blaðið - 10.04.2006, Síða 30

blaðið - 10.04.2006, Síða 30
381 MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2006 blaðið HVAÐ FINNST ÞÉR? Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Hefur Sjálfstæðisflokknum mistek- ist að tryggja öryggi þjóðarinnar? „Nei alls ekki. Samfylkingin hefur aldrei haft skýra stefnu í öryggis- og varnarmálum. Maður þarf ekki nema að vitna í samþykkt þessa svokall- aða framtíðarhóps sem gat ekki gert upp við sig hvort að við ættum að vera áfram í varnarsamstarfi við Bandaríkjamenn eða leita eitthvert allt annað. Enda er það svo að þingflokkurinn samanstendur m.a. af gömlu alþýðubandalagsfólki sem barðist lengi gegn veru Islands í Nató. Það eru aðeins tveir flokkar á Alþingi sem hafa ábyrga stefnu í öryggis- og varn- armálum og Samfylkingin er ekki einn af þeim. Þannig að ég lít á þessi ummæli Ingibjargar sem hvert annað grín.“ Á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina gagnrýndi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Sjálfstæðisflokkinn og sagði honum hafa m.a. mistekist að tryggja öryggi þjóðarinnar í hernaðarlegum skilningi. Ég þekki þig. Það er konan, sem hefur talað þig inn á þetta. Bollywood leikkonan Bipasha Basu sýnir hönnun hins indverska Monisha Jaising á tiskusýningu sem haldin var í tilefni tlskuvikunnar I Nýju Delí.Til hægri má sjá fyrirsætu sýna hönnun Rohit Gandhi og Rahul Khanna. eftirJim Unger 8-21 C Jim Unger/dist. by Unitod Modia, 2001 Kafari stingur sér ofan í vatn nálægt þorpinu Nilmaguba í norðurhluta Rússlands. Á myndinni hægra megin sést hann stinga höfðinu upp úr ísköldu vatninu. ATKVÆÐAVEIÐAR EÐA HEFNDAR- RÁÐSTÖFUN Smáborgarinn skemmtir sér oft og ein- att yfir stjórnmálum. Oft er kátína Smá- borgarans tilkomin vegna gríöarlegrar skammsýni stjórnmálamanna sem svo átakanlega augljóslega segja bara þaö sem þeir telja að kjósendur vilji heyra. Þetta er vel áberandi hjá stjórnmála- mönnum sem vel eru komniryfir miðjan aldur en enn aumkunarverðara er þessi hegðun hjá yngra fólkinu sem nánast flettir upp um sig í atkvæðaleitinni. Fólk sem ætti að hafa eitthvað ferskt til málanna að leggja. Margvíslega ný- leg „meik-óver" hafa verið uppspretta meinlegra brandara Smáborgarans um ungpólitíkusana „ábyrgðarfullu." Vegna þess hversu Smáborgarinn hefur almennt takmarkað álit á þessu annars ágæta fólki þótti honum enn meira til þess koma þegar hann heyrði í fréttum gærkvöldsins sagt af þeirri stefnu Samfylkingarinnar að færa um- sjón með málefnum aldraðra frá ríki til bæjar. Ríkið hefur brugðist skyldum sín- um við gamla fólkið og því álíka mikið ábyrgðarleysi að láta ríkið áfram hafa forsjá þessara mála og ofeldisfulla for- eldra yfir börnum sínum. Auðvitað má segja að þessi stefna Samfylkingarinnar sé ekkert annað en kosningaflaður og flokkurinn sé fljótur að grípa upp málefni líðandi stundar og reyna að hala inn atkvæðunum þeg- ar hann sér sér leik á borði. Það er svo sem ekkert óvarlegt að ætla að rétt sé að Samfylkingin sé í atkvæðaleit svona rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar og líklega hefur þessi nýja stefna þeirra í málefnum aldraðra þegar skilað inn nokkrum atkvæðum. Smáborgarinn tel- ur þó að þessi stefna sé ekki öll þar sem húnerífyrstu séð. Að færa