blaðið - 01.02.2006, Síða 30
. 30IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR l.FEBRÚAR 2006 blaðið
I
borgarinn
BJARTASTA VONIN
-
Á mánudaginn myndaðist rísandi stjama (
íslenskum fjölmiðlum við það að heimasíð-
an www.mellur.is var stofnsett. Reyndar
virðast stúlkurnar sem að síðunni standa
hafa smáreynslu í heímasíðugerð og við-
haldi. Umræðuefni aðstandendanna eru
eins og á öllum öðrum bloggsíðum á Net-
inu; djammið, strákar, stelpur og helsta
sjónvarpsefnið. Smáborgarinn á erfitt með
að skilja hvernig það er eftirspum eftir síð-
um sem þessum. Það sér hver í hendi sér
að framboðið er meira en nóg, kallarnir.
is, fazmohópurinn og þannig mætti telja
lengi. Svo virðist sem hver einasti vinahóp-
ur á íslandi sé ómarktækur haldi hann ekki
bloggsíðu.
Það versta af öllu þykir Smáborgaranum
hversu auðvelt þessir blogghópar eiga með
að koma sér á framfæri. Þeir þurfa ekki ann-
að en að segja eitthvað nógu dónalegt og
þá komast þeir í dagblöðin eða, það sem
verra er, fá sinn eigin sjónvarpsþátt. Smá-
borgarinn bíður þess vegna spenntur eftir
sjónvarpsþætti mellanna.is. Hann verður
vafalaust mjög áhugaverður og sýnir Islend-
ingum enn og aftur hversu djúpt er hægt
að sökkva. Auðvitað hefur Smáborgarinn
látið ýmislegt óvitrænt og kjánalegt frá
sér í góðra vina hópi. En hann vill meina
að hann hafi nóg vit í kollinum til að halda
sínum gullkornum innan vínahópsins. Smá-
borgaranum finnst í raun ákaflega heimsku-
legt að láta í Ijós allar sinarfurðulegu vanga-
veltur fyrir alþjóð á Intemetinu. Hann efast
líka um að mellurnar.is stígi mjög í vitið.
Smáborgarinn er ekki búinn að tæma úr
skálum reiði sinnar. Það sem fer e.t.v. mest
fyrir brjóstið á honum við umræðuefnið er
nafngiftin sjálf. Nú getur vel verið að sumar
vændiskonur hafi gaman af starfi sínu. En
Smáborgarinn efast um að mellurnar.is séu
mellur (svolítið svipað og hann telur kall-
ana.is vart vera karla). Hér með er óskað
eftir blogghópnum fóstrur.is eða álíka.
Fólkið sem sér um bloggsi'ðumar og sið-
an sjónvarpsþættina f kjölfarið er kynslóðin
sem taka mun við fslandi þegar '68 kynslóð-
in drukknar loksins í peningum. Þetta er
ekki björt framtíð. Satt best að segja telur
Smáborgarinn að ef heldur áfram sem
horfir munum við sjá um menningarlegt
og andlegt gjaldþrot þjóðarinnar. Sólbrún-
irvitleysingar með myndatökuvélar munu
fylla alla grunnskóla, krakkar undir ferm-
ingaraldri munu krefjast þess að fá Ijósa-
tíma í staðinn fyrir hjól í afmælisgjöf og
orðaforði ungmenna mun samanstanda af
vel völdum enskuslettum. Að lokum mun
handboltalandsliðið deyja út og túristamir
hætta að láta sjá sig. fslendingar verða þurr
og einsleit, leiðinleg þjóð. Við munum ekki
bjóða upp á neitt fyrir þá sem hingað vilja
koma. En hnakkamir munu skemmta sér
konunglega í eigin heimi.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins
Hvað finnst þér um deilurnar í
Danmörku?
„Þetta er svakalega snúið. Viðbrögð hins íslamska heims eru auðvitað í engu
samræmi við tilefnið. Hins vegar verða menn að virða trúartilfinningar
manna. Við höfum það bundið í lögum hér á vesturlöndum að það beri að
virða trú manna og umgangast beri þá hluti sem menn telja heilaga með
virðingu. Það hefur ekki verið gert i þessu tilviki. En þetta sýnir okkur einn-
ig í hnotskurn hvernig hinn íslamski heimur er, þar sem brugðist er við öllu
með ofbeldi."
Miklar deilur hafa sprottiö upp í múslímaríkjum vegna myndbirtinga í norrænum dagblöðum sem sýna Múhameö spámann.
50 Cent skrifar
barnabœkur
Ekki er öll vitleysan eins, svo mikið er víst. Nú hefur skot-
heldi rapparinn 50 Cent ákveðið að skrifa barnabækur. 50
hefur gengið í gegnum margt og telur sig geta kennt börn-
um ýmsar lexíur um lifið sjálft.
„Sögurnar munu hafa jákvæð skilaboð,” sagði 50 í sambandi við málið. Börn
munu geta lært af þeim.”
