blaðið - 07.03.2006, Blaðsíða 16
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 blaðfö
FULLAR BUÐIR AF NYJUM VORUM
á
I /1 i|| *
1 Fi I li s- m.
.
BARNARÚM í MIKLU URVALI
BabySam
Skeifan 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Fæst í apótekum
16 I FJÖLSKYLDAN
Im/jÍA,
BARNAVÓRUVERSLUN • GLÆSIBÆ
simi 5S3 3366 - wimvoo is
Ýtt undir sjálfstœða hugsun
í haust opnar Montessori-leikskóli sem hefur ekki aðeins að markmiði að auka þekkingu
barnsins heldurfremur að þróa andlegan þroska þess með sjálfstœði í leik og starfi.
Hvað er aldurstakmark barna í sund?
Ég nota Sterimar, það hjálpar
kvef
ofnæmi
- eyrnabólga
- ennis og
kinnholusýking
V
STÉRIMAR'
PhyMological ;
Sea Water
Mlcrospray
ist mikið með börnum og þróaði sínar
eigin kenningar.
Beverly og Einar Gíslason eru kenn-
arar auk þess að hafa kynnt sér vel
kenningar Mariu. Þau hyggjast opna
leikskóla í haust. „Mér fannst bara
kominn tími á að hafa Montessori-
skóla á Islandisegir Beverly og hlær.
„Núna er einmitt rétti tíminn. Við
fórum á námskeið nýlega um lestrar-
kennslu í Garðabæ og þær aðferðir
sem voru kynntar þar eru náskyldar
Montessori- hugsuninni. Þessi ungu
börn eru eins svampar og vilja ólm
læra. Þegar þau eru svona opin þá er
um að gera að gefa þeim tækifæri til
að læra.“
Lært á umhverfið
Leikskólinn hefur göngu sína næsta
haust og börnin verða tíu. Til að byrja
með verða Beverly og Einar tvö með
börnin en þau segjast vera að leita
að Montessori-kennara sem hefur
lært stefnuna. „Ung börn eru með
mjög næm skilningarvit og það sést
til dæmis á því að þau eru alltaf að
snerta hluti. Á þessum tíma snerta
þau allt og læra á umhverfið með
skilningarvitum sínum. Kenning
Mariu byggist á því að börnin eigi að
læra á sínum eigin hraða og eigi að fá
að velja skilgreind og afmörkuð verk-
efni. Börnin eiga því að fá að vera þau
sjálf og þau fá að vinna mjög frjálst í
því verkefni sem þau velja. Þetta ýtir
undir sjálfstæði í hugsun og verki,
börnin uppgötva hlutina sjálf án þess
að við segjum þeim hvernig hlutirnir
eru. Með því að uppgötva hlutina sjálf
festist vitneskjan betur og lengur í
minni þeirra.“
Barnið læriraf leik
Einar segir að auk þess sem vitn-
eskjan festist betur í minni þeirra þá
sé mjög mikilvægt að börnin fái sjálf
að finna svörin. „Hefðbundnir skólar
hafa oft verið gagnrýndir fyrir að
mata börnin á upplýsingum. í Montes-
sori er meira gert að þvi að leyfa barn-
inu að finna sjálft út svörin og leyfa
því að finna upplýsingarnar. Þegar
börnin leika sér að kennslugögnum
frá Montessori er þeim í byrjun sýnt
hvernig eigi að fara að en eftir það er
það ekJd nauðsynlegt. Með því lærir
barnið af leik og þau öðlast þannig
hagnýta þekkingu. Ég get tekið stærð-
fræði sem dæmi en þegar þau sjá
eininguna hundrað á gólfinu þá sést
betur hvernig kerfið virkar.“
Beverly segir enda að í Montessori-
skólum séu sérhönnuð kennslugögn
og það geri kennsluna sérstaka. „Við
notum líka venjuleg kennslugögn og
til dæmis leika tveggja til þriggja ára
gömul börn sér með kubbum, púslu-
mmMi
Beverly Gíslason og Einar Gfslason, eiginmaöur hennar.„Það er haldin skrá yfir það
hvað börnin gera því þá er hægt að stýra þeim örlítið, ef það vantar upp á að þau læri
eitthvað ákveðið. Þetta þarf að passa mjög vei þvf Maria hélt mikið upp á það að leyfa
barninu að velja."
spilum og alls kyns leikskóladóti. Inn
á milli verða svo sérstök kennslugögn
sem Maria hannaði. Hvert kennslu-
gagn hefur sitt tiltekna markmið, til
að mynda er ein tegund kubba sem
kennir börnum að læra lengdir. Þetta
er bara eitt dæmi. Svo fer þetta eftir
því hvað barnið hefur áhuga á að læra.
Ef barn vill læra stafina þá erum við
með stafi á sandpappír. Þau læra þvi
fyrst að snerta stafina og þegar stafur-
inn er snertur þá segir barnið hljóð
stafsins.“
Hjálpa hvort öðru
I Montessori eru aldurshóparnir
blandaðir, frá 2 ára til 6 ára gömul
börn i sömu skólastofu. Beverly segir
að börnin séu aðskilin i eldri og yngri
hóp í samverustundum en annars
sé mjög gagnlegt að hafa þau öll
saman. „Yngri börnin líta upp til eldri
barnanna, virða þau og læra því heil-
mikið af þeim. Eldri börnin hafa lært
þetta allt saman en aðstoða oft yngri
börnin. Enda fara þau oft frekar til
eldri barna og biðja um hjálp heldur
en til kennarans. Eldri börnin styrkja
því sína þekkingu auk þess sem þau
hafa ánægju af því að hjálpa yngri
börnunum,“ segir Beverly og bætir
við að í leikskólanum sé allt i sömu
hæð og börnin og verkefnin séu á
hillunum. „Börnin geta því gengið að
hillunum og valið hvað þau vilja gera.
