykjavík og á Akureyri
fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin atvinnurekstur.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
• skrifi viðskiptaáætlun
• kynnist grundvallaratriðum stofnunar fyrirtækis
• öðlist hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem koma að fyrirtækjarekstri,
s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun.
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnavinnu og persónulegri handleiðslu.
Tímabil: Kennt er á miðvikudögum frá kl. 12:30 - 17:00; frá 25. janúar til 3. maí 2006.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðu Impru, www.impra.is, eða í símum 570 7267 og 460 7974.
Skráningu lýkur 23.janúar n.k. Takmarkaður fjöldi.
impra nýsköpunarmiðstöð
Iðntæknístofnun
Þátttakendur á Brautargengi hafa verið styrktir af eftirfarandi sveitarféiögum:
Reykjavík, Kópavogi, Mosfellsbæ, Bessastaðahreppi, Seltjarnarnesi og Akureyri.