blaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 6
61 FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2006 blaðiö
Methagnaður
Hagnaður KB-banka eftir skatta
á fyrstu þremur mánuðum var
i8,8 milljarðar króna samkvæmt
3 mánaða uppgjöri bankans sem
birtvarí gær.
Þetta er mesti hagnaður á
einum ársfjórðungi frá upphafi.
Fyrir sama tímabil í fyrra nam
hagnaður bankans eftir skatta n
milljörðum og hefur því aukist
um tæpa níu milljarða milli ára.
I uppgjörinu kemur einnig
fram að rekstrartekjur bankans
á tímabilinu hafi numið 35,5
milljörðum króna og aukist um
tæp 60% frá fyrra ári. Á sama
tíma var rekstrarkostnaður 12,6
milljarðar króna og jókst um tæp
80%.
Heildareignir bankans voru
rúmir þrjú þúsund milljarðar
króna í loíc mars
Reuters
HM-kokkteillinn klár
Þjóðverjar eru í óða önn að Ijúka undirbúningi fyrir HM í knattspyrnu sem hefst i
júní. Að sið Þjóðverja voru það verkfræðingar sem sáu um hönnum HM-kokkteilsins. I
drykknum er gulum og rauðum safa blandað við vodka með svörtu litarefni þannig að
litasamsetningin verður samskonar og í þýska fánanum. Á myndinni sést Philipp Beyer
einn höfunda hins görótta drykks blanda hann. Hann verður seldur víðsvegar um Þýska-
land meðan á keppninni stendur.
Kanaútvarpiö
þagnar í maílok
Kanaútvarpið sem hljómað hefur
hér á landi í áratugi mun hverfa úr
loftinu innan tíðar. Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli hefur gefið út
áætlun um samdrátt i þjónustu og
lokun þjónustustofnana i samræmi
við fækkun varnarliðsmanna sem
hefjast mun í maíbyrjun. f áætlun-
inni er gert ráð fyrir að samdráttur-
inn hefjist þann 1. maí með lokun
gleraugnaverslunarinnar á svæðinu
og að honum ljúki 28. september nk.
með lokun pósthússins.
f tilkynningu frá upplýsingaskrif-
stofu varnarliðsins er greint frá
hverju verði lokað og hvenær það sé
fyrirhugað. Sem dæmi má nefna að
þann 12. mai verður kaffihúsi Kaffi-
társ lokað, 31. maí verður útsend-
ingum útvarps á miðbylgju hætt og
FM sendingum verður hætt 15. júlí.
Myndbandaleigunni verður lokað í
júnílok, leikskólanum hálfum mán-
uði síðar og svo mætti lengi telja.
f áætluninni er ekki gert ráð fyrir
hópflutningum varnarliðsmanna
og fjölskyldna þeirra, enda ræðst
flutningur hvers og eins af skipan
í starf annarsstaðar. Samsvarandi
áætlun varðandi breytingar á eigin-
legri starfsemi varnarliðsins liggur
ekki fyrir en hún mun verða kynnt
við fyrsta tækifæri.
Fjölskyldudagur úti í Gróttu
Skólaskrifstofa Seltjarnarness og
Slysavarnardeildin Varðan standa
fyrir fjölskyldudegi í Gróttu sunnu-
daginn 30. apríl, en þetta er í fimmta
sinn sem dagurinn er haldinn hátíð-
legur með þessum hætti. Hægt er
að komast fótgangandi út í eyjuna á
fjörunni frá kl. 12.00 - 15.00.
Á Gróttudaginn gefst tækifæri til
að njóta einstakrar náttúrufegurðar,
rannsaka lífríkið í fjörunni og fara
upp í vitann. Slysavarnardeildin
Varðan mun bjóða kaffi og vöfflur
til sölu í Fræðasetrinu.
Um er að ræða útboð sem náði
yfir eldsneytiskaup og þjónustu á
yfir eitt þúsund bifreiðum í eigu rík-
isins. Samninginn hrepptu á sínum
tíma Olíufélagið og Skeljungur og
var hann framlengdur af hálfu Rík-
iskaupa annað árið í röð án útboðs
um síðustu mánaðamót. Sú endur-
nýjun er í samræmi við ákvæði í
samningnum sem kveður á um að
hægt sé að framlengja tvisvar um
eitt ár í senn án sérstaks útboðs.
í byrjun aprilmánaðar óskaði
Atlantsolía eftir því að fá aðgang
að upprunalegu útboðsgögnum
en þeirri beiðni var neitað af hálfu
Ríkiskaupa. í svari stofnunarinnar
kemur fram að óheimilt sé að veita
upplýsingar af þessu tagi þar sem
þær gætu m.a. varðað mikilvæga
viðskiptahagsmuni.
