blaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 4
4 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 blaAíð
Prófkjör
í-listans
Sigurður Pétursson, kennari,
sigraði í prófkjöri 1-listans í
Isfjarðarbæ sem fram fór á
laugardag. Sigurður hlaut alls
192 atkvæði í fyrsta sæti en í
öðru sæti hafnaði Magnús R.
Guðmundsson, bæjarftilltrúi
Frjálslynda flokksins. Alls tóku
um 478 manns þátt í prófkjörinu.
Þrír flokkar standa að
1-listanum þ.e. Frjálslyndi
flokkurinn og óháðir, Sam-
fylkingin og Vinstrihreyf-
ingin grænt framboð.
„Menntaskólinn mun rísa
hærra eftir að Ólína hættir"
Ólína Þorvarðardóttir hefur ákveðið að hcetta störfum sem skólameistari Menntaskólans
á ísafirði. Hún nýtur stuðnings í bœnum ogþykir hafa eflt skólann á síðustu árum.
LANDVÉLAR
Smlðfuvegur 66 - 200
Kópavogur- www.landveJar.ls
Sími 580 5800
Tölvunám í viðurkenndum skóla
- skráðu þig núna í nám hjá tölvuskóla TV
Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á ísafirði, hefur
ákveðið að sækjast ekki eftir endurskipun í embætti skólameistara
þegar skipunartími hennar rennur út í sumar. Ólína segir menntamála-
ráðuney tið standa ráðþrota gagnvart þeim deilum sem uppi hafa verið
í skólanum og að sáttasamningur sem lagt var upp með, sé í uppnámi.
„Ég hef fylgst með máli Ólínu skóla-
meistara en vil sem minnst um
þetta segja því þetta er viðkvæmt
mál,“ segir Halldór Halldórsson, bæj-
arstjóri á Isafirði. „Málið hefur farið
vítt og breitt frá því það hófst og ég
hef ekki heyrt mikið um þetta eftir
að Ólína tók þá ákvörðun að segja
af sér.“ Halldór var fámáll um málið
en sagðist óska öllum velfarnaðar
sem að því kæmu.
Hermann Níelsson, íþróttakenn-
ari við Menntaskólann á Isafirði,
segir að skólinn muni rísa hærra
eftir að Ólína kveður skólann í vor.
„Stjórnunarhættir Ólínu voru á þann
veg að það var erfitt fyrir kennara að
standaundirþeim. Margirkennarar
áttu mjög erfitt á meðan hún var við
störf en nú fer þessum tíma loksins
að ljúka.“
Ekki hægt að pína fólk í friðarferli
Hermann segir það friðarferli sem er
í gangi í skólanum ekki hafa gengið
vel fram að þessu og sú tillaga að
þeir sem ekki vildu taka þátt yrðu
látnir fara standist ekki lög.
„Það er ekki hægt að pína fólk til að
taka þátt í þessu ferli og Ragnar Hall,
lögfræðingur kennarasambandsins,
..kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
Ólína Þorvarðardóttir
SOIuafilli Akureyrt Slml 461 2288
STRAUMRÁS
Furuvellir 3 - 600 Akureyrl
hefur staðfest
það. Tveir að-
ilar skrifuðu
ekki undir
þátttöku að
friðarferlinu
og var Ólína
mjög ósátt við
það. 1 kjölfarið
hótaði hún
þeim áminn-
ingu sem ekki
höfðu skrifað undir þátttöku að frið-
arferlinu fyrir ákveðinn tíma.
Ólína ber ekki gæfu til þess að
stilla til friðar og í þeim deilum sem
upp hafa komið í menntaskólanum
hefur hún ætíð verið annar aðilinn.
Á námskeiðinu þar sem stilla átti
til friðar kom berlega í Ijós hversu
Ólína á erfitt með skap sitt þegar
hún skammaði fólk fyrir óstundvísi
en það voru sálfræðingar sem stóðu
fyrir námskeiðinu og hefði það átt
að vera þeirra verk.“
Hermann segir ástandið í skól-
anum hafa verið ömurlegt og að lítið
faglegt starf hafi farið fram á meðan
á öllu ferlinu stóð.
Meirihluti bæjarbúa
ábakviðólínu
Ónefndur Isfirðingur, sem Blaðið
ræddi við í gær, fullyrti að Ólína
hefði meirihluta bæjarbúa á bak við
sig og bætti við að hún hefði gert
mjög góða hluti fyrir skólann. Stofn-
unin hefði elfst mjög í tið hennar og
eftirtektarverðar framfarir orðið.
Þetta gerðu bæjarbúar sér ljóst og
myndu margir því harma að sjá á
bak skólameistaranum.
Sjálf hefur Ólína sagt að fámennur
en hávær hópur andstæðinga hennar
hafi haldið skólanum í herkví.
