blaðið - 07.03.2006, Síða 28
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2006 blaðið
28 l
Aftur til fortíðar
Rifjaðu upp œskuminningar um leið ogþú skoðar úrvalið á www.classic-modern.co.uk, síðu sem sérhœfir sig í að
selja margvíslega hönnunfrá árabilinu 1950-19/0.
Skærir litir voru oftar en ekki í fyr-
irrúmi á þessu tímabili hönnunar-
sögunnar enda áttu sér stað margar
byltingar á hinum ýmsu sviðum
lífins. Konur brenndu m.a. brjósta-
höld og ungmenni börðust fyrir
friði. Fólk bjó saman í kommúnum
og lagði stund á frjálsar ástir. Öll aft-
urhaldssemi var lögð á hilluna, hönn-
uðurnir fylgdu með straumnum og
munstrin fengu því að flæða jafn
frjálslega og hárið sjálft.
margret@bladid.net
Bara tíu takk: Það er auðvelt að sjá fyrir sér ömmu eða mömmu, sitjandi
við eldhúsborð með stórar rúllur í hárinu, kleinu í annarri og sams konar
kaffibofla í hinni á meðan Gerður G. Bjarklind les óskalög sjómanna í útvarp-
inu. Þetta skemmtilega sett var hannað í Noregi á tímabilinu 1960-1970 af
Figgjo Flint og kostar rúmar 3.000 krónur.
Gulir kristallar: Þessir flottu vegglampar
eru gerðir úr akríl og stáli. Þá má festa
upp jafn auðveldlega og mynd með
einum nagla. Lamparnir eru danskir, líkt
og flest það sem síó í gegn á þessu árabili
og stykkið kostar 87 pund, eða rúmlega
10.000 íslenskar krónur.
30 Járnsmiðja Óðins
J Smiðjuvegur 4b • 200 Kópavogur
Smiðjuvegur 4b • 200 Kópavogur
Síml 557 9300‘Fax 567 9343
Netfang jsoOjso.is
Astarstjarna yfir hraundranga: Nei, en
þó ekki langt frá því. Þetta er níðþungur
kertastjaki úr stáli. Hann vegur um 750
grömm og var hannaður af danska parinu
Christel og Christer Holmgren á árabilinu
1973-1974. Stjakinnfíni kostar um 5.000
krónur.
Dreymir þig í svart hvítu eða lit? A www.
classic-modern.co.uk er líka haegt að fá fal-
legar slæður. Þær eru flestar notaðar en
það sér samt ekki á þeim, enda væri ekki
til sóma að fara illa með svo fallegar flíkur.
Fiðrildaslæðan kostar tæpar 5.000 krónur
en sú svart hvíta kostar rétt rúmar 3.000
og á uppruna sinn á (talíu en minnir um
margt á stílinn hennar Mary Quant sem
sló í gegn á sjöunda áratugnum.
Rifjárn með stíl: Þessi flottu, litríku rifjárn
myndu sóma sér vel við matargerðina.
Þau voru hönnuð árið 1965 af Dananum
Bjarne Bo. Að sögn seljanda gerir hring-
laga handfangið þetta einkar þægilegt í
notkun og litadýrðin myndi léttilega lífga
upp á hvaða hillu sem er. i það minnsta
væri synd að setja svona fínerí inn í skáp
eða ofan í skúffu.
Stykkið kostar um 1.000 krónur en þá
á eftir að bætast við lítillegur flutnings-
kostnaður.
Blóðrautt sólarlag: Þetta fallega ullar-
teppi kostar um 37.000 krónur og ku
vera notað en nánast ekkert slitið. Það
var framleitt af danska teppaframleið-
andanum Ege Taepper en sá ruddi sér til
rúms árið 1938 þar í landi og þótti fljótt
bera af hvað varðaði djörf munstur og
skemmtiiega listrænar útfærslur. Þessi
fallega motta er úr 100% ull og er 120 cm
á breidd en 180 cm á lengd.
i 533 5060
pp.is
Teppi
á stigaganginn
Falleg aökoma að heimilinu skiptir máli.
Teppi er slitsterkt gólfefni sem auðvelt
er að þrífa, hljóðeinangrandi og hlýlegt.
Við seljum vönduð og endingargóð teppi
sem eru ofnæmisprófuð og á góðu verði.
Mála, sprauta
og bólstra
Þórunn Högnadóttir segist ekki hlaupa út og kaupa sér eitt-
hvað nýttþegar húnfcer leið á húsgögnunum stnum.
„Ég er mjög nýjungagjörn og spennt
fyrir straumum og stefnum, en ég
forðast þó að hlaupa til og kaupa
mér eitthvað nýtt þegar mér fara
að leiðast húsgögnin mín,“ segir
Þórunn Högnadóttir, ein umsjóna-
kvenna þáttarins Innlit útlit sem er
til sýninga á Skjá einum.
„Síðustu þrjú til fjögur ár hef ég
farið meira inn í mínimalismann
og kýs að hafa umhverfið fremur
hlutlaust en skreyta það svo með
einhverjum fallegum munum. Til
dæmis finnst mér barokkið æðislegt
í bland við mínimalismann. Heima
hjá mér er allt í svörtu og hvítu og
svo er smá viður inn á milli. Þessi
stíll höfðar mikið til mín og ég
held að það muni ekki breytast á
næstunni."
Þórunn segist hafa gaman af því
að gera gamla muni upp og færa þá
í nýjan búning til þess að þeir passi
sem best inn í umhverfi sitt. „Ég hef
til dæmis málað rokókóstóla og látið
bólstra þá. Þetta voru svona gamlir
viðarstólar með bleikum sessum.
Þetta passaði alls ekki inn til mín
en eftir yfirhalninguna komu þeir
mjög vel út. Það eru reyndar til
margar leiðir til að glæða gömul
húsgögn nýju lífi. Til dæmis fékk ég
einu sinni gefins kristalsljósakrónu
Þórunn Högnadóttir
sem var gyllt, en ég sprautaði hana
silfurlitaða sjálf. Svo setti ég hana
inn í plexíglerhólk og um leið öðlað-
ist hún alveg nýtt líf og varð mjög nú-
tímaleg. Ég í raun bara mála, sprauta
og bólstra. Ef ég fæ leið á einhverju
heima hjá mér þá bara breyti ég því í
stað þess að hlaupa út í búð og kaupa
eitthvað nýtt. Reyndar kaupi ég mér
hluti svona annað slagið, en fyrst og
fremst reyni ég að nýta það sem til
er,“ segir Þórunn Högnadóttir að
lokum.