blaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 27. MARS 2006 blaðið
Um 400 tillögur á þingi unga fólksins
Bla6i6/SleinarHiigi
Reynt var að líkja eftir almennum þingstörfum og gefa ungliðum innsýn í þau á þingi unga fólksins sem haldið var um helgina.
Landssamband æskulýðsfélaga í
samstarfi við ungliðahreyfingar
stjórnmálaflokkanna stóðu fyrir
þingi unga fólksins (ÞUF) um
helgina. Markmið þingsins er að
unga fólkið komi saman og álykti
um þau málefni sem efst eru á
baugi í þjóðfélaginu í dag.
Höskuldur Sæmundsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands
æskulýðsfélaga sagði að reynt væri
að líkja sem best eftir almennum
þingstörfum og gefa ungliðunum
innsýn í þau. „Sólveig Pétursdóttir
forseti Alþingis setti ÞUF og ræddi
m.a. á léttu nótunum um hvernig
á að ávarpa þingforseta. Þá ávarp-
aði Andri Snær Magnason rithöf-
undur þingið.
Alls voru 400 tillögur lagðar
fram á þinginu þar á meðal fram-
boð Islands til öryggisráðsins,
einnig var rætt um atvinnumál,
skólamál og margt fleira. Þátttak-
endum þingsins var skipt upp í
nefndir og tillögurnar ræddar en
hver hreyfing var með forsæti í
einni nefnd."
Góð þjálfun
Höskuldur segir þing sem þetta
ómetanlegan skóla þar sem ung-
mennin fá þjálfun í að tala við fólk
á svipuðu reki sem hefur ólíkar
skoðanir. „ÞUF veitir góða þjálfun
í tjáningu og þingsköpum og er
einnig vettvangur fyrir ungliðana
til að taka sjálfstæðar ákvarðanir en
þær endurspegla ekki alltaf það sem
þingflokkurinn er að gera.
Þing unga fólksins endurspeglar
Alþingi einnig að því leyti að unglið-
arnir eiga jafnmörg sæti og flokksfé-
lagar þeirra á Alþingi þ.a. Samband
ungra sjálfstæðismanna átti flest
sætin. Þá skipar hver ungliðahreyf-
ing þingforseta og þingritara líkt og
gert er á Alþingi.“
Höskuldur segir að ályktanir af
þingi unga fólksins verði teknar
saman og afhentar forseta Alþingis.
„Gerð verða 63 eintök af saman-
tektinni þ.a. hver alþingismaður á
möguleika á að sjá það sem fram fór
á ÞUF og fá vonandi einhverjar hug-
myndir út frá því.“ Höskuldur vildi
að lokum koma á framfæri þakk-
læti til Háskóla Islands fyrir lánið á
hátíðarsalnum.
Um áttahundruð manns komu að Bergrisanum
Æfingin á viðbrögðum Kötlugoss tókst vel og er stœrsta rýmingarœfing sem fram hefur farið til þessa.
SNetverð á mann med ÍO.OCK
afslaetti, m.v. hjón með 2 b
2-11 ára, vikuferð í mai eða 2:
Riviera íbúðahótelið.
voru um 600 íbúar sem komu til
hjálparstöðva vegna æfingarinnar
en þá voru æfð viðbrögð við Kötlu-
gosi og miðað við flóð til vesturs
sem hefði í för með sér rýmingu
íbúða frá Þykkvabæ og austur fyrir
Meðalland. Þátttakendum æfingar-
innar var gert að taka saman eigur
sínar á 30 mínútum. Þeir sem búa
undir Sólheimum hafa hinsvegar að-
eins 15 mínútur til rýmingar og fór
sú æfing fram á laugardaginn.“
Gyða segir alla sem að æfingunni
hafa komið hafa lært mikið af henni.
„Það kom m.a. í ljós að nokkrir bæir
í Fljótshlíðinni fengu ekki boð eins
og gert var ráð fyrir. 1 framhaldinu
verður gerð skýrsla sem byggir á
æfingunni og þeim lærdómi sem
við drógum af henni. Æfingin er
stærsta rýmingaræfing sem fram
hefur farið til þessa en henni lauk
seinnipartinn í gær.“ Gyða segir að á
æfingunni hafi ferðamönnum verið
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.ls
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavik • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður simi: 510 9500
Aðstandendur Bergrisans, eru farið til þessa. Gyða Árný Helga-
ánægðir með æfingu á viðbrögðum dóttir stjórnandi verkefnafulltrúi
vegna Kötlugoss sem fram fór um almannvarnardeildar ríkislögreglu-
helgina. Æfingin fór fram á stærsta stjóra segir þátttökuna í æfingunum
rýmingarsvæði sem fram hefur framar björtustu vonum. „1 gær
Hafðu samband
^ ELTAK ,
VOC.IK
Bjóöum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum voguni
Eltak sérhæfír sig í sölu
og þjónustu á vogurn
Alls komu 300 manns að æfingunni sem eru reynslunni ríkari í kjölfar hennar.
bjargað úr sjálfheldu og að einn hafi hafði einnig fulltrúa sína á svæðinu
verið fluttur mjaðmagrindarbrotinn þar á meðal lækna og hjúkrunar-
til Reykjavíkur en litla þyrla Land- starfsfólk en viðbragðsaðilar voru
helgisgæslunnar tók einnig þátt í um 300 báða dagana.“
æfingunni. „Landlæknisembættið
Sextíu milljónum úthlutað
Á morgun úthlutar Háskólasjóður
Eimskipafélags Islands stærstu
Kress
iðnaðarryksugur 1200w
með tengil fyrir verkfæri
Ásborg
Smiðjuveqi 11,sími 5641212
fjárhæð sem um getur úr sjóði sem
sértaklega er ætlaður rannsóknar-
tengdu framhaldsnámi við Háskóla
Islands. Að þessu sinni verða 27
verkefni styrkt um samtals rúm-
lega 60 milljónir króna en 115 um-
sóknir bárust. Flestir eru styrkirnir
til þriggja ára þannig að um nær
þrefalda upphæð er að ræða. Styrk-
irnir skiptast þannig að tuttugu og
tveimurverður úthlutað til doktors-
nema, tveimur til meistaranema og
þriggja til verkefna þar sem dokt-
orsnemi er enn ekki ákveðinn. At-
höfnin fer fram kl 12:00 í hátíðarsal
Háskóla íslands.
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ VIKULEGA