1 fréttatilkynningu sem Ólína
sendi frá sér á laugardag kemur
fram að það sé henni harmsefni að
sá árangur sem náðst hefur í starf-
semi skólans skuli hafa verið yfir-
skyggður af innanhúsdeilum og nið-
urrifsumræðu sem enn sjái ekki fyrir
endann á. „Óvissa ríkir um áfram-
hald skólaþróunarverkefnisins sem
ætlað var að efla frið og eindrægni
meðal starfsfólksins. Skólanefnd og
ráðuneyti standa ráðþrota frammi
fyrir vandanum og hafa ekki veitt
stjórnendum eða hinum almenna
starfsmanni þann tilstyrk sem þurft
hefði. Við þessar aðstæður er stjórn-
endum í reynd gert ókleift að vinna
að framför skólans - og við svo búið
má ekki standa lengur.“
Ólína kveðst ætla að nota þann
tima sem eftir er til að búa í hag-
inn fyrir komandi skólaár og ljúka
verkefnum sem bíða úrlausnar fram
að þeim tíma. Að því loknu vonast
hún til þess að geta staðið upp frá
vel unnu verki og kvatt nemendur
skólans og starfsfólk í fullum friði
og sátt.
Eftirför í höfuðborginni
Góð byrjun á tölvunámi
■ ► Almennt tölvunám
Ef þú hefur litla reynslu af tölvunotkun eða vilt fá Itarlegt námskeið um allt
það helsta sem gert er með tölvum þá er þetta frábæra námskeiö fyrir þig.
Helstu kennslugreinar
• Windows, Word og Excel
• PowerPoint, Outlook og Internetið
Lengd: 90 stundir/60 klst. • Verð: 69.990
► Tölvuþekking fyrir konur
Námskeið sem hefur slegið í gegn, ætlað þeim konum sem vilja ná færni í
notkun tölva við margvísleg verkefni hvort sem er í vinnu eða heima.
Helstu kennslugreinan
• Tölvugrunnur, Windows og Word
• Excel, Internetið og tölvupóstur
Lengd: 60 stnd./40 klst. morgun eða kvöld • Verð: 45.900
► Tölvunám fyrir 50+
Ef þú hefur ekki ennþá lært á tölvu og ert komin(n) yfir fimmtugt er þetta
rétta námskeiðið fyrir þig. Þægilegur hraði, spennandi efni og frábær kennsla
gerir þig að öflugum tölvunotanda.
Helstu kennslugreinar:
• Tölvugrunnur, WindowsogWord
• Excel, Internetið og tölvupóstur
• Stafræn Ijósmyndun og vinnsla
Lengd: 72 stnd./48 klst. • Verð: 59.900
Tölvunám TV til betri verka
- hringdu núna í síma 520 9000
- og skoðaðu www.tv.is til að fá meiri upplýsingar
U)
mmm
*
4f
■
£
TOLVU- OG
VERKFRÆÐIMÓNUSTAN
Mikið var að gera hjá lögreglunni í Reykjavík aðfaranótt sunnudags.
Aðfaranótt sunnudags var
erilsöm hjá lögreglunni í Reykja-
vík og þurfti hún að sinna yfir
80 verkefnum frá miðnætti til
morguns. Þá þurfti lögreglubíll
að beita þvingunum til að stöðva
akstur bifreiðar eftir rúmlega 10
mínútna eftirför.
Mikiðumölvun
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var
helgin óvenju erilsöm og þurfti lög-
reglan að sinna yfir 80 verkefnum
aðfaranótt sunnudags aðallega í
tengslum við einstaklinga undir
áhrifum áfengis eða annarra vímu-
gjafa. Fjölmenni var í miðbæ Reykja-
víkur og ölvun almenn. Mikið var
um pústra og þurftu nokkrir að
leita sér aðhlynningar á slysadeild
í kjölfar þeirra. Sex ökumenn
voru stöðvaðir vegna gruns
um ölvun við akstur.
Sinnti ekki stöðvunarmerkjum
Þá þurfti lögreglan að beita þving
unum til að stöðva bifreið sem
sinnti ekki stöðvunarmerkjum. Lög
reglan hafði fyrst afskipti af bifreið
inni á Sæbraut vegna hraðaksturs.
Þegar ökumaður sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu
upphófst eftirför þar sem
um fimm lögreglubílar
tóku þátt. Það var
loks á aðrein til
austurs að Ár-
túnsbrekku
fráReykja-
n e s -
braut sem lögreglan náði að stöðva
bifreiðina með því að keyra utan
í hana. Hafði eltingarleikurinn þá
staðið yfir í rúmar tíu mínútur.
Grunur leikur á að ökumaðurinn,
kona á miðjum aldri, hafi verið
ölvaður. Lögreglan hefur
áður þurft að hafa afskipti
af konunni undir svip-
uðum aðstæðum þar
sem einnig þurfti
að beita þving-
unum til að
s t ö ð v a
akstur.
Qt
Grensásvegi 16 • 108 Reykjavik ■ Sími 520 9000 • tv@tv.is ■ www.tv.is