blaðið - 27.03.2006, Síða 20

blaðið - 27.03.2006, Síða 20
28 I Herstöðvaandstæðingar og Suðurnesjamenn taki höndum saman! Ein af þversögnum nútímafjölmiðla er sú staðreynd að þótt frétta- tímum og umræðuþátt- um um þjóðmál fjölgi í sífellu, bendir fátt til að sú aukning verði þess valdandi að fleiri sjón- steíán pá,sson armið heyrist eða að umræðan endurspegli endilega almenn viðhorf í þjóðfélaginu. Maraþonumræður síðustu daga um her- málið eru gott dæmi um þetta. Griðarlegum tíma er nú varið í að ræða framtíð herstöðvarinnar á Miðnes- heiði, en hið ríkjandi sjónarmið í þeirri fjölmiðlaumræðu virðist vera á þá leið að stjórnvöld eigi að leita allra leiða til að tryggja einhvers konar áframhaldandi herstöðvarrekstur með öllum tiltæk- um ráðum. Þessi viðhorf eru verulega á skjön við þá umræðu sem heyra má hvarvetna annars staðar í þjóðfélaginu. Um fátt er meira rætt manna á milli en tíðindin í herstöðvarmálinu, en i hugum þorra fólks snýst sú umræða ekki um að reyna að hverfa aftur í tímann. Fólk veltir fyrir sér praktískum atrið- um varðandi framtíð Keflavíkurflug- vallar og mögulegum áhrifum varðandi innanlandsflug. Menn íhuga framtíð Landhelgisgæslunnar og þyrlubjörgunar- sveitarinnar. Aðrir spyrja hvernig Banda- rikjamenn eigi að skila af sér landinu, meðal annars með tilliti til mengunar- spjalla? Spurningin sem langflestir velta svo vöngum yfir er þessi: hvað tekur nú við - hvernig nýtum við best aðstöðuna á vellinum? 1 hugum þorra fólks fela fregnir af yfir- vofandi brottför hersins ekki í sér neina krisu. Sú krísa er einungis til í huga til- tölulega fámenns hóps. Illu heilli eru stjórnmálamenn og fréttaskýrendur fjöl- mennir í þeim hópi. Gjáin sem myndast hefur milli almenn- ings og ráðamanna í þessu máli hlýtur að vera sérstakt áhyggjuefni fyrir þann þjóðfélagshóp sem hefur hvað mestra hagsmuna að gæta, íbúa Suðurnesja. Fyr- ir Suðurnes gæti brottför hersins falið í sér fjölda tækifæra og orðið uppspretta aukinnar hagsældar. Forsenda þess að svo geti orðið er á hinn bóginn að her- stöðinni verði lokað fyrir fullt og allt, að sómasamlega verði að brottflutningnum staðið og að svæðið verði hreinsað með bestu fáanlegu tækni. Ekkert af þessu er hins vegar á dagskrá íslenskra stjórnvalda. Markmið þeirra virðist vera að breyta herstöðivnni í draugaþorp til að halda í hana að nafn- inu til. Þar með myndi aðstaðan ekki nýtast á nokkurn hátt, nýsköpun yrði ómöguleg og ekkert færi fyrir hreinsun. Sú staða er nú komin upp í hermálinu að herstöðvaandstæðingar og Suðurnesja- menn - hvar í flokki sem þeir standa - þurfa að snúa bökum saman. Saman verðum við að berjast gegn öllum hug- myndum um draugaþorp stöðnunar á Miðnesheiði. Krafan um algjöra og tafar- lausa lokun herstöðvarinnar er augljóst sameiginlegt baráttumál eins og staðan er nú. Herinn burt! Höfundur erformaður Samtaka her- stöðvaandstœðinga. rf tvŒihi1. Klukkan 10.42 var hringt til mín og mér tilkynnt sem hluta af æfingunni Berg- risinn, að eldsumbort væru að hefjast í Kötlu og gerðar hefðu verið ráðstafanir til að virkja samhæfingarmiðstöð al- mannavarna og kalla saman fund vís- indamanna til að leggja mat á stöðuna. Um hálftíma síðar var mér tilkynnt, að rýming fólks á svæðinu væri að hefjast. í færslu hér á síðuna í gær vitnaði ég í Ólaf Teit Guðnason, þar sem hann fjall- aði meðal annars um blaðamennsku DV. Dæmi um það, hvernig DV tekur á mál- um, sem snerta mig má sjá í svonefndri fréttakýringu í blaðinu í dag eftir Jakob Bjarnar Grétarsson en þar ræðir hann skipun dómara í hæstarétt og gefur þessa skýringu á því, að ég skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson dómara þar: „Heimildir DV herma að það skipti máli þegar Björn skipaði óvænt Ragn- heiði Torfadóttur rektor við MR, 7. apríl 1995. Meðal umsækjanda þá var Ólafur Oddsson menntaskólakennari. Svo sjálf- sagt mun Davíð hafa þótt að Ólafur fengi stöðuna að hann hafði ekki fyrir því að árétta það við Björn. Svo mjög varð Dav- íð við, samkvæmt áreiðanlegum heimild- um DV, að hann horfði í gegnum Björn næsta árið, yrti hvorki á hann né svaraði símhringingum hans. Þessi meðferð varð svo til þess að Björn hikaði hvergi, þótt það væri gegn öllu öðru, að skipa Öl- afBörk.