blaðið - 28.04.2006, Page 2
2 I FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2006 blaöiö
'mát:
blaðite
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Lionsklúbbur hlýtur
styrk til Kúbuferðar
Bæjarfulltrúi á Álftanesi hefur spurst fyrir um styrk sem bæjarstjórinn
veitti Lionsklúbbnum. Farið var til Kúbu og bæjarstjórinn fór með.
Bæjarstjórinn á Álftanesi samdi
við Lionsklúbb Álftaness um að
vinna verkefni fyrir bæjarfélagið
og fékk klúbburinn að launum 800
þúsund krónur sem nýttar voru til
utanlandsferðar til Kúbu. Bæjarstjór-
inn, Guðmundur Gunnarsson Sjálf-
stæðisflokki, er meðlimur í Lions-
klúbbnum og fór hann með í ferðina.
Á bæjarstjórnarfundi á Álftanesi
síðastliðinn þriðjudag spurðist Krist-
ján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi
fyrir um þetta mál. Bæjarstjórinn
hyggst svara fyrirspurnum Kristjáns
á næsta bæjarráðsfnndi.
Á bæjarstjórarfundinum létu sjálf-
stæðismenn f bæjarstjórn bóka, að
þau verkefni sem bæjarstjórinn hafi
samið um við Lionsklúbbinn hafi
verið unnin í samræmi við fjárhags-
áætlanir bæjarins. „Undantekning-
arlaust eru verkefnatengdir styrkir
unnir fyrir sanngjarna upphæð,
báðum aðilum til hagsbóta. Hvernig
einstök félög ráðstafa beinum
styrkjum eða verkefnatengdum
styrkjum er ekki á færi bæjarstjórnar
að gefa upp,“ segir í bókuninni. Verk-
efnin sem Lionsklúbburinn tók að
sér snérust um að leggja túnþökur í
grennd við grunnskóla bæjarins og
rífa niður girðingar í bænum.
Lágkúra
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri
segir það rangt að bærinn hafi verið
að styrkja klúbbinn sérstaklega til
Kúbuferðar. „Það hefur tíðkast hér
í áratugi að félögin í sveitarfélaginu
eins og Lions, kvenfélagið og fleiri
hafi tekið að sér einhver verkefni
fyrir bæinn og fengið greitt fyrir. Það
var f þeim anda sem þetta var.“ Guð-
mundur segir að fyrirspurn Krist-
jáns um málið sé lágkúruleg og að
hún skýrist af því að stutt sé til kosn-
inga. Hann segist munu svara bæj-
arfulltrúanum beinskeytt á næsta
bæjarráðsfundi.
„Ásakanir Kristjáns beinast að mér
en ég er félagi í Lionsklúbbnum frá
upphafi. Og hann vill meina að ég
hafi verið að semja við mína félaga
um styrk til Kúbufarar.“ Kristján
segir að í október hafi hann sem bæj-
arstjóri samið við Lionsklúbbinn um
að leggja þökur og var samningurinn
gerður með aðstoð tæknimanns hjá
bænum. Einnig var klúbburinn feng-
inn til þess að rífa niður gamlar girð-
ingar í bænum og var sá samningur
af svipuðum toga. „Þetta var gert
með gagnkvæman hag beggja í huga.
Bærinn fékk ákveðin verkefni unnin
fyrir sig og klúbburinn fékk í staðinn
einhverja aura.“
Hagkvæmir samningar
Guðmundur segir að ýjað hafi verið
að því að Lionsklúbbnum sé ekki
stætt á því að fá greitt fyrir svona
verkefni og nýta sfðan peninginn í
þágu klúbbfélaga í stað þess að veita
þeim til líknarmála. Það segir hann
að sé af og frá. „Það er algjörlega
viðurkennt af Lionshreyfingunni
að félagar geta haft það sem kallað
er félagssjóður. Síðan þegar farið er
í almennar fjáraflanir þá fara þeir
peningar í verkefnasjóð sem notaður
er til þess að styrkja líknarmál af
ýmsum toga. Þessir styrkir voru ein-
faldlega greiddir til klúbbsins og þar
fóru þeir í félagssjóðinn."