Við látum það liggja milli hluta hvað 50 Cent á að geta kennt börnum um lífið.
Eitt er þó víst að ekki er hægt að taka ráðum frá honum um hvernig á að forðast
byssukúlur þar sem kappanum hefur mistekist það allavega átta sinnum.
Kudrow
deitarn ekki frœga
//
Lisa Kudrow, sem lék hina kostulegu Pheobe í sjónvarpsþáttunum Friends,
hefur ákveðið að lenda aldrei í sambandi með stjörnu eftir hina gríðarlegu
athygli sem sambandsslit vinkonu hennar, Jeinnifer Aniston og Brad Pitt
fékk.
Kudrow var gjörsamlega hneyksluð á hvernig fjölmiðlar hafa farið með
vinkonu sína. Jennifer er góð vinkona mín, ég mun aldrei tala opinberlega
um hana og Brad nema til að segja að hún hefur það fínt. En ég mun segja
að þegar stjarna byrjar með annari stjörnu skapar það skrímsli sem er mun
stærra en tveir einstaklingar.”
Kate Moss
yfirheyrð
Kate Moss hefur fallist á að mæta í yfirheyslu til London vegna
rannsóknar á meintri kókaínnotkun hennar, en lögreglan hefur
undir höndum myndbandsupptöku og ljósmyndir sem sýna
Moss nota eiturlyfið hvíta. Moss var að störfum í New York
þegar götublöð hófu að birta myndir af henni og hvíta vini
hennar og hefur hún, síðan þá, ekki þorað að snúa aftur til
Bretlands. Hún hefur þó heldur betur snúið við blaðinu og
farið í meðferð ásamt því að losa sig við mest umfjallaða
vandræðagemsa heims um þessar mundir, Pete Dogerty.
■P'
■■■■■■■■■■■■■
eftir Jim Unger
FRJÁLST
OHAÐ
blaðið=
ókeypis til
80.000
heimila og fyrirtækja
il,a,,rk,í,5,bladiö=
HEYRST HEFUR.
Pað gengur stunum í ættir
að fá titla upp í hendurnar.
Þannig fékk nýr herra ísland
titil upp í hendurnar, eftir að sá
sem sigraði í keppninni var rek-
inn vegna lifnaðarhátta sem
þóttu ekki hæfa þeim sem ber
svo mikilvægan titil. Nýi herra
ísland heitir Jón Gunnlaugur
Viggósson og er sonur sjálfs
Viggós Sigurðssonar landsliðs-
þjálfara í handbolta. Faðirinn
stýrir landsliðinu í Sviss þessa
dagana og vonast að sjálfsögðu
til að hampa titli - alveg eins
og sonurinn.
Bj ö r n
Bjarna-
son hefur
ákveðnar
skoðanir á líf-
inu og tilver-
unniogheldur
^J úti skemmti-
legri heimasíðu þar sem hann
liggur ekki á skoðunum sínum.
í nýjasta pistlinum víkur hann
að Samfylkingunni og endar
á þessu: „Að lokum legg ég til
að Björgvin G. Sigurðsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
skrifi tvær blaðagreinar á hverj-
um degi um menntamál - þá
mundi Samfylkingin líklega
minnka enn hraðar.“ Stutt en
skorinort hjá Birni Bjarnasyni.
Pá er það staðfest. Reykja-
vík er í þriðja sæti yfir þær
borgir þar sem dýrast er að
dvelja - aðeins Osló og Tokyo
njóta þess vafasama heiðurs að
vera dýrari. Það er stofnunin
Economist Intelligence Unit
sem gerir þessa könnun. Rétt
er að geta þess að aðeins munar
einu stigi á Reykjavík og Tokyo
í þessari könnun sem gerð er
annað hvert ár. Það er aldrei
að vita nema við náum að bæta
okkur fyrir næstu könnun...
Söknuð-
urgam-
alla krata
er mikill
og þeir sjá
nú gamla
A1þ ýð u -
flokkinn
og allt sem hann stóð fyrir í
hyllingum. Reynir Trausta-
son gerir góðlátlegt grín
af þessu á heimasíðu sinni.
„Gamli Alþýðuflokkurinn
á 90 ára afmæli í mars næst-
komandi. Munaðarleysingjar
úr rannni Alþýðuflokksins á
borð við Hrafn Jökulsson
og Kolbrúnu Bergþórsdótt-
ur hafa rætt þann möguleika
að rétt væri að blása nýju
lífi í flokkinn sem aldrei var
lagður formlega niður. Guð-
mundur Árni Stefánsson
sendiherra er enn formaður
flokksins en vilji er til þess að
fá nýjan formann. Þar beinast
augu fólks að Össuri Skarp-
héðinssyni eða jafnvel Jóni
Baldvin Hannibalssyni
sem báðir þykja vera réttir
menn í brú gamla síðutogar-
ans eftir að hafa í formennsku-
tíð stýrt farsællega í gegnum
brimskafla og á milli skerja,"
segir Reynir Traustason
Því miður, ég sá bara ekki skiltið.