blaðið - 27.03.2006, Page 17
blaðið MÁNUDAGUR 27. MARS 2006
i 25
Kemur mikill svefn
niður á heilsunni?
Ótímabær dauðsföll eru sjaldgæf-
ari meðai fólks sem aðeins fær sex
til sjö tíma svefn á nóttu en þeirra
sem fá átta tíma svefn. Þetta eru
niðurstöður nýrrar bandarískrar
rannsóknar sem stóð í sex ár og
meira en milljón fullorðnir ein-
staklingar tóku þátt í.
Því hefur oft verið haldið fram
að stór hluti Bandaríkjamanna
eigi við svefnleysi að stríða og um
fjórðungur þeirra neyti svefnlyfja
eða annarra meðala til að sofna á
kvöldin.
Daniel Kripke prófessor í geð-
lækningum við Kaliforníuháskóla
í San Diego segir tíma til kominn
fyrir landa sína að vakna. Gamla
viðkvæðið um að Bandaríkjamenn
séu vansvefta komi einkum frá fólki
sem njóti stuðnings lyfjafyrirtækj-
anna eða eigi annarra hagsmuna að
gæta.
„Þeir telja að með því að gera fólk
áhyggjufullt vegna svefnleysis muni
þeir auka tekjur sínar,“ sagði Kripke
í viðtali við vísindaritið LiveScience
á dögunum.
Neysia hefur stóraukist
Sala á svefntöflum hefur aukist mjög
í heiminum á undanförnum fimm
árum og er það einkum þakkað
markaðssetningu á nýjum lyfjum
sem hægt er að kaupa án lyfseðils
og eru ekki jafnávanabindandi og
eldri lyf.
Neysla svefnlyfja varasöm
Fjöldi fullorðinna á aldrinum 20-44
ára sem nota svefnlyf tvöfaldaðist
frá árunum 2000-2004 og talið er
að notkun þeirra muni aukast enn
frekar á næstu árum.
Meiri svefn tryggir þó engan veg-
inn betri heilsu og það gera fleiri
svefntöflur ekki heldur. Niðurstöður
rannsóknar sem Kripke stjórnaði og
náði til meira en milljón manns á
aldrinum 30 til 102 ára leiddi í ljós
að dánartíðni fólks sem aðeins fær
6-7 stunda nætursvefn var lægri en
þeirra sem fá átta tíma svefn.
Kripke sagði jafnframt að hættan
sem væri í því fólgin að nota svefn-
töflur 30 sinnum eða oftar í mánuði
væri ekki miklu minni en hættan
sem fylgi því að reykja pakka af síg-
arettum á dag.
Þeir sem sofa lítið njóta
meiri velgengni
Þeir sem tóku svefntöflur á hverju
kvöldi voru í meiri hættu á að hljóta
dauðsfall af en þeir sem tóku þær
stöku sinnum. Þeir sem tóku þær
aðeins stöku sinnum voru þó í 10
til 15% meiri hættu á að deyja en
fólk sem aldrei notaði slíkar töflur. í
bók sinni, Hin dökka hlið svefnlyfja,
sem aðgengileg er á Internetinu,
segir Kripke að neysla svefnlyfja sé
ókeypis til
>1x111
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
ÓHAÐ
blaði&=
varasöm jafnvel í litlu magni.
Hann segir að ekkert bendi til
þess að sá sem sofi í átta tíma á
nóttu standi sig betur en sá sem
aðeins fær sex til sjö stunda svefn.
Jafnframt segist hann gruna að fólk
sem sofi minna en meðalmaðurinn
þéni meiri peninga og njóti meiri vel-
gengni í lífinu.
Ný rannsókn bendirtil að heiisusamlegra
sé að sofa í aðeins sex til sjö stundir á
nóttu en í átta stundir. Sama rannsókn
leiðir í Ijós að neysla svefnlyfja getur
reynst varasöm, jafnvel í litlu magni.