blaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 blaðið Réttarhöld vegna árásanna þann 11. september hefjast í Bandaríkjunum Fyrstu réttarhöldin í Bandaríkj- unum vegna hryðjuverkaárásanna í New York og Washington D.C. þann n. september 2001 hófust í Virginíu- ríki í gær. Dæmt verður í máli Zacarias Mo- ussaoui, 37 ára fransks ríkisborgara af marakóskum ættum, en hann hefur viðurkennt að tilheyra al-Qa- eda hryðjuverkasamtökunum og hafa lagt stund á flugnám í þeim tilgangi að nota farþegaflugvél til hryðjuverkaárásar. Saksóknari krefstdauðarefsingaryfirMoussaoui og er talið að málsóknin muni beina kastljósinu enn á ný að þeim mis- tökum sem lögreglu- og eftirlitsyfir- völd í Bandaríkjunum gerðu í aðdrag- anda árásanna á Tvíburaturnana og Pentagon, höfuðstöðvar bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Hafði ekki áhuga á að lenda flugvélum Zacharias Moussaoui var handtek- inn þann 17. ágúst 2001 vegna brota á innflytjendareglum. Ástæðan fyrir að yfirvöld innflytjendamála könnuðu mál hans var sú að kenn- ari hans við flugskóla í Minnesota- ríki þótti grunsamlegt að hann sýndi einungis áhuga á því að læra að stýra Boeing 747 þotum. Flugtök og lendingar heilluðu hann ekki auk þess sem hann stefndi ekki á útskrift úr skólanum. Kennarinn hafði samband við yfirvöld og vakti athygli þeirra á málinu. Moussaoui var í haldi þegar árás- irnar voru gerðar í september. Þrátt fyrir að mál hans hafi komist á borð Georg Tenet, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar, ásamt sönnunar- gögnum um tengsl Moussaoui við al-Qaeda var ekkert aðhafst. Fyrir handtökuna höfðu frönsk yfirvöld vakið athygli bandarísku leyniþjón- ustunnar á þessum tengslum. Ætlaði að gera árás á Hvíta húsið Moussaoui hefur verið í haldi banda- rískra stjórnvalda í 5 ár og er eini maðurinn sem hefur verið kærður fyrir aðild sína að árásunum á New York og Washington. Til þess að dauðadómur verði kveðinn upp yfir Moussaoui þarf að sannast að hann hafi vitað um áætlanir al-Qa- eda um árásirnar þann 11. septem- ber. Moussaoui segist sekur um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk í Bandaríkjunum með því að fljúga farþegavél á Hvíta húsið í Washing- ton D.C. en þvertekur fyrir að eiga aðild að árásunum þann 11. septem- ber. Hann viðurkennir að hafa verið hluti af hópi sem átti að gera aðra hrinu árása í kjölfar þeirrar fyrri. Þessar játningar munu að öllum lík- indum leiða til lífstíðarfangelsis. Pentagon þann 11. september 2001. Zacarias Moussaoui neitar aðild að árásunum en hefur viðurkennt að hafa tekið þátt i undirbúningi að annarri hrinu árása M OTAÐU& FALLEGRI LIKAMA á mettfma meðStrive 123 Mögnuð og byltingarkennd nýjung í líkamsrækt Kynntu þér málið, hringdu í síma 414 4000 eða sendu póst á radgjafar@hreyfing.is HReynnG Faxafeni 14 414 4000 www.hreyfing.ls Áhrifaríkasta og virkasta styrktarþjálfunarleið í heimi! Meiri árangur á skemmri tíma en áður hefur þekkst. Vöðvar eru þjálfaðir á þrjá mismunandi máta sem skilar topp árangri. Strive tækin eru notuð af bandaríska hernum sökum þess hve hægt er að ná góðum árangri á skömmum tíma. Árangur 1,2 og 3 Boðið verður upp á lokaða tíma fyrir karla og opna tíma fyrir konur og karla. Tækin verða notuð í svokölluðum tækjahring (circuit training) ásamt hjólunum. Spennandi nýjung fyrir kröfuharða þátttakendur! Keuters Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, flytur ræðu á þingi Kommúnistaflokksins á sunnudag. Heitir lífskjarajöfnun í Kína Stjórnvöld í Kína hétu því um helgina að grípa til aðgerða til að jafna lífskjörin í landinu. Efnahags- stefna stjórnvalda síðustu ár hefur orðið til þess að skapa mikla spennu í samfélaginu. Á landsbyggðinni býr gríðarlegur fjöldi fólks við sára fátækt en í borgum hefur skapast millistétt auk þess sem nýríkum Kínverjum hefur fjölgað gífurlega á undaníiðnum árum. Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, flutti á sunnudag stefnuræðu á þingi Kommúnistaflokks Kína sem um 3.000 fulltrúar sitja. Wen lýsti því yfir að miklum fjármunum yrði varið til uppbyggingar á lands- byggðinni á næstu árum. Tekjum yrði dreift með öðrum og skilvirk- ari hætti en áður til þjóðarinnar. „Það er mikið verkefni og sögulegt að skapa nýtt, sósíalískt, dreifbýli," sagði Wen. Kvað hann ákveðið að verja fjármunum til að bæta kjör alþýðu manna á landsbyggðinni og tryggja henni aðgang að margvís- legri félagslegri þjónustu. Stjórnvöld hafa áhyggjur af auk- inni ólgu á landsbyggðinni. ítrekað hefur komið þar til uppþota á síð- ustu mánuðum. Hundruð milljóna manna fá ekki notið kínverska efna- hagsundursins og fylgjast úr fjar- lægð með því hvernig samfélagið í þéttbýlinu tekur undraskjótum breytingum. I fyrra kom 87.000 sinnum til uppþota vegna bágra lifskjara í dreifbýli samkvæmt opin- berum skýrslum. Þetta viðurkenndi Wen Jiabao í gær og þótti ræða hans til marks um vaxandi áhyggjur ráða- manna af því að stöðugleika ríkisins kunni að vera ógnað. Strepsils totlur eru láthár renna 1 munni og leysast bar hægt upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi áhrif I nuinni og koki Auk bess liafa bragðetnin væg kælandi ánrit sem slá á ertingu Venjulega er ein tatla látin leysast hægt upp I munni á 2-3 klst fresti. Lyfið parf venjulega að nota 1 3-4 daga og stundum i allt að eina viku. Einnig má leysa upp 1-2 töflur i heitu vatní og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsms hefur engin áhrit a onnur lyf sem notuð eru samtimis, Ofnæmi eða ofnæmislik viðbrögð geta komið fyrir en eru afar sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 munnsogstötlur, sem eru í hentugum pynnupakkningum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar lelöjjelningar á íslensku um notkun lyfsins, sem gott er ao kynna ser vel. Geymið þar sem börn hvorki na til né sjá. HÁLSTÖFLUR - eina skráða hálslyfið á Islandi. VLyf&heilsa Ifið hlustum! Austurstræti • Austurveri ■ Domus Medica • Firöi, Hafnarfiröi • Fjaröarkatipum Glæsibæ ■ Hamraborg Kópavogi • JL-húsinu • Kringlunni 1 .hæö ■ Kringlunni 3.hæð Melhaga • Mjódd • Mosfellsbæ • Salahverfi • Eiðistorgi • Hellu • Hveragerði • Hvolsvelli Kjarnanum Selfossi • Vestmannaeyjum • Þorlákshöfn ■ Dalvík • Gierártorgi Akureyri Hrísalundi Akureyri ■ Ólafsfiröi • Akranesi • Keflavík

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.