blaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 blaðiö Hinn Kamerúnski Samuel Eto'o skorar sigurmarkið í fyrri leiknum á Stamfrod Bridge. Mourinho ætti að líta á marblettina á fótum mér áður en hann heldur slíkum þvættingi fram,“ sagði Messi. Þurfum kraftaverk Hernan Crespo, sóknarmaður Chelsea, sagði að liðið þyrfti á kraftaverki að halda í kvöld. Eng- landsmeistararnir þurfa að sigra með tveggja marka mun til þess að komast í fjórðungsúrslitin og sagði Crespo að liðið þyrfti að eiga sinn allra besta leik til þess að ná því tak- marki. „Við höfum það þó hugfast að Barcelona hefur þegar tapað á heimavelli á leiktíðinni því Atletico Madrid sigraði þá 3-1 á Nou Camp á dögunum. Við þurfum bara að hafa trú á okkur.“ Markvörðurinn Petr Cech var öllu bjartsýnni en Crespo og sagðist hafa fulla trú á að liðinu tækist ætlunar- verk sitt ef það héldi öllum 11 leik- mönnunum inn á. „Viðureignin er aðeins hálfnuð. -Við erum með nægi- lega gott lið til þess að snúa dæminu við og komast áfram,“ sagði Cech. bjorn@bladid.net Kaiserelautem - Stuttgait 2,40 2,60 2,25 Kapfenberg - LASK 2,60 2,65 2,05 Pasching - Grazer AK 1,90 2,75 2,80 Metz - Nancy 2,15 2,60 2,50 Reims - Bastia 2,50 2,60 2,15 Forfar - Stírling 3,00 2,80 1,80 Albion Rovere - Arbroath 3,25 2,85 1,70 Cowdenbeath - Elgin 1,35 3,35 4,75 Plymouth - Preston 2,45 2,60 2,20 Wolves - Stoke 1,45 3,10 4,25 Macdesfield - Cadisle 2,45 2,60 2,20 Swansea - Colchestei. 1,95 2,70 2,75 Swindon - Tranmere 2,10 2,65 2,55 Yeovil - Brentford 2,50 2,60 2,15 Bury - Stockport 1,80 2,80 3,00 Chester - Torquay 1,80 2,80 3,00 Aldershot - Accrington Stanley 3,00 2,80 1,80 Cambridge - Grays Athletic 2,25 2,60 2,40 Dagenham Redbridge - York 2,10 2,65 2,55 Exeter - Stevenage 1,90 2,75 2,80 Gravesend - Hereford 2,50 2,60 2,15 Juventus - Werder Bremen 1,35 3,35 4,75 Barcelona - Chelsea 1,85 2,75 2,90 Villareal - Glasgow Rangere 1,30 3,50 5,15 Berwick - Queens Park 1,50 3,00 4,00 Vill þagga niður í Mourinho Chelsea tapaði fyrri leiknum 2-1 en þá var Asier Del Horno rekinn af velli fyrir brot á Lionel Messi. Eftir leikinn ásakaði Jose Mourinho hinn 18 ára gamla Messi um leikaraskap og óíþróttamannslega framkomu og fór mikinn þegar hann ræddi um dómgæsluna í leiknum. Messi sagði á blaðamannafundi í gær að það væri aðeins ein leið til þess að þagga niður í málglaða Portúgalanum - að slá Chelsea út úr keppninni. „Ég vil eiga besta leik lífs mins til þess að þagga niður í Mourinho og mönnum hans. Þeir segja mig leik- ara, en þeim skjátlast. Ég er atvinnu- maður í knattspyrnu og hef þurft að þola mörg spörk á tímabilinu. SKYNDIPRÓFIÐ Sunderiand 1. Hvað heitir heimavöllur Sund- erland? 2. Hver er fyrirliði liðsins? 3. Hvert er gælunafn liðsins? 4. Hver þjálfaði Sunderland á undan Mick McCarthy? 5. Hversu mörg stig hlaut liðið tímabilið 2002/2003, sem er lægsta stigaskor í sögu úrvals- deildarinnar? 6t 'S 'uosupiiJM pJtMog ’t '(sicj i|3e|a s) j|UJj))d)| nuoAS í 'usðjg Xj0t) i ')q6n jo iumpe)s h | Börsungar hræktu að Mourinho Chelsea fékk óblíðar móttökur þegar liðið mætti til Barcelona, en síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða fer fram í kvöld. Róðurinn verður þungur fyrir Englandsmeistaranna sem þurfa að sigra með tveimur mörkum eftir að hafa tapað fyrri leiknum 2-1 Þegar hópur Chelsea kom til Spánar á sunnudag höfðu stuðningsmenn Barcelona safnast saman og gerðu hróp að leikmönnum og þjálfurum liðsins. Beindu þeir heift sinni sér- staklega að Jose Mourinho, hinum portúgalska stjóra Chelsea. Mour- LENGJAN LEIKIR DAGSINS Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is inho, sem starfaði fyrir nokkrum árum við þjálfun hjá Barcelona, brást við með því að brosa og klappa kaldhæðnislega fyrir stuðnings- mönnum spænsku