blaðið - 10.04.2006, Qupperneq 17
biaðið MÁNUDAGOR 10. APRÍl :2Ö06
3T II
Ævintýrið af Karli og Camillu
Um þessar mundir er ár liðið frá því
að Karl Bretaprins og Camilla Parker-
Bowles gengu í hjónaband. Viðbrögð
fólks við viðburðinum voru blendin
enda skiptast menn gjarnan í tvö
horn í afstöðu sinni til sambands
þeirra sem hófst fyrir meira en 35
árum. Sumir sáu brúkaupið sem
lokapunkt langrar og á köflum harm-
rænnar sögu tveggja elskenda sem
forlögin komu á sínum tíma í veg
fyrir að næðu saman. Aðrir líta á Ca-
rnillu sem hjónabandsdjöful sem hafi
komið upp á milli prinsins og Díönu
prinsessu. Mörgum þykir Camilla
jafnframt vera hin algera andstæða
Díönu. Díana var ung og falleg og
heillaði fólk með alþýðlegu fasi sínu
og framkomu. Camilla, sem komin
er hátt á sextugsaldur, verður seint
talin með kynþokkafyllstu konum
heimsins og margir hafa haft horn
i síðu hennar. Það virðist samt engu
breyta um ást Karls til hennar.
Athöfnin fór fram í Windsor Guild-
hall, tæpum 50 km fyrir utan London,
þann 9. apríl 2005. Upphaflega átti
hún að fara fram degi fyrr en breyta
þurfti dagsetningunni vegna útfarar
jóhannesar Páls páfa II. Að lokinni
borgaralegri athöfn lagði Rowan
Williams, erkibiskup af Kantara-
borg, blessun sína yfir hjónabandið
fyrir hönd ensku kirkjunnar. Um
750 manns voru viðstaddir athöfnina
sem fór fram í Kapellu heilags Georgs
í Windsor. Þar á meðal voru foreldrar
Karls, Elísabet II og Filippus prins en
Elísabet var ekki við hina eiginlegu
hjónavígslu.
Látlausara en brúðkaup aldarinnar
Óhætt er að segja að brúðkaup Karls
og Camillu hafi verið öllu látíausara
en brúðkaup hans og Díönu prinsessu
árið 1981.750 milljónirsjónvarpsáhorf-
enda fylgdust með því brúðkaupi sem
oft hefur verið nefnt brúðkaup aldar-
innar og hafði engin sjónvarpsútsend-
ing fengið annað eins áhorf fram að
þvi. Díana heillaði áhorfendur um
lieim allan með fegurð sinni og fram-
komu og naut vinsælda og virðingar
það sem hún átti eftir ólifað.
Hjónaband Díönu og Karls var
þó enginn dans á rósum og þau
skildu að borði og sæng árið 1992.
Díana sagði í viðtali nokkrum árum
síðar að þetta hefði í rauninni verið
hjónaband þriggja og vísaði þar að
öllum líkindum til langvinns ástar-
sambands Karls og Camillu. Karl og
Díana skildu formlega árið 1996, ári
áður en prinsessan fórst í hörmulegu
bílslysi í París.
Karl prins kynntist seinni konu
sinni sem þá hét Camilla Shand á
pólóleik árið 1970 þegar þau voru
bæði á þrítugsaldri. Segja má að Ca-
milla hafi fetað í fótspor langömmu
sinnar, Alice Keppel, sem hafði verið
hjákona Eðvarðs VII Bretakonungs
og langalangafa Karls. í æsku heyrði
Camilla sögur af „ömmu Alice“ sem
sagði sjálf að hlutverk hennar í hirð-
inni hefði verið „að hneigja sig fyrst
og stökkva síðan upp í rúm.“
Fjölskyldan mótfallin ráðahagnum
Samband þeirra stóð í þrjú ár og slík
var alvaran að baki því að Karl vildi
ganga að eiga Camillu. Fjölskylda
hans var þó mótfallin ráðahagnum
af ýmsum ástæðum. Meðal annars
þótti Karl fullungur til að ganga í
það heilaga og Camilla hafði verið
við aðra karlmenn kennd auk þess
sem hún var ekki eðalborin. Upp úr
sambandinu slitnaði þegar Karl gekk
í sjóherinn og fáeinum mánuðum
síðar giftist Camilla herforingjanum
Andrew Parker Bowles.
Segja má að skuggi Camillu hafi
fylgt Karli alla tíð og sögusagnir um
að enn væri líf í gömlum glæðum
heyrðust reglulega eftir að hann
geíck að eiga Díönu. Skömmu eftir
að Karl og Díana skildu að borði og
sæng hóf hann smátt og smátt að afla
samhandi hans og Camillu velvildar
almennings. 1 júli árið 1997 hélt hann
henni heilmikla veislu í tilefni af
fimmtugsafmæli hennar sem margir
litu á sem opinbera viðurkenningu á
sambandi þeirra. Mánuði síðar lést
Díana í hörmlulegu bílslysi í París
og vakti fráfall hennar mikla sorg
almennings í Bretlandi og víðar í
heiminum. Næstu mánuði har lítið á
Camillu því að þó að hún hefði ekki
átt þátt í dauða prinsessunnar hjart-
kæru beindist reiði margra að henni
sem „hinni konunni" í lífi Karls og
hjónabandsdjöfli.
Ekki prinsessan af Wales
Snemma árs 1999 komu Karl og Ca-
milla fyrst fram saman opinberlega
og eftir það sáust þau oft saman við
ýmsa viðburði.
Camilla tók sér nafnbótina hertoga-
ynjan af Cornwall þegar hún giftist
Karli enda vildi hún ekki bera titil
prinsessunar af Wales sem flestir
tengja Díönu heitinni.
Lögformlega verður Camilla
drottning ef Karl tekur við ríkinu en
sjálf hefur hún lýst því yfir að hún
muni nota titilinn Consort prinsessa.
Að öllum líkindum gerir hún það til
að bregðast við könnunum sem leiða
í ljós að stór hluti almennings geðjast
ekki að hugmyndinni um að hún taki
upp drottningartitil.
■
Karl Bretaprins ásamt eiginkonu sinni, Camillu, veifar til fólks sem komið var saman til
að fagna fyrsta brúðkaupsafmæli hjónanna.
Dalvegi 4 • Sími 5644700
Kópavogi
Opið: Mánud.-Föstudag 06:00 - 18:00
Laug. 06:00 - 17:00 Sunn. 07:00 - 17:00
Hamraborg 14 • Sími 554 4200
Kópavogi
Opið: Mánud.-Föstudag 08:00 -18:00
Laug. 08:00 - 16:00 Sunn. 09:00 - 16:00