blaðið - 07.03.2006, Side 25
Leynist listamaður í þér?
26
Stiginn er miðja heimilisins
26...................
Algjör engill
27 ................
Augað blekkt með
málningu og pensli
28 ...............
Afturtil fortíðar
29..........
Borðstofusett sem
keyptvar í skyndi
íslendingar eyða stórum hluta
ævi sinnar á heimilinu og því
er það okkur sérstaklega mikil-
vægt. Mikilvægur hluti fallegs
heimilis er án efa myndirnar sem
skreyta það, hvort heldur sem er
ljósmyndir, teikningar barnanna
eða málverk. Þótt margir kjósi að
skreyta heimili sitt með glæsi-
legum málverkum eftir okkar
hæfustu Iistamenn þá eru það
færri sem hafa efni á því. Fallegt
listaverk þarf ekki að vera dýrt
þar sem það er tiltölulega auðvelt
að gera það sjálfur, hvort sem þú
ert með listamannseðli í blóðinu
eða ekki.
Þetta fallega málverk sem er hér
að ofan færi vel á stofuvegg, sér-
staklega í stofu með brúnum hús-
gögnum. Verkið tók lítinn tíma eða
aðeins um eitt kvöld og efnið var
mjög ódýrt. Núorðið má fá ódýra
striga í nokkrum verslunum og
það gerir svona tilraunastarfsemi
töluvert freistandi. Þetta tiltekna
málverk var grunnað með hvítri
málningu. Síðan var ljósbrúnum og
dökkbrúnum lit blandað saman sem
var svo notaður til að mála nokkrar
línur á strigann. Eftir það var dökk-
brúni liturinn bleyttur aðeins með
vatni svo málningin yrði þynnri og
auðveldara væri að sletta á strigann.
Að endingu var keypt dökkbrúnt leð-
urband sem var bundið í kringum
myndina. Einfalt, ódýrt en ótrúlega
flott!
Þúsundir lausna
Þetta er bara ein lausn af þúsundum.
Það eina sem þarf er strigi, málning
og örlítið ímyndunarafl. Til dæmis
er einnig hægt að kaupa fjóra litla
striga og máía þá alla í einum lit.
Það væri til dæmis hægt að velja
rauðan lit, mála hann mjög þykkt á
strigana þannig að yfirferðin verði
hraunkennd. Þessar myndir er
síðan hægt að hengja upp í röð í til
dæmis anddyri. Þrátt fyrir að ekki
sé beint hægt að kalla þessar myndir
hrein listaverk þá kemur þetta mjög
vel út enda mynda strigarnir fal-
lega samfellu, sérstaklega á hvítum
vegg. Þeir sem treysta sér ekki til
að munda pensilinn á striga geta
einnig nýtt sér aðrar lausnir. Bæði er
hægt að kaupa veggfóður og fallegt
efni sem er síðan heftað á strigann.
Með þessu er hægt að forðast pensil-
inn en einungis þarf að finna fallegt
efni eða veggfóður sem passar inn
á heimilið. Það er því um að gera
að hætta að glápa öfundaraugum
á mörg þúsund króna listaverk en
smella sér í næstu verslun og kaupa
striga, pensla og málningu. Leitið
að hugmyndum á Netinu eða í tíma-
ritum og látið ímyndunaraflið ráða
för.
svanhvit@bladid.net
l/ortuwaðjíínýjfc
s&nAinxjU/ afljóstMK/
jr&SfMÍni
Ljósin í bænum
c nnnnucni
SUÐURVERI
Opió: Virka daga kl.10.00 ti!18.00, Laugardaga kl.11.00 til 16.00 Stigahlíð 45 105 Reykjavík Sími 553 7637 www.ljosin.is
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýjum vörum í nokkra daga
15-50% afsláttur
t-
Gólfdúkar - Stök teppi - keramikflísar - Dreglar - Plastparket - Málning - Veggfóður - Skrautlistar
Litaver - Teppabúdin Grensásveg 18 Sími 581 2444