blaðið - 20.02.2006, Qupperneq 22
30 I ÍÞRÓTTIR
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 blaðiö
,Hópurinn kæmist fyrir í Fiat"
Hœðst að árangri íslands á vetrarólympíuleikum í bandarískum blöðum
í bandaríska dagblaðinu Courier
Post birtist um helgina grein þar
sem rætt er um ísland á vetrarólymp-
íuleikum. Greinin hefst á orðunum:
,ísland, talandi um falska mark-
* aðssetningu. Ég vissi að þar væri
þorskur, en ég hélt að þar væru líka
skíðamenn."
Það er íþróttafréttamaðurinn
Mike Lopresti sem skrifar greinina
og fer háðuglega en á gamansaman
hátt um árangur Islendinga á
vetrarólympiuleikum.
„Sindri Pálsson lenti í 53. sæti í
bruni og varð þar með á undan
keppanda frá Andorra en rétt á eftir
gaurnum frá „vetraríþróttaparad-
ísinni“ Brasilíu. Sindri virtist vera
fínasti náungi. Auk þess var auðvelt
að komast að honum þar sem Islend-
ingar sendu enga fjölmiðlamenn
til Tórínó, enda eru bara fimm
keppendur frá Islandi hérna,“ segir
Lopresti í greininni og bætir við að
allur ólympíuhópurinn gæti komist
fyrir í Fiat-bifreið. „Auk þess fjalla
fjölmiðlar á íslandi bara um hand-
boltaliðið. Frægasti íþróttaviðburð-
urinn í sögu landsins er skákviður-
eign Bobby Fischers.“
Lopresti hefur eftir Sindra Páls-
syni að það sé erfitt að æfa hér á
landi. „Það er aldrei hægt að vera
viss um að það sé snjór. Þegar ég var
lítill var alltaf snjór. Nú er ekki snjór
nema í mesta lagi í tvo mánuði. Það
snjóaði aðeins fyrir jól, en nú er bara
grjót,“ sagði Sindri. Lopresti lýkur
greininni á orðunum: „ísland, með
sitt norðurskauts nafn, mun halda
áfram að reyna að vinna sín fyrstu
verðlaun á vetrarólympíuleikunum.
Þá hefur því tekist að ná jafn góðum
árangri og Nýja-Sjáland.“
Best í fegurðarsamkeppnum
1 blaðinu L.A. Times er svipað uppi
á teningnum. „ Að landið heiti Island
er eins og að kalla sköllóttan mann
Krulli,“ segir þarogþáerþesseinnig
getið að á landinu séu aðeins þrjú
skautasvell. Blaðamaður stingur
upp á því að nafni landsins verði
breytt í „Ekki-mikið-af-ís-land.“ í
L.A. Times er einnig talað um hand-
boltaáhuga þjóðarinnar og að lík-
lega væri besta nafnið „Handland".
„Líklega fer bara of mikil áreynsla í
að bera fram nöfn þannig að íslend-
ingar hafa ekki orku í að þjálfa. Það
stenst þó reyndar ekki alveg því að
ísland hefur unnið þrjú verðlaun á
sumarólympíuleikum.“
1 greininni segir að þó að Islend-
ingar hafi ekki bestu genin í vetr-
aríþróttir hafi þeir yfirburði þegar
kemur að fegurðarsamkeppnum
og héðan hafi komið þrjár ungfrú
heimur. „Og hvort vill maður frekar?
Þjóð sem á góða skautahlaupara eða
fallegar konur?“ segir að lokum í
L.A. Times.
bjorn@bladid. net
FÆSTI OLLUM HELSTU VERSLUNUM, SOLUTURNUM
fjC
OG BENSÍNSTÖÐVUM UM ALLT LAND l
Ath. að Innanbæjartaxtl bætlst á símareiknlng
þegar hringít er í upphringtnúmerið 512-6000,
Upphringinúmer: 512-6000 2000 krónur He»!ms»F-re»isi
I öÆ'kli 'ií^ ur /i f. oluslnOiim
i Australia 630 min. '
Australia mobile 70min.
: Canada 630 mm.
Canada mobile 630 min.
Denmark 550 min. 1
! Dcnmark mobile 63min. 1
Germany 550 min.
Germany mobile 63 mm. 1
Norway 550 min. ]
Norway mobile 67 min.
Poland 470 min.
Polandmobile 62 min. ;
Thailand 220 min. :
Thailand mobile 220 min.
! UK 550 min ;
UKmobile 69min.
USA 550 min. |
; USAmobile 550 min.
1 Tncse are oníy eicaniples. yo.i can I
I call any phcnc all ovc: ihe world.
Upphringinúmer: 512-6000 1000 krónur He»imsF-relsl
I Hmií’htj grífin? númer en Uv.t ii ni-r*uíuf
• Australia 310 min. |
; Australia mobile 33 min.
