blaðið - 20.02.2006, Síða 30

blaðið - 20.02.2006, Síða 30
38 I FÖLK MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 blaðið PREYTTUR BRANDARI Smáborgarinn, líkt og sjötíu þúsund aðrir Smáborgarar, kaus Silvíu Nótt á laugardagskvöldið. Það hvarflaði auð- vitað að Smáborgaranum þegar hann dældi peningunum sínum í símareikn- ing til að styðja við bakið á íslenskum klámútflutningi hvort velgengni Silv- íu Nóttar væri ekki um það bil orðin öfugmæli á brandaranum. Þegar Smá- borgarinn horfði á framlag (slendinga til Eurovision sönglagakeppninnar árið 2006 í þriðja skiptið runnu á hann tvær gri'mur. Smáborgarinn verður að viður- kenna fyrir sitt leyti að á meðan Silvía var að stiga sín fyrstu skref í gríni sínu á klámkynslóðina var hún bara nokk- uð góð. Djókurinn var hreinn og klár og allra skemmtilegast að um skeið tóku margir sjónvarpsáhorfendur því svo að stúlkunni væri fúlasta alvara. Það er svo sem kannski ekkert skrýtið miðað við hugmyndir nýrra kynslóða um lífsins innstu rök. í sjálfu sér má vel segja að hinn uppdiktaði karakter Silvía Nóttar sé fullkomlega eðlilegur fulltrúi þessarar kynslóðar svo kannski ekkert skrýtið að fólk gerði sér, já og geri sér, ekki grein fyrir djókinu. Sami brandarinn gengur bara eitt- hvað svo illa aftur og aftur. Þannig var Smáborgarinn ekki eins sannfærður um gildi brandarans þegar hann sá hann i annað skiptið á laugardags- kvöld og í þriðja skiptið var hann orðinn verulega pínlega endurtekinn. Svona svipað og fuglaflensudjókur Spaugstofunnar. Smáborgarinn var bú- inn að hlæja að fyrsta hósta og þurfti ekkert á þriðja, fjórða og fimmta að halda. Brandarinn verður að fullkom- inni andhverfu sinni í endurtekning- unni. Nú á Smáborgarinn von á þvi að uppfinningasamur hópurinn í kring- um Silvíu Nótt láti sér vafalaust detta eitthvað nýtt í hug með vorinu og nýtt „show" hreinlega útbúið áður en snótin stígur á sviðið í Aþenu. Og miðað við það sem á undan er gengið er Smáborgarinn á því að þeim takist það ábyggilega bara ágætlega. Hver- su tremma mörgum stigum hún rakar svo inn er svo auðvitað algert aukaat- riði. Hún fer fyrir Eurovisjón Nation. Þjóðinni sem getur hlegið að sama brandaranum mörgum sinnum. Alveg þartilhúnnærhonum. HVAÐ FINNST ÞÉR? Gunnar L. Hjálmarsson, tónlistarmaður. Heldur þú aö Silvía sigri í Grikklandi? „Það verður spennandi að sjá hvort íslenski góðærisbrandarinn verði að- lagaður að Eurovision stöðlum, eða hvort þau reyni að keyra hann í gegn óblandaðan. Ég þori engu að spá um úrslitin. Maður hefur nú farið flatt á því að reyna að segja eitthvað til um hvað þetta fólk er að hugsa sem ákveð- ur þessi úrslit í Evrópu. Það verður að minnsta kosti miklu skemmtilegra að fylgjast með þessu í þetta skiptið þegar við sendum fulltrúa sem er öðruvísi og er ekki að taka sig of alvarlega." Silvía Nótt bar sigur úr býtum á laugardagskvöldiö i Söngvakeppni Sjónvarpsins. Nektin ónauðsynleg Óskarsverðlaunahafinn Meryl Streep segir ungar leikkonur alls ekki þurfa að afklæða sig í kvikmyndum til að hljóta frægð og frama. Streep hefur ráðlagt ungu leikkonunum Scarlett Johansson og Keira Knightley, sem nýlega sátu naktar fyrir í tímaritinu Vanity Fair, að láta ekki undan þrýstingi til að bera hold sitt til að fá aukna athygli. „Þær halda augljóslega að þær þurfi að afklæðast til að þóknast bransanum,“ sagði Streep. „Þær virðast halda að þær þurfi að vera kynverur til að fá hlutverk. Yngri kynslóð leikara virðist halda að nekt sé leiðin að farsæld.