blaðið - 10.04.2006, Page 27
blaðiö MÁNUDAGUR 10. A?®lLrií20TÖ6
ite f
Þið eruð með umboðsmann, Martin.
Erþað nauðsynlegt á Islandi?
„Nei, svo sem ekki. Hugsanlega samt
fyrir sum bönd. Við sem einstak-
lingar erum frekar óskipulögð eins
og kom á daginn varðandi útgáfu-
tónleikana. Við hefðum sennilega
aldrei getað skipulagt þá án hjálpar.
Við hefðum að minnsta kosti skít-
tapað á þvi að skipuleggja þetta sjálf.
Það hefur ekki mikil áhrif á tónlist-
ina sjálfa en það sem skiptir mestu
máli er það að hann sér um margt
annað. Við þurfum því ekki að
hafa áhyggjur af ýmsum hlutum og
getum einbeitt okkur að tónlistinni.
Eg held að við höfum verið rosalega
heppin að fá mann sem hefur þetta
mikinn áhuga á okkur. Ég held að
hann líti alls ekki á hlutverk sitt sem
einhverja skitavinnu. Hann hefur
það gaman af tónlistinni."
Afhverju slituð þið samstarfi við Cur-
ver Thoroddsen viðgerð plötunnar?
„Það var eiginlega gert á síðustu
stundu og má kannski tala um list-
rænan ágreining. Við höfðum mjög
ólíkar skoðanir á því hvernig við
vildum vinna plötuna þó að Curver
sé frábær „pródúser" Málið var að
vildum eiginlega ekki láta „pródús-
era“ plötuna, þetta voru „live“-upp-
tökur sem við vildum vinna sem
minnst. Curver vildi gera þetta mjög
flott og allt það en við vildum bara fá
hljóðmann sem kunni á takkana, lag-
færa það sem þurfti að laga og koma
henni út.“
Fáránlegur stökkpallur að
vinna Músiktilraunir
Hvað hefur það gert fyrir ykkur að
sigra Músiktilraunir 2004?
„Við höfðum starfað mjög stutt þegar
við skráðum okkur í Músiktilraunir,
það var nánast gert í fljótfærni. Við
hefðum örugglega haldið áfram þó
við hefðum ekki sigrað en það gerði
allt mun einfaldara og opnaði ýmsar
dyr. Maður vill samt ekki endalaust
vera bandið sem sigraði Músiktil-
raunir, reyna aðeins að hrista það af
sér. Þetta var samt ótrúleg lyftistöng,
við fengum strax að spila og fólk
sýndi bandinu áhuga. Síðan kemur
í ljós hvernig maður stendur sig og
við höfum reynt að halda okkur
lifandi. Þetta er í raun fáránlegur
stökkpallur að vinna þessa keppni.
Við stelpurnar erum ekki miklar
íþróttamanneskjur þannig að þetta
var stærsta keppni sem við höfum
tekið þátt í og unnið.“
Þið hafið fengið jákvœða um-
fjöllun frá fagtímaritum á borð
við Rolling Stone. Hefur það skipt
máli?
„Nei, í raun ekki, við sáum þetta á
Netinu og það var mjög gaman. Hér
á íslandi er ímyndin sú að við erum
ung og efnileg hljómsveit sem vann
Músiktilraunir en úti hafa menn
ekki hugmynd um það. Það var því
skemmtilegt að fá ferskar skoðanir
inn í umfjöllunina."
Hljómsveitin er ung og þið eruð ung.
Hefurþaðhaftáhrifásamskiptiykkar
við tónleikahaldara og útgefendur?
„Maður sér það alveg fyrir sér að fólk
haldi að það geti vaðið yfir mann,
hægri vinstri, af því að við erum
svo ung og höfum ekki vit á hinu og
þessu. Maður bara kynnir sér hlut-
ina, við vitum alveg hvað við viljum
eins og með plötusamninginn. Við
fórum fram á ýmislegt og það gekk
allt upp. Við fórum niður í Smekk-
leysu og sögðum það sem okkur
fannst en að hluta til var þetta líka
ástæðan fyrir því að við þurftum
að fá umboðsmann. Við héldum
t.d. að samningur væri bara hvítt
blað sem skrifað væri undir en það
er víst flóknara en svo. Þá þurftum
við að setjast niður og hugsa um
hvernig samning við vildum. Ef það
væri ekki fyrir Martin værum við
hugsanlega búin að selja sál okkar
til Satans.“
Hvað tekur við hjá Mammút?
„Spila mikið og æfa mikið. Reyna að
koma upp ferskri dagskrá. Reyna að
koma öllum þessum hugmyndum
niður á blað og út í útlimi. Þegar um
hægist núna eftir útgáfu plötunnar
erum við að hugsa um að skella
okkur í sumarbústað og semja efni
yfir helgi. Á næstunni munum við
spila á Sirkus á miðvikudaginn og 16.
maí verða útitónleikar með Rassi og
fleiri hljómsveitum.“
Mammút hvatti fólk að lokum
að „ganga hægt um gleðinnar dyr“.
„Við vitum að þetta er klisja en það
er búið að segja þetta svo oft við
okkur að undanförnu". Þetta er ung
hljómsveit og ef til vill skiljanlegt að
aðstandendur þeirra hafi áhyggjur
af hraða frægðarinnar. Þeir þrír
hugar sem fléttuðust saman á litlu
kaffihúsi virtust þó ekki hafa miklar
áhyggjur af þessu. Það er hugsan-
lega hægt að feta einstigi milli heims-
frægðar eða dauða.
jon@bladid.net
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net.
12.15 - Fyrirlestur
Haukur Ingi Jónasson: 1 landi
lifanda Guðs - lækningarmáttur
ímyndunaraflsins og íslensk hefð
V. stofa í Aðalbyggingu HÍ.
12.15 - Fyrirlestur
Halldór Ásgrímsson: Framtíðar-
stefna íslendinga í öryggis- og
varnarmálum
Hátíðarsalur í Aðalbyggingu Há-
skóla íslands.
12.20 - Fyrirlestur
Sigrún Steingrímsdóttir: Thomas
Kingo á íslandi
Lögberg, stofa 103
13.00-Fyrirlestur
Málstofa um merkar bækur á 18.
öld
Nýi garður, st. 301
Hjalti Snær Ægisson fjallar um
A philosophical enquiry into
the origin of our ideas 0} the su-
blime and beautiful eftir Edmund
Burke.
Soffía Bjarnadóttir fjallar um Just-
ine, or Good Conduct Well Chast-
ised (Justine, ou les Malheurs de
la Vertu, 1791) eftir Marquis de
Sade.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir fjallar
um Ferðir Gúllivers fyrr og nú.
Ásthildur Jónsson fjallar um Orð-
ræðu um ójöfnuð milli manna eftir
Jean-Jacques Rousseau.
Vala Georgsdóttir fjallar um Vind-
ications ofthe Rights of Woman
eftir Mary Wollstonecraft.
10-17 - Myndlist
Kosuth og Kabakov
Ævintýraskáldið Hans Christian
Andersen er uppspretta inn-
setninga sem þrír af helstu lista-
mönnum samtímans, Joseph
Kosuth og hjónin og samstarfs-
mennirnir Ilya og Emilia Kabakov,
sýna á Kjarvalsstöðum og í Hafn-
arhúsinu. Aðgangur er ókeypis á
mánudögum.