blaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 14
blaðið---- Útgáfufélag: Árog dagurehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. VÆNDI OG REFSINGAR Ætla má að góð sátt geti myndast um frumvarp það, sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur lagt til kynningar fyrir ríkisstjórn um endurskoðun á tilteknum ákvæðum almennra hegningarlaga um kynferðisbrot. I frumvarpsdrögunum er m.a. lagt til að hert verði á skilgreiningu hug- taksins „nauðgun“, refsing við þeim glæp verði hert til muna og fyrning- arfrestur slíkra afbrota lengdur. Refsing fyrir samræði og önnur kyn- ferðismök við barn yngra en 14 ára verði og þyngd og geti slíkur glæpur haft allt að 16 ára fangelsisvist í för með sér líkt og við mun eiga um nauðgun, nái frumvarpið fram að ganga. Þá er og gert ráð fyrir breyt- ingum á fyrningarfresti vegna kynferðislegrar misnotkunar barna og refsihámark vegna áreitni verður einnig aukið. Fullyrða má að almennt og yfirleitt feli frumvarpið nýja í sér aðlögun að þeim sjónarmiðum, sem uppi eru á íslandi nú um stundir. Kynferðisaf- brot hafa mjög verið til umræðu og ljóst má vera að mikill meirihluti al- mennings er þeirrar hyggju að refsingar við slíkum glæpum séu úr hófi fram vægar. Þá hefur núgildandi fyrningarfrestur þess háttar afbrota sætt harðri gagnrýni. Líklegt sýnist að einna umdeildastur verði sá kafli frumvarpsins, sem lýtur að vændi. Lagt er til að grein í núgildandi lögum, sem kveður á um að refsivert sé að stunda vændi sér til framfærslu, falli niður. Þess í stað verði lögfest ákvæði um refsinæmi þess að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum við annan mann í opinberum auglýsingum, eins og segir í frumvarpstextanum. Þá er í frumvarpinu ekki að finna klásúlu þess efnis að refsivert skuli vera að kaupa „vændisþjónustu“, sem ýmsir hér á landi hafa hvatt til að tekið verði upp að hætti Svía. Þessi þáttur frumvarpsins sýnist einnig fela í sér aðlögun að stað- reyndum og veruleika. Vændi er ákveðin „starfsemi“ sem iðkuð er á Is- landi líkt og í öðrum löndum. Reynslan kennir að ógerlegt er að koma í veg fyrir hana og að beinlínis er óæskilegt að vista þennan þátt mannlífs- ins í „undirheimum“. Spyrja má hvort frumvarpið gangi ekki of skammt í þessu efni. Úr því að í ráði er að banna ekki vændi og kaup á slíkri „þjónustu" er þá ekki hyggilegt að móta ramma um þessa „starfsemi" alla, skatta, heilbrigðisþjónustu og viðeigandi auglýsingavettvang? Vonir hljóta að vakna um að dómsmálaráðherra láti að þessu loknu endurskoða lög um refsingar vegna ofbeldisverka. Þær eru úr hófi fram vægar. Gleymst hefur að réttur fórnarlamba og hagsmunir almennings fara saman í því efni. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Simbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur. Dúndurverð hjá Dal Eldshöfða 16, bakhús Sími: 616 9606 Opið milli 12-16 nemafimmtudaga milli 12-18 14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 ; blaöió ViÞ FðrúM BKVj BrNi Á NEiWU TjnNMtfS BóluErNi NoWMi BoY. forr/j eR sruwve, UM nv WeílSS upÞ Á KSSAR VwKvpu ElSKUB PERSÓNULEGA OG KVtJMA TVRiR >EilV\ -TfEléir AvGA pr'R-'P TtuGA, Ti'iÚI TrRÍRTÓHK IOO dagar til kosninga Næstkomandi laugardag halda sjálf- stæðismenn í Árborg prófkjör vegna sveitarstjórnakosninga. Aðrir halda ekki prófkjör og er þetta því eina tækifæri íbúanna til að hafa bein áhrif á val fólks á framboðslista. Mikill áhugi er á prófkjörinu og hafa 15 manns gefið kost á sér, sem þykir allnokkuð þegar haft er í huga að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aðeins tvo bæjarfulltrúa af níu. Ætla má að óánægja með núverandi meirihluta Framsóknar og Samfylkingar valdi hér nokkru, en jafnframt skiptir vaxandi stuðningur við Sjálfstæðis- flokkinn á landsvísu miklu. Tækifæri Árborgar Fá sveitarfélög eru í jafnmiklum vexti og Árborg, enda hefur sveitar- félagið upp á margt að bjóða, ekki síst vegna legu sinnar, fjölbreyttra búsetumöguleika og síðast en ekki síst; sofandahátt í höfuðborginni. Á síðasta ári fjölgaði íbúum Árborgar um tæp fimm hundruð og eru íbúar nú yfir sjö þúsund talsins. Þessari fjölgun þarf að mæta af metnaði og með langtímahugsun. Árborg á að vera fyrsta flokks sveitarfélag, enda hefur það upp á Selfoss, Eyr- arbakka, Stokkseyri og gamla Sand- víkurhreppinn að bjóða. Árborg er miðsvæðis á Suðurlandi og verður sífellt tengdara öðrum landsfjórð- ungum, ekki síst með greiðfærari Hellisheiði, Suðurstrandarvegi og Kjalvegi norður. Sérstaða Ar- borgar er ekki hvað síst nálægðin við uppsveitir Árnessýslu þar sem sumar- og