í Canada 310 min. j
1 Canada mobile 310 min. ;
; Denmark 270 min.
Denmark mobile 30min.
! Germany 270 min. |
Germany mobile 30min. |
i Norv/ay 270 min.
' Norv/ay mobile 32 min. i
! Poland 230 min. |
! Poland mobile 30min.
Thailand 100 mm.
i Thailand mobile 100 min. i
! UK 270 min.
; UKmobile 33min.
USA 270 min. |
i USAmobile 270 min. j
| ö«iía eru aóeins 'o clajm i. þvi ba?-t 1
I or 3ó hringjo i c 1 .or.d um aöan hc-iml
Aðgerðin heppnaðist vel
Alan Smith verðurfrá í allt að níu mánuði
Alan Smith, leikmaður Manc-
hester United, gekkst í gær undir
aðgerð í kjölfar skelfilegra meiðsla
sem hann hlaut i bikarleik liðsins
gegn Liverpool á Anfield á laugar-
dag. Hinn 24 ára gamli Smith bæði
fótbrotnaði og fór úr ökklalið og
er talið að hann verði frá í allt að
níu mánuði. Leikurinn tafðist um
fimm mínútur á meðan verið var
að hlúa að Smith og koma honum
út af. Læknar Liverpool-liðsins
aðstoðuðu kollega sína hjá Manc-
hester áður en honum var komið á
sjúkrahús.
Talsmaður Manchester United
sagði á heimasíðu klúbbsins að
aðgerðin hefði heppnast mjög vel
en Smith myndi þó dvelja á sjúkra-
húsinu næstu tvo dága. „Fóturinn
verður i gifsi í nokkrar vikur. Allir
sem tengjast félaginu óska Alan
alls hins besta og vonast eftir að
hann nái skjótum bata.“
Gary Neville, samherji Alan
Smith, sagðist hafa fengið áfall
þegar hann sá atvikið. „Við gátum
ekki hitt Alan beint eftir leik-
inn en við hugsuðum stöðugt til
hans. Það má segja að þetta hafi
gert slæman dag 10 sinnum verri,“
sagði Neville.
Dæmigert fyrir tímabilið
David O’Leary, stjóri Aston Villa,
ræddi um atvikið við BBC-útvarps-
stöðina en O’Leary þjálfaði Smith á
sínum tíma hjá Leeds. „Þú finnur
ekki mann með sterkari persónu-
Alan Smith í leik með Manchester
United.
leika og hann mun vafalaust koma
til baka enn betri en áður. Ég sá
endursýningarnar af atvikinu og
þetta leit hræðilega út. En vonandi
munum við sjá hann fljótlega aftur
því að þetta er leikmaður sem á
frábæran feril framundan," sagði
O’Leary um málið.
Alex Ferguson, stjóri Manc-
hester United, sagði atvikið vera
eitt það versta sem hann hefði
séð á löngum ferli sínum. „Ég sá
atvikið ekki gerast því ég var að
fylgjast með boltanum. En ég sá
á viðbrögðum leikmannanna í
kringum Alan að þetta væri eitt-
hvað hræðilegt. Þetta er enn eitt
áfallið fyrir okkur og alveg dæmi-
gert fyrir þetta tímabil," sagði
Ferguson.
Spurs íhuga að breyta
nafni leikvangsins
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham
Hotspur íhugar um þessar mundir
að breyta nafninu á heimavelli
sínum, White Hart Lane, en það
yrði liður í því að auka auglýsinga-
tekjur félagsins. Þetta var haft eftir
Paul Barber, framkvæmdastjóra Tot-
tenham, í News of the World í gær.
„Við útilokum ekki að selja réttinn á
nafni leikvangsins. Það er eitt af því
sem gæti hjálpað okkur að keppa á
meðal þeirra bestu,“ sagði Barber,
en liðið leitar nú leiða til þess að
auka tekjur sínar verulega.
Tottenhamsiturumþessarmundir
í fjórða sæti ensku úrvalsdeildar-
innar, sem gefur rétt til þátttöku í
HEvrópukeppni
meistaraliða.
Liðið hefur
fimm stiga for-
skot á erkifjend-
uma í Arsenal
sem þó eiga leik
til góða. Barber
sagði að ef Tot-
White Hart Lane. tenham tækist
að komast í meistaradeildina myndi
það gera liðið mun meira aðlaðandi
í augum mögulegra fjárfesta. „Meist-
aradeildarsæti myndi gera okkur
kleift að hrinda í framkvæmd stór-
tækari áætlunum en eru í gangi
núna,“ sagði Barber.
Spónasalan ehf
Spónlagðar spónaplötur eik
www islandia.is/sponn
Smiðjuvegur 40 gul gatas - s: 567 5550