blaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 27. MARS 2006 blaðið
blaöið__________
Bæjarlind 14—16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADÉIIP:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fimm á slysadeild
eftir bílveltu
mbl.is | Fólksbíll fór út af Suðurlands-
vegi vestan við Þjórsárbrú í gær
með þeim afleiðingum að fimm
voru fluttir á slysadeild. Bíllinn fór
nokkrar veltur samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Selfossi en
engin mun hafa slasast alvarlega.
Farþegarnir voru fluttir á sjúkra-
húsið á Selfossi og þaðan var tvennt
flutt á sjúkrahús í Reykjavík til nán-
ari skoðunar. Bíllinn er gjörónýtur.
Viðbúið að endurfjármögnun bank-
anna verði velt yfir á almenning
Yfirvofandi vaxtahœkkanir viðskiptabankanna munu valda verðlœkkun á fasteignamark-
aði að mati Guðmundar Ólafssonar, lektors við viðskipta- og hagfrœðideild HÍ.
Guðmundur
Ólafsson
Viðbúið er að
óhagstæðari end-
urfjármögnun við-
skiptabankanna
muni verða velt á
almenning i formi
hærri vaxta að
mati Guðmundar
Ólafssonar, lektors
við viðskipta- og
hagfræðideild
Háskóla íslands (Hf). Endurfjár-
mögnun íslensku viðskiptabank-
anna þriggja komst í uppnám í
síðustu viku þegar bandarískir kaup-
endur skuldabréfa ákváðu að fram-
lengja ekki samninga upp á tæpa
116 milljarða króna. Guðmundur
telur þó ólíklegt að þetta muni valda
meiriháttar búsifjum fyrir íslensku
bankana.
„Yfirvofandi bankakreppa"
Nýlegar skýrslur erlendra greining-
ardeilda um íslenska hagkerfið og
umfjallanir í erlendum blöðum hafa
greinilega skilað sér í minnkandi til-
trú erlendra fjárfesta á íslenskt við-
skiptalíf. f síðustu viku kom fram að
bandarískir kaupendur skuldabréfa
í íslensku bönkunum hafa ákveðið
að framlengja ekki samninga að and-
virði tæpra 116 milljarða króna.
Hlutabréf í viðskiptabönkunum
þremur lækkuðu töluvert í verði í
Kauphöllinni síðastliðinn föstudag
og þá mest hlutabréf í KB-banka
sem féllu um 7,53%.
f umfjöllun danska dagblaðsins
Berlingske Tidende á laugardaginn
um íslenskt viðskiptalíf var talað um
brunaútsölu í íslenskum bönkum og
rætt um yfirvofandi bankakreppu.
Vextir bjekka_____
Guðmundur Ölafsson, lektor við við-
skipta- og hagfræðideild Hf, telur
ástæðulaust að óttast hrun íslensku
viðskiptabankanna. Hann segir
stöðu þeirra vera sterka og að allt
tal um bankakreppu byggi að vissu
leyti á misskilningi og vanþekk-
ingu. „Það eina sem gæti gerst er að
hagnaður þeirra minnki eitthvað en
hann hefur reyndar verið ríflegur
undanfarin ár.“
Guðmundur segir þó viðbúið að
vextir á bankalánum muni hækka
eitthvað á næstu vikum og það geti
bitnað illa á þeim sem skulda hvað
mest. „Það er alveg klárt mál að
vextirnir koma til með að hækka. í
flestum húsnæðislánum bankanna
er endurskoðunarákvæði varðandi
hækkun vaxta sem þeir munu nýta.
Ef svo verðbólgan fer af stað sam-
hliða fallandi gengi 'krónunar þá
mun það hafa áhrif til versnandi
kjara fólks tímabundið. Ef svo ólík-
lega vildi til að allt færi á versta veg
yrði bagganum velt yfir á almenn-
ing. Það er mín skoðun að bank-
arnir vilja íbúðalánasjóð útaf mark-
aðinum einmitt til þess að geta hert
skrúfuna að almenningi, ef á þarf að
halda.“
Að sögn Guðmundar mun þetta
bitna verst á þeim sem hafa farið út
í fasteignakaup á síðastliðnum 6 til
12 mánuðum. „Vaxtahækkun hefur
alltaf áhrif til lækkunar á fasteigna-
verði. Þeir sem keyptu eignir áður
en verðið fór að hækka hafa fengið
happadrættisvinninga uppá millj-
ónir. Þessu er hins vegar misskipt.
Þeir sem fara verst út úr þessu eru
þeir sem hafa verið að kaupa í fyrsta
sinn núna undanfarið ár. Þeir eru
að kaupa eignir á uppsprengdu verði
og lenda í súpunni. En það er alltaf
þegar svona gerist að það eru hópar
sem tapa og aðrir sem græða.“
Guðmundur segir að bankarnir
muni þó að öllum líkindum reyna
að verja húsnæðisverðið og koma
í veg fyrir að það lækki of mikið,
komi sú staða upp. „Það gæti verið
að bankarnir myndu reyna að verja
húsnæðisverðið og koma þannig í
veg fyrir að íbúðir færu á uppboð.
