blaðið - 01.02.2006, Qupperneq 29
blaðið MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
DAGSKRÁI 29
Latibœr
verðlaunaður
Þættirnir stórgóðu um íbúa Lata-
bæjar fengu í síðustu viku fyrstu
verðlaun fyrir talsetningu á þýsku.
Þættirnir eru sýndir í Þýskalandi
á sjónvarpsstöðinni Super RTL og
sá stöðin um talsetninguna í sam-
vinnu við framleiðendur þáttanna
hér heima. Verðlaunin voru afhent
við hátíðlega athöfn í borginni Pots-
dam í Þýskalandi.
Sjónvarpsþættirnir um Latabæ
voru teknir til sýningar í Þýska-
landi í ágúst 2005. í ár voru 42
sjónvarpsseríur og kvikmyndir til-
nefndar og voru veitt verðlaun í alls
7 flokkum. Á meðal þeirra mynda
sem tilnefndar voru í sama flokki
og Latibær var stórmyndin Madag-
ascar sem hlotið hefur mikið lof
gagnrýnenda.
SkjárEinn, 21.00 Queer Eye for
the Straight Guy
Samkynhneigðar tískulöggur gefa
einhleypum, gagnkynhneigðum
körlum góð ráð um hvernig þeir
eigi að ganga í augun á hinu kyn-
inu. Þættir sem hafa slegið í gegn
og bjargað margri konunni frá illa
til höfðum karlmönnum.
...flugfarþega
Sjónvarpið,
16.55 EM í
handbolta
Sýndur verður
leikur Islend-
inga og Króata
í milliriðli.
Þetta er annar
leikur liðsins
í milliriðli og
líklega sá mikilvægasti upp á fram-
haldið. Styðjum strákana okkar.
á NASA viö Austurvöll
Sýnt
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
Sunnudagur
Miövikudagur
1. febrúar -
2. febrúar -
3. febrúar -
4. febrúar -
5. febrúar -
8. febrúar -
Uppselt
Örfá sæti laus
Örfá sæti laus
Örfá sæti laus
Húsið opnar kl. 20:00 ■ Sýningar hefiast kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar,
www.midi.is og i sfma: 575 1550
íslenska útvarps-
stjarnan verður
til á KissFM
í dag mun útvarpsstöðin KissFM
opna fyrir skráningu á Netinu í leit
að næstu útvarpsstjörnu íslands.
„Við erum að leita að góðum útvarps-
manni- eða konu sem hefur allt til
brunns að bera til að vera alvöru
stjarna í útvarpi," segir Ragnhild-
ur Magnúsdóttir, dagskrárgerðar-
maður KissFM. „Þetta er skemmti-
legur leikur. Gagnvirkni verður
mjög mikil svo að hlustendur geta
tekið þátt, þeir geta kosið og fá þann-
ig að ráða. Upplýsingar um þátttak-
endur verða líka á heimasíðunni
okkar svo allar upplýsingar verða
þar.
Starf í boði
„Skráningin byrjar í dag og verður
í rúmar tvær vikur. Siðan verða
áheyrnarprufur og þar á eftir tek-
ur við langt ferli þar sem fólki gefst
færi á að sanna sig. Þær verða haldn-
ar 18. febrúar svo fólk verður að skrá
sig fyrir þann tíma.“
Ragnhildi líkar greinilega mjög
vel við útvarpsstarfið og mælir með
því. „Þetta er mjög skemmtilegt. Sá
eða sú sem vinnur keppnina mun
fá samning hjá okkur um að vinna
á stöðinni. Viðkomandi byrjar svo
um leið og keppninni lýkur, líkleg-
ast í byrjun sumars."
Ragga á KissFM sér um morgunkossinn alla virka morgna.
Stöð 2 bíó, 20.00 The Terminal
(Flugstöðin)
Kostuleg og vel leikin stórmynd eftir
Steven Spielberg með Tom Hanks
í aðalhlutverki. Myndin er laus-
lega byggð á sönnum atburðum og
fjallar um Viktor Navorski, mann
frá Austur-Evrópu, leikinn af Hanks,
sem ferðast til Bandaríkjanna.
Topp 10 listinn
SingStar SO's PS2 Sony
Need for Speed Most Wanted Allar vélar EA
Sims 2 Allar vélar EA
Buzz! The Music Quiz PS2 Sony
SSX On Tour PS2/XB0X/ PSP EA Sports BIG
Sims 2 Night- life PC EA
Harry Potter & The Goblet of Flre Allar vélar EA
Call of Duty 2 PC/ XBOX360 Activision
World of Warcraft PC VU Games
Football Manager 2006 PC Eidos
Sönggleöi (slendinga sést greinilega á vinsældum
Söngvakeppni Sjónvarpsins og Idol Stjörnuleitar-
innar. Þriöja visbendingin er sú staðreynd að Singst-
ar 80's er enn á toppi topp 10 tölvuleikjalistans.
EITTHVAÐ FYRIR...
...sigurvegara
Ný þjónusta
við flokkun og
endun/innslu!
Nú geta íbúar á höfuöborgarsvæðinu fengið sérmerkta
endurvinnslutunnu hjá Gámaþjónustunni hf. sem m.a.
tekur við öllum pappír heimilisins, dagblöðum, tímaritum,
umslögum, skrifstofupappír og pappa, fernum, plast-
umbúðum og málmum.
Einfalt í framkvæmd:
Allur pappír og bylgjupappi má fara beint í tunnuna en
fernur, málmar og plast fari í aðskilda poka í sömu tunnu.
Mánaðargjald fyrir hverja tunnu er 990 kr. og tæmt verður
á fjögurra vikna fresti.
8
U
I
z
z
&
GÁMAMÓNUSTAN HF.
BÆ77 UMHVERFI - BETRIFRAMTÍÐ
Sími: 535 2500 • gamar@gamar.is • www.gamar.is
Endurvinnslutunnuna er hægt að panta
í síma 535 2510, á netfanginu gamar@gamar.is
og einnig á heimasíðu Gámaþjónustunnar hf.
www.gamar.is
Komið verður með tunnur heim til viðtakenda.