blaðið - 28.04.2006, Page 14
blaðið
' .....................................
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: ÁsgeirSverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
HRYLLINGUR í AFRÍKU
Samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna er meðalævilengd
manna hvergi styttri en í tíu ríkjum Afríku. Alnæmisplágan veldur
ólýsanlegum hörmungum í álfunni, þurrkar út heilu aldurshópana
og skekur sjálfa samfélagsgerðina. Spilling, óstjórn og brjálsemislegar áætl-
anir réttnefndra vitfirringa sem hafist hafa til valda í nokkrum þessara ríkja
kalla yfirgengilegar þjáningar yfir milljónaþjóðir.
Ástandið er trúlega hvergi verra en í Zimbabwe í sunnanverðri Afríku. Þar
hefur valdafíkillinn Robert Mugabe öll ráð um 13 milljóna manna í höndum
sér og hikar ekki við að beita svikum og ofbeldi. Er Mugabe komst til valda
hét hann því að fá allslausum íbúunum jarðir. Það gerði hann með því að
hrekja hvíta minnihlutann í landinu af jörðum sínum. Afleiðingin varð sú
matvælaframleiðslan hrundi. Allt hagkerfi landsins byggist á landbúnaði.
Matvæla- óg eldsneytisskortur er viðvarandi. Verðbólgan er stjórnlaus.
Hundruð þúsunda manna, þeir sem mesta menntun og þekkingu höfðu,
hafa flúið landið. Mugabe vænir Vesturlönd og einkum Breta um efnahags-
lega hryðjuverkastarfsemi í landinu til að hefna fyrir þjóðnýtingu jarðanna.
Þess á milli kennir Mugabe þurrki um hörmungar þjóðarinnar. Gagnrýni
alþjóðasamfélagsins lætur hann sem vind um eyru þjóta.
Nú er svo komið að lífslíkur fólks eru hvergi verri í heimi hér en í
Zimbabwe. Meðalævilengd kvenna í landinu er nú 34 ár. Karlar ná að með-
altali 37 ára aldri. Hvað konurnar varðar er meðalævilengdin nú tveimur
árum styttri en hún var fyrir 12 mánuðum.
Þessi hryllingur er ekki bundinn við Zimbabwe. I Swazilandi og Sierra
Leone nær fólk að meðaltali ekki 40 ára aldri.
Þetta eru lygilegar upplýsingar. Alnæmisplágan er að leggja heilu samfé-
lögin í rúst í löndum Afríku. En sú skýring nægir engan veginn í tilfelli Zimb-
abwe undir stjórn Roberts Mugabe því þar hefur alnæmistilfellum heldur
farið fækkandi. Fyrir 20 árum eða svo töldust lífkjörin í Zimbabwe góð á afr-
ískan mælikvarða. Efnahagur landsins er talinn hafa skroppið saman um
heil 40% á síðustu sjö árum. Harðstjórinn og alnæmisplágan renna saman í
réttnefndri þjóðarmartröð.
Heldur veikluleg gagnrýni Vesturlandaþjóða fær engu breytt um kjör íbúa
Zimbabwe. Vesturlönd eiga aukinheldur takmarkaðra hagsmuna að gæta í
landinu. Stríð í nafni frelsisins munu útlendir menn seint heyja þar.
Nú berast af því fréttir að stjórnvöld í Zimbabwe hyggist söðla um og fá
hvítum bændum á ný jarðir sínar. Orð Mugabes taka fáir alvarlega; horft
verður til þess hvort hann játar uppgjöf sína og léttir hryllingnum af
þjóðinni.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsím i: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: (slandspóstur.
• '4;
Nuddpottar 4 til 6 manna
verð aðeins 398,700,-
Erum að taka niður pantanir
núna í síma 544-2290
BOHEMIA
vöruhúa
Askalind 2.201 Kópavogur
Auglýsingar
i
14 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2006 blaöið
VfNSÆLG 0<! FkJflLSLVlVPU PR.cST/q'RNiR.
SEGJAST VFRA TíL í w H/ETTA /H> VERfl K\Et>
TK.Út>SlÆTi í HjómVjGSVUM ET >EiR TÁ Af
GTFA SflMAW RomMA.
