blaðið - 27.02.2006, Qupperneq 19
blaðiö MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006
KVIKMYNDIR 1 27
Með köldu blóði
Capote _______________________
Leikstjóri: Bennett Miller
Aðalhlutverk: Philip Seymour Hoffman,
Catherine Keener og Clifton Collins jr.
Gott: Philip Seymour Hoffman
Vont: Ekkert í fljótu bragöi
Sýnd í Regnboganum
Ég upplifi kvikmyndir oft eins og
tónlist. Oftþarfégaðhorfanokkrum
sinnum á einstakar myndir áður en
ég næ þeim og byrja að meta þær að
verðleikum. Það er samt þannig með
nokkrar plötur að þær smella bara í
fyrstu hlustun og strax eftir fyrsta
rennsli ýtir maður á play og spilar
hana aftur í gegn. Capote er þannig
kvikmynd, þegar hún var búin vildi
ég strax sjá hana aftur - hún er það
frábær.
Truman Capote var hálfgerður
furðufugl, eða sérvitringur skulum
við segja. Helstu einkenni hans
voru skræk röddin og snyrtilegur
klæðnaður en hann lét aldrei sjá sig
án þess að vera í einhverri fíottri
merkjavöru.
Árið 1959 las hann um hræðileg
morð á fjögurra manna fjölskyldu
í Kansas-fylki í Bandaríkjunum.
Hann fékk þá hugmynd að grein og
fór ásamt kollega sinum Harper Lee
á slóðir morðanna og hóf rannsókn-
arvinnu fyrir grein sem birtast átti í
The New Yorker.
Capote grennslast fyrir um málið
og kemst að þvi að hann er með
miklu meira en blaðagrein, hann
er með efni í bók sem varð hans
merkasta verk, In Cold Blood. Hann
mútar fangelsisyfirvöldum til að fá
að taka ítarleg viðtöl við fangana
og þá sérstaklega við annan þeirra,
Perry Lee, hljóðlátan og listrænan
mann sem átti erfiða æsku.
Brenglað siðferði
Myndin sýnir baráttu Capote við
sjálfan sig þegar hann þarf að kljást
við eigin siðferðiskennd. Hann varð
að Ijúka bók en fann til með föng-
unum tveimur. Hann borgaði fyrir
þá lögfræðinga sem töfðu aftöku
þeirra en hætti því þegar bókin var
að skríða saman vegna þess að til að
fá almennileg sögulok urðu menn-
irnir tveir að deyja.
Capote var sem sagt enginn ljúf-
lingur en hann spilaði sig þannig og
vann sér traust fólksins í kringum
sig. Hann hikaði ekki við að svíkja
það traust til að fá sínu fram. Fang-
arnir tveir og þá sérstaklega Perry
Lee, litu á Trurnan sem vin en hann
leit á þá sem viðfangsefni í bók.
Þetta var mjög erfitt fyrir hann og
leikstjórinn, Bennett Miller, og aðal-
leikarinn, Philip Seymour Hoffman,
fanga þessa stemningu fullkomlega.
Hvaðerað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
Maður hneykslast á Capote um leið
og maður fær samúð með honum
vegna þess hve brothætt sál hann
augljóslega var.
Frábærlega leikin
Leikararnir í myndinni standa sig
allir með mikilli prýði en Philip
Seymour Hoffman, sem fer með hlut-
verk Capote, ber höfuð og herðar
yfir meðleikara sína með ótrúlegum
leik. Hann er að leika persónu sem
auðvelt væri að klúðra og gera að
hálfgerðum trúð en í staðinn túlkar
hann einstakling sem augljóslega
átti við vandamál að stríða og átti
ekki erfitt með að svíkja þá sem
honum treystu til að ná sínu fram.
Myndin rúllar hægt og rólega
áfram en lætur manni aldrei leið-
ast. Leikstjóra myndarinnar, Blake
Edwards, tekst snilldarlega að fanga
andrúmsloftið í smábænum þar sem
morðin voru framin og gerir í raun-
inni allt mjög vel og snyrtilega.
Þrátt fyrir að við séum ekki
komin langt inn í nýja árið ætla ég
að leyfa mér að fullyrða að Capote
er ein af myndum ársins sem og að
hún eigi eftir að verða erfiður keppi-
nautur fyrir aðrar myndir þegar Osk-
arsverðlaunin verða veitt í ár.
atli@bladid.net
Philip Seymour Hoffman og Catherine Keener standa sig bæfii frábærlega f Capote.
The leading British magazine Car came in the January 2006 to the same condusion as so many other judging panels:
THE COMPETITORS FOR THE 2005 CAR OF THE YEAR:
ALFA ROMEO 159 LEXUSRX400H JAGUARXJD
RANGE ROVER SPORT HONDA CIVIC
BMW 3-SERIES SUZUKl SWIFT RENAULT CLIO
TOYOTA AYGO MERCEDES BENZ S-CLASS
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.
www. suzukibilar. is
-BILL^
ARSINS
Suzuki Swift er bíil sem hefur sett ný viðmið í hönnun, útliti og aksturseiginleikum fólksbíla
og hefur fengið fádæma góðar viðtökur um allan heim. Suzuki Swift var valinn bill ársins á Islandi 2006
af BIBB samtökum íslenskra bilablaðamanna. Suzuki Swift var einnig valinn „Car of the Year" 2005
af virtasta bflablaði Bretlands „Car magazine'.
Hann var valinn bill ársins á Irlandi, Nýja-Sjálandi, Astraliu, Kina, Malasiu og Japan.
I Japan fékk Suzuki Swift Ifka „most fun special special achievement award" og „Design award of the year'.
$ SUZUKI
...er lífsstiíl!