Það verða væntanlega byggð upp
leigufyrirtæki og reyndar eru bank-
arnir nú þegar byrjaðir að auglýsa
eftir fólki í svona fyrirtæki. Þessi fyr-
irtæki myndu kaupa íbúðir af fólki
sem lendir í greiðsluerfiðleikum og
síðan leigja því íbúðirnar áfram.“
Ihlutir í álverið
BlaölöÆrikkl
Það var mikið verið að sýsla í Stálsmiðjunni ehf. Hér er verið að vinna við íhlut númer
192 í hreinsikerfi fyrir álver Norðuráls á Grundartanga. Einnig er unnið við smíði kerja
fyrir álverið. Til gamans má geta að íhlutirnir verða alls 261 að töiu.
Pylsubarinn LaugardáT'
Meirihlutinn vill hætta
málarekstri í Baugsmálinu
Tveir þriðju telja að málinu verði haldið áfram.
Skoðanakönnun, sem IMG Gallup
gerði fyrir Baug Group, leiðir í ljós
að tæplega 8o% svarenda telja að
hætta eigi málarekstri í Baugsmál-
inu. Á hinn bóginn telja tveir þriðju
hlutar svarenda að málarekstrinum
verði haldið áfram þrátt fyrir það.
Svipað hlutfall telur að enginn hafi
komið vel út úr Baugsmálinu. Um
8o% töldu á hinn bóginn að ein-
hverjir hefðu komið sérstaklega illa
út úr Baugsmálinu og voru saksókn-
ari, lögreglan og ríkissaksóknari oft-
ast nefndir í því samhengi.
Upphaflegt úrtak í könnuninn var
1.200 manns á aldrinum 16-75 ára,
en margir kusu að svara ekki og var
svarhlutfallið 57,5%. Könnunin var
gerð 20.-22. mars, en fram kemur í
fréttatilkynningu Baugs, að fram-
kvæmd könnunarinnar hafi verið
stöðvuð þegar fréttir bárust af því
að sérstakur saksóknari í Baugsmál-
inu hygðist áfrýja hluta af dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars til
Hæstaréttar Islands.
Þá kom fram í tilkynningu Baugs
að Fjölmiðlavaktin vinnur um
Baugsfeðgar koma til réttarhalds
þessar mundir að heildarskýrslu
um fjölmiðlaumfjöllun og umræðu
um Baugsmálin frá upphafi málsins
til dagsins í dag. Skýrslan er gerð að
beiðni Baugs, en fyrrnefnd skoðana-
könnun var upphaflega hugsuð sem
liður í þeirri skýrslu.
Samstaff gegn
heimsf|raldri
Með góðu vöktunarkerfi og alþjóð-
legri samvinnu er mögulegt að koma
í veg fyrir útbreiðslu á mannskæðri
inflúensu að mati Haraldar Briem,
sóttvarnarlæknis hjá Landlæknis-
embættinu. Ráðstefna um vöktun
og viðbrögð vegna farsótta verður
haldin í hátíðarsal Háskóla íslands
í dag og hefst hún klukkan 13.
Haraldur Briem, sóttvarnar-
læknir, segir íslendinga vinna náið
með öðrum Evrópuþjóðum og fylgj-
ast vel með þyá hvernig þær skipu-
leggi sinn viibúnað. „Við höfum
haft sameiginlegar æfingar með
Evrópusambandinu þar sem viðbún-
aður gegn heimsfaraldri var próf-
aður. Við munum væntanlega taka
þátt fleiri slíkum æfingum síðar.“
Haraldur segir það aðeins spurn-
ingu um tíma hvenær næsti heimfar-
aldur brýst út en með góðum undir-
búningi og samstarfi milli landa
ætti að vera mögulegt að stöðva
hann í fæðingu. „Okkar stærsta von
er sú að hægt verði að kæfa svona
heimsfaraldur í fæðingu.
Með alþjóðlegu vöktunarkerfi og
samvinnu er mögulegt að einangra
hættulega smitsjúkdóma um leið og
þeirra verður vart.“
(3 Helðsklrt (3 Léttskýjaö Skýjað Alskýjað
Rigning,litilsháttar //' Rigning 7 7 Súld s|;Sn|6koma
\jj Slydda Snjóél ^~j
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Alga rve
Dublln
Glasgow
12
20
12
0
14
10
-02
06
13
17
18
-01
04
08
02
12
0
04
17
18
09
09
-2°
*
*
*1'
0‘
3
9
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Islands
* ,
-4° *
-1
Á morgun
-r* **
*
9 2‘
o“W