Vilja nýtt útboð
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri
Atlantsolíu, segir það alls ekki í sam-
ræmi við hagsmuni almennings
að þessum upplýsingum sé haldið
leyndum. Ómögulegt sé að vita
hvaða ávinning Ríkiskaup hafi af
því að framlengja samninginn í stað
þess að efna til nýs útboðs.
Þá segir Hugi það einkennilegt að
ríkið skuli halda áfram viðskiptum
við fyrirtæki sem stundað hafa ólög-
legt samráð gegn því. „Það hefði
verið eðlilegra að okkar mati að
halda nýtt útboð. Þessi fyrirtæki
stunduðu ólögmætt verðsamráð
gegn Ríkiskaupum á sínum tíma
og ríkið undirbýr nú málshöfðun
á hendur þeim. t samningnum er
ákvæði til uppsagnar og ef ólögmætt
samráð er ekki tilefni til uppsagnar
þá veit ég ekki hvað.“
Nánari upplýsingar í síma 411 8000 og á www.reykjavik.is/fs
Úlfarsárdalur - nýtthverfi í mótun
Úlfarsárdalur
Lóðir fyrir 10 einbýlishús - útboð á byggingarrétti
Úlfarsárdalur er nýtt fbúðahverfi sunnan undir Úlfarsfelli I Reykjavlk. Skipulag þess gerir ráð fyrir þéttri
byggð, þar sem blandast saman Ibúðabyggð og atvinnustarfsemi, sem þrífst I nánd við Ibúðahverfi,
og gefur möguleika á vistvænni byggð sem nýtir til fullnustu náttúrulega kosti svæðisins.
Fyrsti hluti fyrirhugaðs hverfis hefur verið deiliskipulagður og verður I honum byggð með liðlega 900
(búðum auk möguleika á nokkru atvinnuhúsnæði. Ennfremur verða þar grunnskóli, leikskóli og önnur
þjónusta, en megin verslunarmiðstöð hverfisins alls verður við Leirtjörn. Byggðin er umlukin vinsælum
útivistarsvæðum. í suðri er Úlfarsá og handan hennar Grafarholtshverfið, I austri teygir Úlfarsárdalur
sig I átt að Hafravatni, I vestri er útsýni til sjávar og I norðri er Úlfarsfell. Gert er ráð fyrir að lóðir I fyrsta
áfanga verði byggingarhæfar I nóvember 2006.
Reykjavíkurborg auglýsir eftir kauptilboðum í byggingarrétt
fyrir 10 einbýlishús við Gefjunarbrunn og Iðunnarbrunn.
Útboðsskilmálar, tilboðseyðublöð, deiliskipulagsskilmálar og almennir lóðaskilmálar verða afhent I
þjónustuveri Framkvæmdasviðs I Skúlatúni 2. Þessi gögn fást endurgjaldslaust á geisladiskum eða
útprentuð gegn 2.500 króna gjaldi. Þau er einnig að finna á vefsvæði Framkvæmdasviðs,
www.reykjavik.is/fs, undir málaflokknum lóðir. Nánari upplýsingar eru veittar í slma 411 8000.
Brýnt er fyrir bjóðendum að kynna sér vel alla þessa skilmála.
Einstaklingar (ekki lögaðilar) geta gert kauptilboð I framangreindan byggingarrétt. Tilboðum skal skila
I lokuðum umslögum, merktum „Úlfarsárdalur - kauptilboð", til Framkvæmdasviðs fyrir kl. 16.15
fimmtudaginn 4. maí nk. Tilboðum verður veitt móttaka I þjónustuveri Framkvæmdasviðs gegn greiðslu
tilboðstryggingar, 250.000 kr. vegna hvers bjóðanda. Tilboðin verða opnuð 4. mal kl. 17:001 Skúlatúni 2,
5. hæð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Munið að skila kauptilboðum fyrir kl. 16.15
fimmtudaginn 4. maí nk.
L_________________________________________/
Forsvarsmenn Atlantsolíu telja að
útboðsreglur Ríkiskaupa þjóni ekki
hagsmunum almennings. Fyrir-
tækið hefur nú kært þá ákvörðun
Ríkiskaupa að birta ekki upplýs-
ingar um niðurstöðu útboðs vegna
eldsneytiskaupa ríkisins. Markaðs-
stjóri Átlantsolíu segir einkennilegt
að ríkið vilji versla við sömu aðila
og stunduðu ólögmætt verðsamráð
gegn því.
Tvisvar framlengdur
Atlantsolía hefur kært þá ákvörðun
Ríkiskaupa til Úrskurðarnefndar
upplýsingamála um að synja fyrir-
tækinu að fá upplýsingar um niður-
stöður útboðs sem haldið var í árs-
byrjun 2003.
Blaíiö/FMi
Atlantsolía telur eðlilegra að Ríkiskaup
efni til nýs útboðs vegna eldsneytiskaupa
ríkisfyrirtækja.
Telja ólögmætt verðsamráð
vera nægt tilefni til uppsagnar