blaðið - 30.01.2006, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 blaðið
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Lögreglan:
Fimmtán
stútar á ferð
Fimmtán ökumenn voru teknir
fyrir ölvun við akstur um helgina
samkvæmt lögreglunni í Reykja-
vík. Ellefu stútar voru teknir á
laugardaginn og svo bættust fjórir
í hópinn í fyrrinótt. Þá var nokkuð
mikið um smápústra í miðborginni
aðfaranótt sunnudags og i einu
tilviki missti maður fjórar tennur
í slagsmálum. Aðfaranótt laugar-
dags komu upp 14 fíkniefnamál í
sérstöku átaki lögreglunnar. Flest
málin komu upp í og við skemmti-
staði f miðbænum en auk þess var
farið inn á krá í austurborginni.
Um 13 karlmenn voru handteknir
en þeim var sleppt að loknum yfir-
heyrslum. Öll málin teljast upplýst.
Landvernd:
Vilja stækkun
friðlands í
Þjórsárverum
Stækkun friðlands í Þjórsárverum
er eitt brýnasta verkefni náttúru-
verndar fslands í dag. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá stjórn Land-
verndar. Stjórnin fagnar þeirri
ákvörðun Landsvirkjunar að leggja
til hliðar áform um fram-
kvæmdir á svæðinu.
Tryggja
verndun
svæðisins •
í yfirlýsingu ’
stjórnar Land-
verndar kemur
fram að Þjórsár-
ver sé eitt verð-
mætasta svæði á
hálendi íslands
og nýta þurfi þá
samstöðu sem nú
sé til staðar til að
tryggja verndun
svæðisins. Þá
hvetur stjórnin
Samvinnunefnd
miðhálendis-
ins, Alþingi og
viðkomandi
sveitarstjórnir
að vinna með
andi friðland nái ekki að tryggja öll
verðmæti svæðisins og því sé nauð-
synlegt að stækka það. „Friðlandið
sem sett var niður árið 1981 var mjög
tilviljunarkennt. Það voru bara ein-
hverjar
Hrókurinn
Heiðursskákmót
Aframlsland
umhverfisráð-
herra að þessu
máli. Að auki
leggur Land-
vernd það til
í yfirlýsingu
sinni að hafin sé undirbúningur
að því að koma Þjórsárverum á
heimsminjaskrá UNESCO þar sem
tilgreindar eru merkustu náttúru-
minjar á jörðinni.
Vinsælt útivistarsvæði
Að sögn Tryggva Felixssonar, fram-
kvæmdastjóra Landverndar, sýna
allar rannsóknir sem gerðar hafa
verið á svæðinu að hér sé um mikil
náttúruverðmæti að ræða. „Þarna
er eitt verðmætasta hálendissvæðið
á landinu. Mjög ríkt af lífríki og
votlendi og einstaklega fagur fjalla-
hringur.“ Tryggvi segir að núver-
f dag kl. 13.00 fer fram afmælisskák-
mót Henriks Danielsen, skólastjóra
Hróksins, sem átti fertugsafmæli á
dögunum. Mótið er haldið í Vin, at-
hvarfi Rauða krossins fyrir fólk með
geðraskanir. Tefldar verða 4 stuttar
skákir eftir Monrad-kerfi og á eftir
verður afmæliskaffi. Allir eru vel-
komnir jafnt til þátttöku og áhorfs.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu
sætin og dregið i happdrætti, þannig
að allir geta átt von á vinningi.
Hrókurinn heimsækir Vin, að
Hverfisgötu 47, alla mánudaga kl.
13.00. Hróksmenn komu
fyrst í heimsókn til
Vinjar sumarið 2003
. og síðan hafa þar verið
' haldnar reglulegar æf-
ingar, fjöltefli og skákhátíðir. Margir
meistarar hafa heimsótt Vin, enginn
þó oftar en íslenski stórmeistarinn
Henrik Danielsen. Umsjón með starf-
inu hafa Kristian Guttesen og Arnar
Valgeirsson.
