blaðið - 27.04.2006, Síða 28
28 IFERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2006 blaöið
Ferðaðist um Suður-Ameríku í íimm mánuði
Jón Friðriksson segir upplifunina, fólkið ogmenninguna hverrar krónu virði ogsafnar núfyrir nœstferð.
Jón Friðriksson hefur farið
víða og í síðasta mánuði kom
hann heim eftir sannkallaða
ævintýraför til Suður-Amer-
íku. Ferðasagan er um margt
merkileg, enda full af óvæntum
uppákomum sem settu oft strik
í reikninginn og breyttu ferða-
plönum hans.
„Þetta var sannkölluð flökkuferð
og strax í upphafi ferðarinnar var
ég rændur. Það vildi þannig til að
ég var staddur í San Jose höfuðborg
Costa Rica og var einn á gangi að
kvöldlagi að leita mér að matsölu-
stað. Ég var nýkominn til landsins
og fyrir einhverja tilviljun var ég
með bæði krítarkortin á mér. Það
skiptir engum togum að þrír durgar
vinda sér að mér og ræna mig. Þeir
voru með hníf og því ekkert annað í
stöðunni en að afhenda peningana."
Þetta varð til þess að Jón þurfti
að bíða í nokkurn tíma eftir að fá
ný kort afhent og hafði það áhrif á
ferðatilhögun hans. Þess má geta að
Jón hefur undanfarin 12 ár verið bú-
settur í Danmörku og kreditkortið
er því danskt. Eftir því þurfti hann
að bíða í heilar sex vikur.
„Ég byrjaði því ferðina peninga-
laus í Costa Rica en eftir vikudvöl
þar fékk ég íslenskt kreditkort sent
og notaði seinni vikuna í landinu til
þess að ferðast um og kynnast landi
og þjóð. Þetta var á regntímabilinu
og því rigndi alltaf á ákveðnum
tíma dags. Þegar dvölinni á Costa
Rica lauk fór ég til Kúbu og var þar
í 10 daga.“ Jón dvaldi m.a. í höfuð-
borginni Havana og í smábænum
Trinidad sem er nálægt Karabíska
hafinu. „Ég kynntist fólki á Kúbu
og bjó hjá fjölskyldu sem bauð upp
á heimagistingu en það kom mér á
óvart hvað allt er dýrt á Kúbu.“
Stoppaður á flugveli-
inum í Ekvador
Hrakningar Jóns voru ekki á enda
því á flugvellinum í Ekvador var
honum snúið úr landi. Ástæðan
var að meðan á ferðinni stóð höfðu
reglur um vegabréfsáritun til lands-
Thai Airways ÚTBALA
Phuket - Hótel Karona resort og spa ****
12 nætur m/morgunmat
Frá Kaupmannahöfn
Verö frá ISK 57.000,-
www.Ferd.is ferc
Nánari upplýsingar í síma: 846 2510 út í heim með
Fermingartilboó
Kynnum nýjar gerðir af rúmum með 20% kynningarafslætti
m
Rafstillanleg rúm 120x200sm
með svæðaskiptri pokafjaðradýnu
Réttverðkr. 118.000.
Tilboðsverð kr. 94.400.-
Hanson rúm með fjaðrandi rúmbotni,
svæðaskiptri pokafjaðradýnu og lúxus
yfirdýnu með hrosshárum
(án höfðagafls).120x200.
Verðkr. 110.600.
Tilboðsverð kr. 88.480.-
Opið:
virka daga 11-18 • laugardaga 11-16.
rumco
Langholfsvegi 111,104 Rvk.
Sími 568 7900
Jón við Iguazu fossana sem eru stæstu fossar í heimi og eru á landamærum Brasilíu og Argentínu.
ins breyst og þetta varð til þess að
Jón dvaldi fjóra daga í Panama á
meðan hann beið eftir vegabréfs-
áritun. Til að bæta gráu ofan á svart
varð Jón að leggjast inn á spítala á
meðan hann beið í Panama vegna
bakteríusýkingar sem hann fékk.
„Vesenið með vegabréfsáritunina
varð til þess að ég þurfti að kaupa
mér nýjan flugmiða með tilheyr-
andi aukaútgjöldum." Jón dvaldi
síðan í Ekvador í tvo mánuði, bjó þar
hjá fjölskyldu og stundaði spænsku-
nám. Þar náði hann að slappa af og
jafna sig eftir veikindin.Eftir dvöl-
ina í Ekvador var ferðinni heitið til
Chile, Argentínu og Brasilíu. í Arg-
entínu dvaldi ég á nokkrum stöðum
m.a. í bænum E1 Calafate sem er lít-
ill bær syðst í landinu. í Chile fór ég
í fimm daga gönguferð um Torres
Del Paine þjóðgarðinn sem var mjög
skemmtileg og stendur upp úr í
minningunni." Jón segir að landslag
syðsta hluta Suður-Ameríku sé svo-
lítið eins og stækkuð útgáfa af lands-
laginu á íslandi með fjöllum, trjám
ogjöklum."
Kynntist kærustunni í Argentínu
Jón fékk sem betur fer að kynnast
öðru en hrakförum í ferð sinni og í
Argentínu gripu örlögin í taumana
þegar hann kynntist hinni skosku
Kathleen, sem er nú kærasta hans.
„Við kynntumst þar sem við vorum
saman í rútuferð til El-Calafate. Það
kom í ljós að við vorum bæði að fara
að skoða sömu staðina þ.á.m. þjóð-
garðin í Torres Del Pine.“ Jón segist
hafa kunnað vel við sig í Argentínu
og segir Buenos Aires mjög vestræna
borg og fólkið gestrisið.
Það má segja að Jón hafi nýtt sér
öll þau tækifæri sem hann fékk í ferð-
inni en í Ríó fór hann á tónleika með
Rolling Stones á Copacabana strönd-
inni en tónleikagestir voru ein og
hálf milljón. Þá tók Jón þátt í hinni
árlegu kjötkveðjuhátíðinni í Ríó.
Er eitthvað sem þú hefur lcert í
ferðinni?
„Það er mikilvægt að vera á varð-
bergi en einnig að vera ekki of
skelkaður þannig að maður verður
að finna eitthvað millistig þarna á
milli.“
Jón segir að ferðirnar sjálfar hafi
kostað um 180 þúsund krónur allt
í allt en hann segist aldrei horfa í
peninginn því upplifunin, menn-
ingin og fólkið sem hann kynntist
sé hverrar krónu virði.
Ekki hættur að ferðast
Þetta var önnur ferð Jóns til Suður-
Ameríku en árið 2002 fór hann á
Inkaslóðir í Perú og í sömu ferð
heimsókti hann Galapagos eyjar
sem hann segir að allir ættu að heim-
sækja vegna þeirra gríðarlegu nátt-
úrufegurðar sem eyjan hefur upp á
að bjóða.
Jón er nú kominn til íslands og
vinnur fyrir sér á hótel Reynihlíð í
Mývatnssveit til að eiga fyrir næstu
ferð en hann segist ekki vera hættur
að ferðast. „Það er alltaf gott að
koma heim en þegar ég er búinn
að vera hér í einhvern tíma grípur
mig löngun í fleiri ferðalög og nú
er hugmyndin að fara í ferð til Afr-
íku og Asíu og halda áfram að skoða
heiminn,“ segir hinn víðförli Jón
Friðriksson.
hugrun@bladid.net