heilsársbústöðum fjölgar stöðugt. Hestamennska og ferða- mennska haldast í hendur og eru bújarðir óðum að fá nýtt hlutverk. Bæjarstjórnin á að nýta sér vaxtar- tækifærin og bjóða upp á byggingar- land og aðstöðu sem er í fremstu röð. Vinna þarf heildarskipulag til langs tíma og efla þarf samstöðu gagnvart ríkisvaldinu. Bráðabirgðaúrræði og skammtímalausnir eru dýrari þegar upp er staðið. Eyþór Arnalds Tækifæri sjálfstæðismanna Mikill byr er með sjálftæðismönnum á landsvísu og er Árborg engin und- antekning. Óánægja með störf núver- andibæjarstjórnarmeirihlutaoggott framboð í prófkjörinu hefur aukið á byrinn. Nú þegar 100 dagar eru til kosninga gefst sjálfstæðismönnum í Árborg tækifæri til að velja sjálfir framboðslista. Aðrir flokkar veita kjósendum sínum ekki slíkt tæki- færi. Þátttaka í prófkjörinu skiptir miklu enda má segja að því fleiri Klippt & skoríð Tímaritið Séð & heyrt greinir frá því í nýútkomnu tölublaði sínu að þvert á allar vonir hafi slitnað upp úr sam- bandi íslenska Bachelor-pars- ins, þeirra Jennýjar Óskar Jensdóttur og Steingríms Randvers Eyjólfssonar Birtir blaðið viðtal við Jen- nýju Ósk, sem piparsveinn-il inn og smiðurinn knái valdi í þættinum með rós og hring, en á sínum tíma gumuðu hjónaleysin fyrrverandi af gagn- kvæmri ást, sem þau héldu að yrði varanlegri en raun ber vitni. í viðtalinu kemur fram að þrátt fyrir öll rósabúntin hafi lífið síður en svo reynst þeim dans á rósum. Meðal annars hafi fjárhagur piparsveinsins verið sem rjúkandi rúst eftir öll stefnumótin, því á meðan tökum stóð hafi smiðnum gefist fá tækifæri til þess að lyfta hamri eða sög og tekjurnar urðu eftir þvi. Steingrímur Randver er þvi kominn aftur á byrjunarreit, nema nú er hann ekki bara kven- mannslaus heldur auralaus Ifka. IMarkaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins, mátti lesa heilsíðuviðtal við Nadine Deswasiere, stjórnarmann í SÍF, sem ný- lega var endurnefnt Alfesca, en nafnið á að vera „táknrænt fyrir sýn félagsins, sem er að vera leið- andi fullvinnslu- og markaðsfyr-i irtæki átilbúnum neysluvörum".' Það var og. Útskýrir stjórnarmaðurinn svo að alfa sé fyrsti stafur gríska stafrófsins, „festus" merki eitthvað veislukyns á latínu og svo viti allir að „esca" þýði matur á tungu þeirra Hór- asar og Sesars. Gömlum latínugrána þótti ekki mikið til um tilbúninginn. Sagði sá að þeir, sem á annað borð veltu fyrir sér merkingu orða, myndu draga þá augljósu ályktun að Al sem komi að valinu, þess öflugra verður umboð þeirra sem veljast á listann. Fjórir gefa kost á sér í 1. sæti og sjö 1.-2. sæti. Allt bendir til þess að listinn geti verið sigurstranglegur og ef vel tekst til má ætla að Sjálf- stæðisflokkurinn verði ekki lengur minnsti flokkurinn í bæjarstjórn - heldur sá stærsti. Framfarir í skipu- lags- og menntamálum eru áberandi undir stjórn Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnum, enda hafa menn fylgst vel með því hvernig til hefur tekist í Kópavogi, Garðabæ, Mos- fellsbæ og Reykjanesbæ. Þar hefur Sjálfstæðisflokknum verið treyst og þar hefur gengið vel. Fólkið er ánægðara og bragur bæjanna undantekningalaust betri svo eftir er tekið. Skólamálin hafa tekið mestum framförum í þeim bæjar- félögum þar sem sjálfstæðismenn eru við stjórnvölinn. Ég er sann- færður um að nú sé röðin komin að Árborg. Sjálfstæðismenn hafa alla burði til að verða leiðandi afl í bæj- arstjórninni á næsta kjörtímabili. Fjölmörg tækifæri bíða i skipulags- málum, menntamálum, fjármálum, ferðamálum, gatnagerðarmálum og málefnum eldri borgara. Ef rétt er á spilum haldið verður Árborg eftirsóttasta sveitarfélagið á næsta áratug. Til þess eru allar forsendur - nú er bara að vinna vel. Höfundur sækist eftir 1. sæti sjálf- stœðismanna í sveitarstjómarkosn- ingum íÁrborg. kUpptogskorid@vbl.is væri ákveðinn greinir úr arabísku og að fesca væri grunsamlega líkt fascia, axarvöndlinum, sem fasistar kenndu sig við. Alfesca væri því tæpast góð latína á þessum óvissutímum í alþjóðasamfélaginu. Island komst i gær í fréttirnar hjá Banda- ríkjamönnum vegna vetrarólympfuleik- anna, sem sagt er að standi sem hæst einhvers staðar. Ekki er það þó vegna afreka, þvert á móti. Blaðamanni hjá fréttastofunni Gannett þótti nefnilega athygl-j isvert að fsland skyldi aldrei hafa unnið til verðlauna í neinni vetraríþrótt. (fréttinni er rætt við Guðmund Jakobsson, fararstjóra (slenska hópsins, og er á honum að skilja að gróðurhúsaáhrifin og snjóleysi af þeirra völdum sé ástæðan fyrir medalíuleysi íslendinga.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.