blaðið - 10.04.2006, Qupperneq 4
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2006 biaöiö
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
Fjármálaeftirlitið vísar þremur
málum til ríkislögreglustjóra
Upplýsingaskyldu vegna verðbréfaviðskipta var ekki sinnt sem skyldi. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir
sltkar upplýsingar mikilvœgarfyrir markaðinn. Aðeins einu slíku máli vísað til lögreglu tfyrra.
Fjármálaeftirlitið hefur vísað
þremur málum vegna brota á lögum
um verðbréfaviðskipti til ríkislög-
reglustjóra. Um er ræða mál þar sem
tilkynningarskyldu til Kauphallar-
innar vegna viðskipta með verðbréf
var ekki sinnt sem skyldi. Á síðasta
ári var aðeins einu slíku máli vísað
til lögreglunnar og því um verulega
fjölgun að ræða. Jónas Fr. Jónsson,
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir
eina úrræði stofnunarinnar í svona
tilvikum vera að vísa málum til
ríkislögreglustjóra.
(trekuð brot
Fjármálaeftirlitið ákvað í lok mars-
mánaðar að vísa þremur málum
vegna brota á lögum um verðbréfa-
viðskipti til ríkislögreglustjóra.
Málin snúa öll að svokallaðri flögg-
unarskyldu en samkvæmt lögum er
aðila skylt að tilkynna Kauphöllinni
sérstaklega þegar verðbréfaviðskipti
hafa veruleg áhrif á samsetningu
eignarhluta í fyrirtæki.
I tveimur af þeim tilvikum sem
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að
vísa til lögreglu barst tilkynning
vegna viðskipta of seint. Um er að
ræða viðskipti sem áttu sér stað í
janúarmánuði.
í þriðja tilvikinu er um að ræða
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins.
viðskipti sem áttu sér stað í ágúst-
mánuði á síðasta ári og hefur sá
aðili itrekað brotið gegn lögum um
flöggunarskyldu.
A síðasta ári voru sjö mál tekin
til athugunar með hliðsjón af um-
ræddri flöggunarskyldu. Aðeins
einu máli var þó vísað til ríkislög-
reglustjóra og því er hér um tölu-
verða fjölgun að ræða.
Eiga að tilkynna
Að sögn Jónasar Fr. Jónssonar, for-
stjóra Fjármálaeftirlitsins, geta brot
af þessu tagi haft áhrif á markaðinn
þar sem reglum um upplýsingaflæði
er ekki fylgt eftir. „Menn eiga að til-
kynna þegar viðskipti hafa veruleg
áhrif á eignarhluta i fyrirtæki. Þetta
eru upplýsingar sem eru mikilvægar
fyrir markaðinn. Við getum þó ekki
sektað sjálfir fyrir slík brot þar sem
við höfum ekki heimild til þess.
Þannig að einu möguleikarnir eru
að gera ekki neitt eða senda málið
áfram til ríkislögreglustjóra."
Jónas segir það misjafnt hvernig
Fjármálaeftirlitinu berast upplýs-
ingar um slík brot en í mörgum til-
vikum komi athugasemdir frá Kaup-
höllinni. „Við erum í samstarfi við
Kauphöllina. Ef þeir verða varir við
eitthvað þá láta þeir okkur vita. Svo
tökum við oft sjálfir upp mál.“
Jónas bendir ennfremur á að í
kjölfar hinnar svokölluðu gagnsæ-
isstefnu muni Fjármálaeftirlitið
framvegis birta athuganir og mál af
þessu tagi á heimasíðu sinni. Hann
segir þó að stefnan sé að birta ekki
nöfn tiltekinna aðila fyrr en málum
er endanlega lokið. „Við birtum
nöfn eftir að kærufresti lýkur því þá
er málinu einfaldlega lokið. I hinu
tilvikinu á eftir að rannsaka málið
frekar af hálfu lögreglu. Það er síðan
þeirra að ákveða hvort ástæða sé til
að gefa út ákæru í málinu."
Fljótsdalshérað skilar hagnaði
Samkvæmt ársreikningum fyrir
árið 2005 var Fljótsdalshérað rekið
með 273 milljóna króna hagnaði
en þetta kemur fram á heimasíðu
Fljótsdalshéraðs.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á
árinu 2005 námu 1.958 milljónum
króna en rekstrargjöld fyrir fjár-
magnsliði námu alls 1.565 milljónum
króna. Fjárfestingar ársins 2005
námu nettó 637 milljónum króna
en lántökur námu 388 milljónum
króna. Eigið fé sveitarfélagsins í árs-
lok 2005 nam 1.177 milljónum sam-
kvæmt efnahagsreikningi og eigin-
fjárhlutfallið hækkaði úr 28% í 32%
frá árinu 2004-2005.
Samþykktu
sameiningu
Meirihluti íbúa Skeggjastaða-
hrepps og Þórshafnarhrepps
samþykkti sameiningu sveit-
arfélaganna í atkvæðagreiðslu
sem ffarn fór á laugardaginn.
Um 92% kjósenda í Þórs-
hafnarhreppi samþykktu
sameininguna en rétt tæp 58%
kjósenda í Skeggjastaðahreppi.
Sameiningin mun taka
gildi að afloknum sveitar-
stjórnarkosningum í maí.
Vörubíll valt
mbl.is | Vörubíll valt þegar
hann vár að losa hlass á malar-
slóða við Laugarvatn á fjórða
tímanum f gær. Ökumaður
bílsins slasaðist og var fluttur á
slysadeild Landspítala-Háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi. Að sögn
læknis á slysadeild slasaðist
maðurinn ekki alvarlega.
Vildarþjónusta
Við leggjum áherslu á langtímasamband
og sérhæfðar lausnir sem taka mið af
sérstökum aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH - fyrír þig og fyrirtækið!
spbn
5502000 | www.sph.is
PÁSKAR Á AKUREYRI
...skíbasnjórinn er á Akureyri í ár!
JflíðmfjgU Veriö velkomin!
Akureyrí www.hlidarfjall.is
í álfheimum
BlaöiS/Steinar Hugi
Ekki eru þau átján börnin sem Þórður Viðar viðraði í góða veðrinu i gær en á álfaslóðir var förinni engu að sfður heitið. Hundurinn Aval-
on leiðir hópinn um holt og hæðir og fast á hæla hans fylgja börnin Telse Björk, Tinna Björk og Kjarval Thor.
Magnús Þór á
lista frjálslyndra
á Akranesi
Karen Jónsdóttir, viðskipta-
fræðingur, mun skipa fyrsta
sæti á lista Bæjarmálafélags
frjálslyndra og óháðra á
Akranesi. Gengið var frá
fyrstu níu sætunum á fram-
boðslistánum um helgina.
Magnús Þór Hafsteins-
son, alþingismaður, skipar
annað sætið en Rannveig
Bjarnadóttir, grunnskóla-
leiðbeinandi, það þriðja.
Markmið listans er að
ná tveimur mönnum inn
í bæjarstjórn í komandi
bæjarstjórnarkosningum.
FRÁ KRESS
Hjólsög sem hægt er að breyta
í keðjusög.
Ásborg
Smiðjuvegi 11,sími 5641212