blaðið - 07.03.2006, Síða 13
Börnin gleymast ekki í EPAL
Tripp Trapp® -„vex“ með barninu
Tripp Trapp® barnastólinn, hönnun Peter Opsvik og framleiðsla
Stokke, hefur þann einstaka eiginleika að hann „vex“ með barninu
sem getur farið að nota hann með öryggisslánni strax og það er
fært um að sitja óstutt - venjulega 6-9 mánaða gamalt.
Börn njóta þess að taka virkan þátt í lífi fjölskyldunnar og þá ekki
síst þegar setið er við matborðið. Einmitt þess vegna er enginn
bakki á Tripp Trapp stólnum heldur situr barnið við matborðið eins
og aðrir í fjölskyldunni.
Tripp Trapp stóllinn veitir barninu fullkominn stuðning á hvaða
aldri sem það er, enda má hækka og lækka bæði sæti og fótafjöl
eftir þörfum.
Stóllinn kostar 13.980 kr., sláin 2.450 kr. og púði 3.500 kr.
Margt má gera við Trioli-stólinn
Finnski hönnuðurinn Eero Aarnio gleymir ekki börnunum
eins og best sést á Trioli-stólnum sem ítalska fyrirtækið
Magis framleiðir. Trioli má nota sem rugguhest og líka er
hægt að stilla honum upp á tvennan hátt þannig að stólsetan
er mishátt frá gólfi svo stóllinn hentar börnum á ýmsum
aldri. Trioli-stóll kostar 12.800 kr.
Puppies
kallar Eero Aarnio þessa skemmtilegu
fjölskyldu sem hér sést, tvo græna, misstóra
hvolpa á göngu með móður sinni.
Hvolparnir, sem fást bæði hvítir og grænir, eru
heppilegir reiðskjótar fyrir lítil börn og þau hafa
líka gaman að veltast með þá, þótt þeir séu
reyndar ekki sérlega mjúkir viðkomu. Magnis
framleiðir PUPPIES sem kosta 8.370 kr.
Skeifunni 6,
sími 568 7733/fax 5687744,
epal@epal.is, www.epal.is