Styrkurinn sem um ræðir var
að sögn Guðmundar 800 þúsund
krónur. Aðspurður hvort hann hafi
sjálfur farið í ferðina segir hann: „Ég
fór í þessa ferð enda lagði ég þökur
og reif niður girðingar eins og aðrir
klúbbfélagar. Eg ber engan kinnroða
vegna þess. Þetta voru ríflega þrjá-
tíu hjón sem fóru í ferðina þannig
að þessir peningar sem frá bænum
komu voru aðeins lítill hluti af ferða-
kostnaðinum,“ segir Guðmundur
Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi.
Úrvalsvísital-
an lækkar
Orvalsvísitalan lækkaði um 2,61%
í Kauphöllinni í gær eftir að hafa
hækkað um 4,58 prósentustig frá
því á mánudaginn. Mest lækkuðu
bréf Dagsbrúnar hf. um 5,84% og þá
lækkuð bréf FL Group um 4,41%.
Mest hækkuðu bréf Flögu um
3,94% og Vinnslustöðvarinnar hf.
um 1,19%.
Heildarviðskipti með hlutabréf
námu 14 milljörðum í gær og þar af
6,4 milljarðar með bréf í FL Group.
Viðræður um
sameiningu
sparisjóða
Stjórnir Sparisjóðs vélstjóra (SVP)
og Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH)
ákváðu í gærmorgun að veita stjórn-
arformönnum sínum umboð til að
hefja viðræður um hugsanlega sam-
einingu sparisjóðanna. Þetta kemur
fram í tilkynningu sem sparisjóð-
irnir sendu frá sér í gær.
Ákveðið hefur verið að formenn
sparisjóðanna komi á fót samruna-
nefnd sem skipuð verði tveimur full-
trúum frá hvorum aðila. Þá er gert
ráð fyrir því að SVP og SPH haldi
nöfnum sínum óbreyttum og að af-
greiðslustöðum muni ekki fækka í
kjölfar sameiningar.
__ p _ m 0 m uluOIO/jlcinuí nUy
Arfar þjoðararfsins
Sýning á myndlistarverkum barna var opnuð í Þjóðminjasafninu í gær og af þvi tilefni komu listamennirnir f safnið og sungu
Krummi krunkar úti fyrir gesti og gangandi. Öll fjögurra ára börn f leikskólum Vesturbæjar geröu myndir af menningararfinum og
starfsemi Þjóöminjasafnsins, en síðan var þeim raðað saman i stóra mósaíkmynd. Hún verður til sýnis í Þjóðminjasafninu fram til
12. maf.
£ Heiöskirt . Léttskýjað Jfc. SKýJaö Ahkýjaö^-* Rlgning, litHsháttar'^J Rignind^^Súld — Snjókoma^2_ siyddaSnjöél
Skúr
Reuters
Særður eftir
sjálfsmorðsárás
Irösk kona sinnir særðum syni
sínum á sjúkrahúsi í bænum Baquba
í írak í gær. Drengurinn er einn
þeirra sem særðust í sjálfsmorðsárás
í bænum á miðvikudagskvöld.
Tilræðismaðurinn sprengdi sjálfan
sig í loft upp á veitingastað. Auk
hans týndu þrír lífi í árásinni, þar
af tvö börn.
ik/#'
Algarve 18
Amsterdam 10
Barcelona 21
Berlín 13
Chicago 08
Dublin 12
Frankfurt 14
Glasgow 12
Hamborg 09
Helsinki 11
Kaupmannahöfn 09
London 13
Madrid 20
Mallorka 20
Montreal 02
New York 09
Orlando 19
Osló 06
París 14
Stokkhólmur 09
Vín 15
Þórshöfn 07
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
FRAMURSKARANDI
HASKOLI
VIÐSKIPTAFRÆÐI
TÖLVUNARFRÆÐI
TÆKNIFRÆÐI
VERKFRÆÐI
IÐNFRÆÐI
LÖGFRÆÐI
STÆRÐFRÆÐI
ÍÞRÓTTAFRÆÐI
KENNSLUFRÆÐI
LÝÐHEILSUFRÆÐI
FRUMGREINASVIÐ
Umsoknarfrestur
rennur út 29. maí
Háskólinn i Reykjavik byður metnaðarfullt og
spennandi nám með áherslu á hagnýt verkefni
og sterk tengsl við atvinnulífið.
Hringdu og fáðu sent upplysingaefni eða bokaðu
tíma hjá námsráðgjafa í síma 599 6200.
Kíktu á www.ru.is
HÁSKÓLINN í REYKJAVÍK
R E Y K ) A V I K.U N I V E R S I T V