I Montessori- stefnunni er líka lögð
áhersla á að leyfa börnunum að vera
á gólfinu og þá er hvert barn með sína
moppu. Þetta er því þeirra eigið land
og það er borin virðing fyrir því. Hin
börnin ganga því ekki yfir moppuna
og með þessu læra þau að bera virð-
ingu fyrir öðrum börnum.“
Barninu leyft að velja
Beverly segir að þegar hún hafi lært
Montessori-stefnuna hafi hún til
dæmis þurft að læra að virða barnið
upp á nýtt. „Svo var líka lögð áhersla
á að sjá sjónarmið barnsins, hvað er
barnið að uppgötva og svo framvegis.
Ef börnin eru ekki að læra málfræði,
stærðfræði eða annað þá er kennar-
inn mikið að fylgjast með börnunum
og skrá niður hvað börnin gera. Það er
haldin skrá yfir það hvað börnin gera
því þá er hægt að stýra þeim örlítið, ef
það vantar upp á að þau læri eitthvað
ákveðið. Þetta þarf að passa mjög vel
því Maria hélt mikið upp á það að
leyfa barninu að velja. Við virðum
því barnið og val þess. Sum börn
eyða miklum tíma í eitthvað ákveðið
verkefni, jafnvel dögum saman, og
við verðum að virða barnið nægilega
til að fylgjast með hvenær það hefur
fengið nægju sína og lært það sem það
vill læra af verkefninu. Við verðum
því að passa okkur á því að stýra börn-
unum ekki of mikið en samtímis
verðum við að sjá um að það sé jafn-
vægi í þessu,“ segir Beverly upprifin.
svanhvit@bladid.net
I „Reglum um öryggi á opinberum
sundstöðum og kennslulaugum“
stendur að barn undir átta ára megi
ekki fara eitt í sund. Mörgum for-
eldrum finnst þetta aldurstakmark
vera of lágt og vissulega má deila
um það. Það má hins vegar minna
foreldra á að það eru þeir sem verða
að vita hvort börnin þeirra kunni
að synda þegar þau eru átta ára og
ef þau eru ekki synd er öruggast að
fara með þeim í sund. Þeir foreldrar
sem fara sjaldan með börnum 1
sund geta fengið upplýsingar um
frammistöðu og kunnáttu barna
sinna hjá sundkennara í gegnum
grunnskólann.
Öryggisreglur fyrir sund-
staði eru góðar
Þó að eftirlit með sundgestum sé
víðast gott þá er það samt ekki jafn
gott alls staðar á landinu. Þó eftirlit
í tiltekinni laug sé til fyrirmyndar
99....................
/ Montessori-stefnunni
er líka lögð áhersla á
að leyfa börnunum að
vera á gólfinu og þá er
hvert barn með sína
moppu. Þetta er því
þeirra eigið land og það
er borin virðing fyrir
því. Hin börnin ganga
því ekki yfir moppuna
og með þessu læra
þau að bera virðingu
fyrir öðrum börnum.
Það er ekkert launungamál að
foreldrar vilja hafa val um hvaða
skóla börnin sækja. Sem betur fer
er einkareknum skólum sífellt að
fjölga þannig að valmöguleikar for-
eldra aukast að sama skapi. Maria
Montessori er ein af virtustu upp-
eldisfrömuðum heims og ljóst er að
margir hafa beðið með eftirvænt-
ingu að hér yrði opnaður skóli þar
sem starf fer fram eftir kenningum
hennar. En í haust verður opnaður
lítill og heimilislegur leikskóli í
Garðabæ sem byggir á kenningum
Mariu.
Maria Montessori fæddist árið
1870 á Ítalíu og var fyrsta konan
sem lauk læknisfræðiprófi á Ítalíu á
sínum tíma. Þegar hún hóf að starfa
sem læknir varð hún mjög upptekin
af þroskaferli barna. Hún færðist
því inn á þá braut að læra meira um
hegðun og uppeldi barna. Hún fylgd-
Inni í leikskólanum. (Montessori-stefnunni er borin virðing fyrir barninu og vali þess.
geta sundlaugarverðir ekki fylgst
með hverju einasta barni, hins vegar
er það verk foreldranna. Sundlaugar-
verðir eiga að hafa eftirlit með öllum
gestum og er þeim sérstaklega kennt
að þekkja hættumerki og bregðast
við þeim. Það er fyrst og fremst á
ábyrgð foreldra að senda ekki barn
eitt í sundlaugina sem ekki kann
að synda. Börnin eru ekki alltaf
bestu dómarar á eigin getu þannig
að ef þau eru spurð þá telja þau sig
oft vera betri en þau eru. Gott er að
spyrja sig þeirrar spurningar hvort
barnið geti gætt sín sjálft að öllu
leyti i lauginni. Eins er nauðsynlegt
að vita hvort barnið kunni að bregð-
ast við ef eitthvað kemur fyrir það,
þrátt fyrir að það sé orðið átta ára
gamalt.
Með bestu kveðju,
Herdís L. Storgaard herdis@lyd-
heilsustod.is
Verkefnastjóri barnaslysavarna
Árvekni, Lýðheilsustöð www.lyd-
heilsustod.is