meistaranna. „Þeir voru virkilega ógnandi og kölluðu þvílíkustu ókvæðisorð að Mourinho. Þegar hann hunsaði þá fóru þeir að hrækja að honum og gera reiðilegar bendingar," sagði myndatökumaður sjónvarpsstöðvar Chelsea um aðkomuna. „Það voru sárafáir lögreglumenn á staðnum og þeim virtist alveg sama hvort hóp- urinn kæmist í rútuna." Upphringinúmer: 512-6000 2000 krónur HeimsF-refei Australia 630 min. AuslraKa mobile 70 min. Canada 630 min. Canada mobile 630 min. Denmark 550 min. Denmark mobile 63 min. Germany 550 min. Germany mobile 63 mín. Norway 550 min. Norway mobile 67 min. Poland 470 min. Poland mobile 62 min. Thailand 220 min. Thailand mobile 220 min. UK 550 min. UK mobile 69 min. USA 550 min. USA mobile 550 min. Tnose are oníy exampies, yoa can eatl ony phcne att ovcr «k> wortd. og hringið úr heimasímanum FÆST I OLLUM HELSTU VERSLUNUM. SOLUTURNUM j£ OG BENSÍNSTÖÐVUM UM ALLT LAND Ath, að Innanbæjartaxti bætist á símarelkning þegar hringt er í upphringinúmerið 512-6000. Suáurlancistiraut 46.108 Reykjovík, strrj: 5-33-2233. wwwheimstrelsi is Upphrirtginúmer: 512-6000 1000 krónur HeimjbPrels.l I EumrtjzjtHin! nt'mrcr en latrit minJiTip 1 ; Australia 310 min. ’ Australia mobile 33 min. ; ; Canada 310 min. ■ Canada mobile 310 min. ; Denmark 270 min. : Oenmark mobile 30mtn. i Germany 270 min. ; : Germany mobile 30min. : Norv/ay 270 min. Norv/ay mobite 32min. ' Poland 230 min. Poland mobile 30min. I Thailand 100 mín. , Thaifand mobile 100 min. • UK 270 min. ; UKmobile 33 min. j : USA 270 min. ! USAmobite 270 min. I Oetta ero aðeins fá dæm !. þvi hægt 1 1 er að hringjo i oil íónd um a8an heimI McCarthy rekinn Stjórn enska knattspyrnufélagsins Sunderland tilkynnti í gær að Mick McCarthy, stjóri Iiðsins til þriggja ára, hefði verið rekinn. Á síðasta ári sigraði Sunderland, undir stjórn McCarthy, í. deildina með glæsi- brag og tryggði sér sæti í úrvalsdeild- inni. A þessu tímabili hefur hins vegar hvorki gengið né rekið og situr liðið á botninum með ío stig - átta stigum á eftir næsta liði. I yfirlýsingu frá félaginu sagði að það væri hagur beggja aðila að McCarthy yfirgæfi liðið strax. Bob Murray, stjórnarformaður Sunder- land, sagði að fenginn yrði nýr stjóri til bráðabirgða fyrir þá ío leiki sem eftir eru á tímabilinu en að ráðið yrði í stöðuna til frambúðar í sumar. McCarthy sagði við fjölmiðla að hann færi frá Sunderland með bros á vör. „Af hverju ætti ég ekki að vera Mick McCarthy hafði ríkari ástæðu til þess að gleðjast á síðasta tímabili. brosandi? Ég hef notið þess mjög að vera hérna og finnst þessi tími hafa verið í alla staði frábær. Ég gerði mitt besta en það dugði ekki til. Þess vegna er kominn tími til að halda áfram og snúa sér að öðru starfi í framtíðinni,“ sagði hinn geðugi McCarthy. Ashton rólegur yfir landsliðssæti Dean Ashton, sóknarmaður West Ham, segist ekki hugsa mikið um hvort hann hljóti sæti í enska lands- liðinu fyrir heimsmeistaramótið í sumar. Ashton gekk til liðs við Hamrana frá Norwich í janúar og hefur síðan skorað þrjú mörk í fimm leikjum og þótt standa sig með prýði. „Auðvitað væri það frábært ef kallið kæmi, en þetta er ekki í mínum höndum svo ég reyni að hugsa ekki mikið um þetta. Ef ég verð valinn þá er það frábært, ef ekki þá vona ég bara að hinum gangi sem best,“ sagði Ashton hógvær. Alan Pardew, stjóri West Ham, hefur lýst því yfir að Ashton sé verð- ugur þess að hljóta landsliðssæti en ólíklegt verður að teljast að af því verði. Eru enda fyrir þeir Michael Owen, Wayne Rooney og Peter Crouch og þá eru þeir Jermain Defoe og Darren Bent lík- lega á undan í goggunarröðinni en Dean Ashton í leik meö Norwich í vetur Sven-Göran Eriksson mun aðeins taka með sér fjóra sóknarmenn til Þýskalands.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.