aukna ábyrgð yfirá sveitarfé- lögin er eitthvað sem Smáborgarinn átti hreinlega ekki von á að heyra á þessum síðustu tímum þegar grátkór þessara félaga yfir aukinni ábyrgð og takmörk- uðum tekjustofnum hefur verið hvað hæstur. En þó er það alls ekki galið ef hugsað eraðeins lengra. Smáborgarinn þykist sjá að Samfylkingin sé með fram- sýnum hætti að koma grátbólgunni og ekkanum yfir á flokkana sem undanfar- in ár hafa farið með stjórn ríkisins. Að Samfylkingin ætli sér að taka ríkið með áhlaupi og skilja borgina eftir í höndum óvinanna með takmarkaða tekjustofna og auknar ábyrgðir. Þvílík framsýni! En kannski er Smáborgarinn bara að gera mönnum of hátt undir höfði. Já, eða lágt. FRJALST ÓHÁÐ ______I blaðió HEYRST HEFUR... Ur Vatnsmýrinni heyrast þau tíðinai að Magnús Þorsteinsson í Avion Gro- up nægi ekki að hafa yfir flugvélum Atl- anta að ráða og hyggist því fara að fordæmi vin- ar síns og við- skiptafélaga, Björgólfs Thors Björgólfssonar, og fiárfesta í einkaþotu sömu gerðar. Telja menn að þegar sú þota kem- ur til lanasins verði ástandið orðið óþolandi fyrir Hannes Smárason hjá FL Group, sem lengi hefur talið sig þurfa eigin flugvél og raunar ekki hikað við að breyta vélum Icelandair í allsherjar Saga Class rör, þeg- ar mikið liggur við fyrir hina nýju stétt. En fari svo, að þeir Magnús og Hannes verði báðir komnir á sams konar rellur og Björgólfur Thor spá flugspek- ingar því að hann geti ekki lengi unað við slíkt og muni þá sjálfsagt selja Challenger- vél sína og kaupa Gulfstream G550, sem pykir það alfínasta í bransanum og með flugdrægi nánast hvert á land sem er... Umhverfis Arnarhól heyrist þvi nú fleygt að köldu andi milli þeirra Georgs Lárusson- ar, forstjóra Landhelgis- gæslunnar, og Björns Bjarnasonar, dómsmálaráð- herra, jafnvel svo að Georg þurfi að fara að horfa í kringum sig. Georg fór fram fyrir jólin með áætlun um það hvernig Gæslan gæti tekið yfir öryggishlutverk á hafinu umhverfis landið, enda þá þegar ljóst að breytingar yrðu á verkaskiptingu í öryggis- og varnasam- starfi íslands og Bandaríkj- anna. Ráð- herrann mun hafa tekið því þunglega að embættismað- urinn tjáði sig svo um stefnumótun, sem hlyti að vera á pólitísku forræði. I liðinni viku frysti svo enn betur á milli Georgs og Björns þegar Thomas H. Collins, aðmíráll og yfirmað- ur bandarísku landnelgisgæsl- unnar, kom óvænt til landsins til fundar við Georg. Leynd átti að hvíla yfir fundinum, en hann spurðist út og telja menn í dómsmálaráðuneytinu að gæslumenn hafi lekið. Efni hans hefur ekki spurst út, en heimildir Blaðsins herma að >ar hafi m.a. verið rætt um íugsanlega leigu eða kaup á ijörgunarþyrlum að vestan... Fjölmiðlavaktin tók nýlega s a m a n skýrslu um dagskrá sjón- varpsstöðva og umfjöllun um hana í fjölmiðlum á fyrstu þrem- ur mánuðum ársins. Varla þarf að koma á óvart að Silvía Nótt tók aðra í nefið að þessu leyti og var þrefalt oftar minnst á hana en pann, sem kom næst á eftir, og var það þó enginn aukvisi, sjálf Birgitta Haukdal. Á Silvíu Nótt var minnst 190 sinnum á >essu tímabili, en 64 sinnum á lirgittu. Skammt henni á hæla com glæsilegasti útvörður ís- lenskrar lágmenningar, Egill Einarsson von Gilzenegger...

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.