“ Britney aftur í bransann Ofurpoppstjarnan Britney Spears leggur nú drög að endurkomu sinni í skemmtanabransann vegna þess að henni finnst tónlistin sem er í gangi í dag leiðinleg. Britney lagði hljóðnemann á hilluna fyrir rúmum tveimur árum og sneri sér að móðurhlutverkinu. Núna langar hana að etja kappi við Kelly Clarkson, Hilary Duff, Lindsay Lohan ásamt fleirum og endurheimta forna frægð. „Enginn tónlistarmaður hefur náð að virkilega heilla mig nýlega,“ sagði Spe- ars í samtali við tímaritið People. „Þetta er allt svo leiðinleg tónlist." Britney vill þó aðeins þróa tónlist sína frá poppinu yfir í blús. „Ég hlustaði mikið á blús og langar að blanda honum í mína tónlist, ekki það að ég að hljóma eins og Tina Turner, en maður veit aldrei.“ Ledger vill leika Bush Ástralski leikarinn Heath Ledger segist vilja leika George Bush, forseta Bandaríkjanna, til að sýna hvað hann getur sem leikari. Ledger segir að hann sem leikari þurfi að skilja hvernig fólk hugsar og setja sig í spor þess, meira að segja fólks sem honum mislíkar. „Ég gæti alveg sett mig í spor George Bush ef ég þyrfti,“ sagði Ledger um málið. „Ég gæti sýnt hvaða einasta manni samúð og skilning til að geta leik- ið hann og elskað hann sem einstakling. Ég meina, ég anda og það gera allir aðrir, það er ein leið til skilja manneskjur.“ HEYRST HEFUR... Menn hafa s t u n d - um kvartað undan því að fjölmiðla- menn séu sjálf- hverf stétt og undanfarnar helgar hafa menn óneitanlega orðið varir við það í spjallþátt- unum. Fyrr í mánuðinum tóku menn eftir því að Egill Helga- son var gestur í Sunnudags- þætti llluga Gunnarssonar og félaga á Skjá einum og hentu menn raunar gaman að því að Egill hefði nánast tekið völdin á sínum gamla heimavelli. 1 gær endurgalt Egill svo heim- boðið þegar hann fékk Illuga til sín í Silfrið á NFS og var Illugi svo fyrirferðarmikill að hann talaði sjálfan Hjörleif Guttorms- son í kaf og það um stóriðju... Pað hef- ur verið stuð í þinginu undanfarna daga, enda ýmis áhuga- verð mál til umfjöllunar. í umræðum um lögreglulög tók Björn Bjarnason, dómsmálaráð- herra, Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingarinn- ar, á kné sér og flengdi nánast. Ráðherrann sagði að ræða hans hefði verið ómálefnaleg og „dæmalaust vitlaus ræða og barnaleg.“ Neitaði ráðherr- ann ítrekað að svara honum og sagði Ágúst að ráðherrann væri dónalegur, legði sig í einelti og að annarleg lífsviðhorf hans birtust í tillögum ráðherrans. Björn svaraði fyrir sig, ýjaði að því að kosning Ágústs í varafor- mennsku flokksins hefði verið skrýtin og spurði hvort lífsvið- horf þingmannsins hefðu birst „í þeim tölum sem þar birtust og hvernig að því öllu var stað- ið?“ Ágúst reyndi að malda í móinn, en eftir því var tekið að flokkssystkin hans þögðu þunnuhljóði... Kærar var hins veg- ar milli Björns og varaþing- manns Sam- fylkingarinnar, Söndru Franks, nokkrum dög- um síðar, en hún situr á þingi fyrir Rannveigu Guðmunds- dóttur, sem er í veikindaleyfi. Ráðherrann tók mjög vel í áskor- un Söndru um að hann beitti sér fyrir að svokallaðar netsíur gegn barnaklámi. Þingkonan nýja varð svo ánægð með und- irtektir Björns að í svarræðu sinni ávarpaði Sandra hann „minn kæri hæstvirtur dóms- málaráðherra.“ Þetta óvana- lega ávarp vakti nokkra kátínu í salnum. Er sagt að gamalt bros hafi tekið sig upp hjá Birni, enda er hann óvanur blíðuhót- um af þessu tagi frá stjórnar- andstöðunni... Velgengni Silvíu Nóttar í Söngvakeppni Sjónvarps- ins kom sjálfsagt ekki öllum á óvart, því ljóst er að hún hefur unnið hug og hjörtu þjóðar- innar. Til þess að setja þetta í samhengi má nefna að í síma- kosningunni komu inn liðlega 150.000 atkvæði, en í síðustu forsetakosningum kusu 16.000 færri. Það má líka bera þetta saman við síðustu þingkosning- ar, því Silvía Nótt fékk ámóta mörg atkvæði og Sjálfstæðis- flokkurinn og Frjálslyndir sam- anlagt...

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.