“ Allt í þessari tilvitnuðu klausu er rangt annað en það, að Ólafur Oddsson, gam- all félagi minn úr Háskóla íslands og hálfbróðir Davíðs, sótti um að verða rekt- or MR ásamt Ragnheiði Torfadóttur og ég skipaði Ragnheiði. Dagsetningin er röng - ég varð ekki ráðherra fyrr en 23. apríl 1995 og lýsing Jakobs á samskiptum okkar Davíðs er uppspuni frá upphafi til enda. Ég veit ekki hverjir það eru, sem gera Jakob að ósannindamanni, því að ekki lætur hann heimildamanna sinna getið. Jakob hafði ekki frekar nú en áður, þegar hann skrifar eitthvað til að gera lít- ið úr hlut mínum, samband við mig til að hafa það sem sannara reynist. Miðað við fyrri vinnubrögð Jakobs kæmi mér ekki á óvart, að hann hefði samið það, sem Ólafur Teitur taldi einsdæmi í fjöl- miðlarýni sinni og ég nefndi hér í gær. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra www.bjorn.is lOmanna pókerborð Mjög vandað borð! Einnig hægt að fá með rauðum dúk Verð: 19.990,- WWW.VERSLA.IS Hlíðarsmári 13 S: 5666-999 Hyundai Gailoper 2.5 TDI, 4/2000, ek. 146þús, beinskiptur, 33* breyttur, Álfelgur, Dráttarkúla, Intercooler, Kastargrind, Pluss áklæði, Rafm. í rúðum og speglum, samlæsingar o.fl. ÁsettVerð: 940,000- Tilboð: 790,000- Ford Mondeo Chia Sedan, 9/1999, ek. 120þús, beinskiptur, ABS, Álfelgur, Dráttarkúla, Líknarbelgir, rafm. í rúðum og speglum o.fl. ÁsettVerð: 830,000- Tilboð: 550,000- Volvo S-40i, 7/2004, ek. 18þús, sjálfskiptur, ABS, Álfelgur, Glertopplúga, Hiti í sætum, Cruise Control, Kastarar, Loftkæling, rafm. í rúðum og speglum, Leður o.fl. Ásett verð: 2.750,000- Toyota Corolla VVT11,6 Wagon árg 6/2004, ekin 24þús km, beinskiptur, abs, fjarstýrðar samlæsingar, rafmagn í rúðum og m/fl Verð:1,650,000- MMC Carisma GLX 1,6 EXE árg 8/1999 ekinn 105þús km, beinskiptur 5gfra, Sumardekk og vetrardekk, álfelgur, ABS, fjarstýrðar samlæsingar,spoiler og /fl Verð: 650,000- Chevrolet Lacetti CDX Wagon, 5/2005, ek. 16þús, Sjálfskiptur, ABS, Dráttarkúla, Filmur, CD og magasín, Kastarar, Rafm. (rúðum og speglum, Þakbogar o.fl. Ásett verð: 1.790,000- Nissan Terrano il 2400 Sport, 7/2002, ek. 89þús, beinskiptur, ABS, Álfelgur, CD, Rafm. í rúðum og speglum, Stigbretti Varadekkshlff o.fl. ÁsettVerð: 1.760,000- BMW 530 Touring, 3/2001, ek. 93þús, Sjálfskiptur, ABS, álfelgur, ASR Spólvörn, ESP stöðuleikakerfi, Bakkskynjari, Magasín, Topplúga, Hanfdfrjáls Búnaður, Hiti í sætum, Cruise Control, Kastarar í svuntu, Leiðsögukerfi, Leður, Líknarbelgir, Loftkæling, Rafm í öllu, sjónvarp o.m.fl. ÁsettVerð: 3.790,000- Tilboð: 2,690,000- Nissan Titan 5,6 LE árg 6/2004 ekin 21 þús km,sjálfskiptur,33",lok á palli, abs, dráttarbeisli, gangbretti, DVD, sjónvarp, glertopplúga, geislaspilari, hraðastillir, klædd skúffa.Verð:3,390,000- TILBOÐ:3,090,000- Isuzu Trooper 3,0 TDI árg 8/2000 ekin 123þús km,sjálfskiptur,32" dekk, abs, álfelgur, armpúðar í sætum, dráttarbeisli, filmur, fjarstýrðar samlæsingar, geislaspilari, og m/fl 1 eignandi frá Verö:1,890,000- Suzuki Grand Vitara, 86þús, beinskiptur, ABS, CD, Líknarbelgir, Rafm. ( rúðum og speglum, samlæsingar, þakbogar o.fl. Ásett verð: 1.670,000- Tilboð:1.390,000- Subaru Legacy Gl 2,0L STW árg 8/2000 ekinn 208 þús km,sjálfskiptur,sumardekk á álfelgum og vertardekk á stálfelgum,geislaspilari,rafmagn í öllu, 1 eigandi verð aðeins 790,000- S: 587-1000 S: 577-2800

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.