Betri byggð:
Vilja skýr svör
beinar Hnur og þær ná ekki til
þeirra verðmæta sem þarna eru í
húfi. Landvernd telur að það sé for-
gangsverkefni að vernda þetta svæði
og tryggja til langs tíma.“ Þá segir
Tryggvi að eftir að virkjunarsjónar-
mið hafi verið lögð til hliðar ætti að
vera auðveldara að friðlýsa svæðið.
„Þetta er vinsælt útivistarsvæði og
verður sífellt vinsælla og það er
hægt að segja að friðlýsing og skýr-
ari reglur myndu draga úr líkunum
á því að útivist og álag myndi spilla
því. Það þarfað styrkjaverndunþess
með hliðsjón af vaxandi umferð."
Samtök um betri byggð hafa óskað
eftir skýrum svörum frá oddvita
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
um afstöðu hans til Reykjavíkur-
flugvallar og staðsetningar hans.
Samtökin gagnrýna ennfremur
Sjálfstæðisflokkinn fyrir að
leika tveimur skjöldum
í þessu máli. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálms-
son segir gagnrýnina
hvorki sanngjarna né
HEKLA' fétta
Óskýr í máli
1 yfirlýsingu sem samtökin sendu
frá sér um helgina kemur fram að
þau telja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson,
oddvita Sjálfstæðisflokksins, of
óskýran í máli og gagnrýna hann
um að framselja skipulagsrétt borg-
arinnar til samgönguyfirvalda. Þá
benda þau á að Sjálfstæðisflokkur-
inn sýni tvískinnung í málinu með
því að reyna að þóknast bæði þeim
sem eru hlynntir og andvígir veru
flugvallarins í Vatnsmýrinni. Skora
samtökin á borgarstjórnarflokk og
frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
að skýra stefnu sína að fullu í þessu
máli og setja fram fastar dagsetn-
ingar um það hvenær flugvöllurinn
á að víkja.
Alröng skoðun
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir
þessa skoðun alranga og hann hafi
fyrir löngu lýst yfir þeirri skoðun
sinni að flugvöllurinn eigi að víkja
úr Vatnsmýrinni. „Ég er þeirrar
skoðunar að í nánustu framtíð
eigi að nýta land Vatnsmýrarinnar
undir íbúðar og atvinnusvæði og
ég vil beita mér fyrir því. Ég talaði
mjög skýrt um þetta í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins. Ennfremur hef ég
margítrekað að ég vil ekki að innan-
landsflugið verði flutt til Keflavíkur
heldur að því verði fundinn staður
í Reykjavík eða næsta nágrenni og
nefnd á vegum ríkis og borgar er
að vinna í þessu." Vilhjálmur segir
fráleitt að vera að kalla eftir föstum
dagsetningum í þessu máli. „Þetta
er mál sem ríki og Reykjavíkurborg
þurfa að leysa saman. Það nægir
ekki að einhver borgarfulltrúi segi
að hann vilji flugvöllinn burt fyrir
ákveðinn tíma. það væru bara
innistæðalausar yfirlýsingar. Það
þarf að vinna að þessu í samstarfi
við þann aðila sem þarf að reka og
byggja nýjan flugvöll en það er líka
ljóst í mínum huga að Reykjavíkur-
borg hefur skipulagsvaldið á þessu
svæði."
ALLT Á HÁLFVIRÐI
• Engjateigi 5
• Sfmi 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
SALAT
hollt og gott í
hádeginu
komdu og smakkaðu!
CAFÉADESSO
2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn
opið virka daga 10.00-19.00
fimmtudaga 10.00-21.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
Simi 544 2332
www.adesso.is
Beðið eftir flugtaki
Allt innanlandsflug lá niðri fram eftir degi i gaer vegna veðurs. Strekkingsvindur var um allt land og voru vélar kyrrsettar af þeim sök-
um. Það var fyrst laust fyrir klukkan fimm í gærdag sem fyrstu vélarnar tóku á loft og gátu þá margir langþreyttir ferðalangar komist
leiða sinna.