blaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 10
24 I JORMÚLAW
MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 blaöÍA
Ayrton Senna
Örstutt œviágrip brasilísku kappakstursgoðsagnarinnar sem Formúlu-aðdáendur munu aldrei gleyma.
Ayrton Senna er að öðrum
ólöstuðum einn allra besti kappakst-
ursmaður sögunnar. Hann hefur
orðið heimsmeistari í Formúlu t
alls þrisvar sinnum og hafa aðeins
Michael Schumacher og Alain Prost
gert betur. Senna þótti einkar áhuga-
verður maður, metnaðarfullur fram
í fingurgóma og hafði ákaflega
mikla ástúð á kappakstri.
Senna fæddist í borginni Sao
Paulo í Brasilíu þann 21. mars árið
1960 og barn að aldri fékk hann mik-
inn áhuga á mótorsporti og hóf að
keyra litla kappakstursbíla. Á upp-
vaxtarárum sínum gekk hann ævin-
lega undir nafninu Ayrton da Silva
en um tvítugt ákvað hann að taka
upp eftirnafn móður sinnar, Senna,
þar sem da Silva er gríðarlega al-
gengt nafn í Brasilíu og hann vildi
skera sig frekar úr.
Eftir mörg ár í smábílakappakstri
sem unglingur hélt hann til Evrópu
árið 1981 og hóf að keppa á meðal at-
vinnumanna, m.a. í bresku Formúl-
Frá slysinu hræðilega á Imola.
unni. Fræknir sigrar í fjölmörgum
mótum greiddu leið hans að Form-
úlu 1 og þar keppti hann fyrst árið
1984. Nýliðaárið sitt keppti hann
fyrir Toleman-liðið og fór hans
fyrsti kappakstur fram í heimaland-
inu Brasilíu. Ári síðar gekk hann til
liðs við Lotus þar sem hann dvaldi
til ársins 1998 er hann gekk til liðs
við McLaren. Hjá McLaren varð liðs-
maður hans enginn annar en Alain
Prost og háðu þeir mörg dramatísk
og eftirminnileg einvígi.
Á fyrsta ári sínu hjá McLaren vann
Senna sinn fyrsta heimsmeistaratitil
og ári seinna varð hann í öðru sæti á
eftir Prost, þrátt fyrir að hafa unnið
oftar en hann það ár. Sambandið
milli Senna og Prost var ævinlega
stirrt og fór það svo að fyrir tíma-
bilið 1990 yfirgaf Prost McLaren og
gekk til liðs við Ferrari. 1 hans stað
kom Gerhard Berger til McLaren
og varð þeim Senna og Berger mjög
vel til vina og urðu þekktir fyrir
að grínast mikið sín á milli. Senna
varð aftur heimsmeistari árin 1990
og 1991 eftir geysiharða keppni við
gamla liðsfélaga sinn, Prost, og
Nigel Mansell.
Árið 1994 gekk Senna til
liðs við Williams-liðið, en það hafði
löngum verið draumur hans og
sögur gengu um að hann hefði boð-
ist til að keyra fyrir þá frítt. Tíma-
bilið, sem lofaði góðu fyrir Senna,
var varla hafið þegar hann lenti í
hörmulegu slysi í keppni á Imola-
brautinni á Italiu. Senna ók þá á
steinvegg, á að því er talið 216 kíló-
metra hraða, með þeim afleiðingum
að hann lét lífið, 34 ára að aldri.
Þegar Senna var jarðsettur
söfnuðust milljónir saman á götum
úti til þess að syrgja þennan mikla
íþróttamann. Heimsþekkt andlit og
aðrir íþróttamenn kepptust um að
lofa hann og brasiliska landsliðið í
knattspyrnu tileinkaði Senna sigur
sinn á HM i Bandaríkjunum það ár.
Óhætt er að segja að Ayrton Senna
hafi nánast verið tekinn í guðatölu í
Brasilíu og á dánardegi hans, 1. mai,
safnast enn þann dag í dag mikill
fjöldi saman til þess að heiðra minn-
ingu hans.
bjorn@bladid.net
Formúla 1 2006
Liðin og ökumenn þeirra
Renault Fernando Alonso (SPÁ) Red Bull
Giancarlo Fisichella (fTA) David Coulthard (SKO) Christian Klien (AUS)
McLaren Kimi Ráikkonen (FIN) BMW
Juan Pablo Montoya (KÓL) Nick Heidfeld (ÞÝS) Jacques Villeneuve (KAN)
Ferrari Michael Schumacher (ÞÝS) MFi
Felipe Massa (BRA) Tiago Monteiro (POR) Christijan Albers (HOL)
Toyota Ralf Schumacher (ÞÝS) Toro Rosso
Jarno Trulli (fTA) Viantonio Liuzzi (fTA) Scott Speed (BAN)
Williams Mark Webber (ÁST) Super Aguri
Nico Rosberg (ÞÝS) Takuma Sato (JAP) YujiIde(JAP)
Honda Rubens Barrichello (BRA) Jenson Button (BRE)
..kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
„flangslegur
„búkkalegur
SðluaSIJ Akurayri Slml 461 2288
STRAUMRÁS
Furuvelllr 3 - 600 Akureyri
Spánverj inn Fernando Alonso þykir líklegur til aö verja heimsmeistaratitilinn.
Ráikkonen og
Alonso líklegastir
Breski veðbankinn William Hill
birti á dögunum stuðla yfir sigur-
líkur ökumannanna í Formúlunni.
Bankinn telur Finnann Kimi Ráik-
konen hjá McLaren og Spánverjann
Fernando Alonso, sem er núverandi
heimsmeistari, líklegasta til þess að
fara alla leið. Þýski snillingurinn Mi-
chael Schumacher kemur hins vegar
í þriðja sæti. Á botninum sitja hins
vegar báðir ökumenn Toro Rosso og
MFi með líkurnar 500/1.
Líklegastir að mati William Hill
Kimi Ráikkonen 9/4
Fernando Alonso 9/4
Michael Schumacher 10/3
Juan Pablo Montoya 7/1
Jenson Button 9/1
Giancarlo Fisichella 14/1
Rubens Barrichello 16/1
Felipe Massa 33/i
Ralf Schumacher 50/1
Mark Webber 50/1
Jarno Trulli 50/1
Tölfræði yfir
árið 2005
Lokastaða ökumanna
Ökumaður Heildarstig
Fernando Alonso 133
Kimi Raikkonen 112
Michael Schumacher 62
Juan Pablo Montoya 60
Giancarlo Fisichella 58
Ralf Schumacher 45
JarnoTrulli 43
Rubens Barrichello 38
Jenson Button 37
MarkWebber 36
Nick Heidfeld 28
David Coulthard 24
Felipe Massa 11
Christian Klein 9
Jacques Villeneuve 9
Tiago Monteiro 7
Alexander Wurz 6
Narain Karthikeyan 5
Christijan Albers 4
Pedro de la Rosa 4
Patrick Firesacher 3
Antonio Pizzonia 2
Vitantonio Liuzzi 1
Takuma Sato 1
Lokastaða liða
Lið Heildarstig
Renault 191
McLaren 182
Ferrari 100
Toyota 88
Williams 66
BAR 38
Red Bull 34
Sauber 20
Jordan 12
Minardi 7