Að mála sig út í hom
Björgvin G. Sigurðsson þingmaður
Samfylkingarinnar verður seint
sakaður um að liggja á skoðunum
sínum. Hann er óþreytandi tals-
maður flokks síns bæði í ræðu og
riti og er jafnan óspar á stóryrði í
umfjöllun sinni um menn og mál-
efni. Segja má að hann hafi skipað
sér í fremstu röð þeirra vösku Sam-
fylkingarmanna á þingi, sem alfarið
hafa valið stóryrðastjórnmál fram
yfir samræðustjórnmál. En Björg-
vin hefur hins vegar á undanförnum
árum líka verið valinn til margvís-
legra trúnaðarstarfa á vegum Sam-
fylkingarinnar innan þings og utan
og trúlega eru fáir sem þekkja jafn
vel til innviða flokksins og hann.
í því ljósi er athyglisvert að skoða
stjórnmálaskýringar Björgvins í
dagblöðum undanfarna daga, ekki
síst út frá því sjónarmiði hver staða
Samfylkingarinnar gæti orðið eftir
næstu alþingiskosningar. Ef eitt-
hvað er hægt að taka mark á þing-
manninum eru allir möguleikar á
samstarfi við aðra flokka útilokaðir
og hann dæmir í raun Samfylking-
una til fullkomins áhrifaleysis.
Höfuðandstæðingur-
inn og hækjurnar
I kringum síðustu helgi skrifaði
Björgvin tvær greinar í Morgun-
blaðið þar sem hann skilgreinir Sam-
fylkinguna sem mótvægi við Sjálf-
stæðisflokkinn - valkost til vinstri
eins og hann orðað það. Ljóst er af
greinunum að hann lítur á Sjálfstæð-
isflokkinn sem höfuðandstæðing
Samfylkingarinnar og kemur það í
sjálfu sér ekki á óvart í ljósi þess að
andstaðan við Sjálfstæðisflokkinn
virðist oftar en ekki vera það eina
sem sameinar Samfylkingarmenn
í einum flokki. Samstarf þessara
tveggja flokka getur því tæpast verið
kostur í stöðunni að mati Björgvins.
Að minnsta kosti ekki ef hann ætl-
ast til að einhver taki mark á orðum
hans.
I viðhorfsgrein hér í Blaðinu á
miðvikudaginn fá svo aðrir hugsan-
legir samstarfsflokkar Samfylking-
arinnar heldur kaldar kveðjur frá
þingmanninum. Að meginstefnu til
er greinin árás á Framsóknarflokk-
C)
v
Viðhori
Birgir Ármannsson
inn. Hann kallar flokkinn „hækju
thaldsins“, segir hann „rúinn öllum
pólitískum prinsíppum“, talar um
smánarbletti, skítverk og skömm
og dregur að lokum þá ályktun að
gamlir draumar sínir um samsteypu-
stjórn Framsóknarflokks og Sam-
fylkingar virðist sjálfkrafa orðnir að
engu. Það er helst að hann sjái ein-
hverja von í því að Samfylkingin nái
til sín einhverjum flóttamönnum úr
Framsóknarflokknum.
Eftir að hafa þannig afgreitt hug-
myndir um samstarf Samfylkingar
við Sjálfstæðisflokk eða Framsókn-
arflokk snýr Björgvin sér síðan að
Vinstri hreyfingunni - grænu fram-
boði. Inn á milli skammanna um
framsóknarmenn í áðurnefndri við-
horfsgrein er að finna sjö línur helg-
aðar þeim flokki. Samstarf við þá
telur hann „nokkuð fráleitan kost
í ljósi flestra hluta“. Það rökstyður
hann með afstöðu til inngöngu í ESB
og „ofstækis VG í stóriðjumálum og
ríkisrekstri á öllum sviðum“. Niður-
staða hans er að af hálfu VG „skorti
allt frjálslyndi til vitræns samstarfs“.
Þar höfum við það. Samstarf Sam-
fylkingar og Vinstri grænna er sam-
kvæmt þessu ekki mögulegt að mati
Björgvins - að minnsta kosti ekki á
vitrænum forsendum.
Dapurleg framtíðarsýn
Áf skrifum Björgvins G. Sigurðs-
sonar verður því ekki annað ráðið,
en að hann telji útilokað að Sam-
fylkingin geti átt samstarf við aðra
flokka um landsstjórnina, nema
hugsanlega Frjálslynda flokkinn.
Það hlýtur að teljast frekar dapurleg
framtíðarsýn fyrir stjórnmálaflokk,
sem er víðs fjarri þeim draumi að
geta náð meirihluta á þingi. Engin
ástæða er hins vegar til að gera lítið
úr þessu stöðumati þingmannsins,
sem hlýtur að byggja skrif sín á
reynslu og þekkingu á innviðum
Samfylkingarinnar og samstarfi
hennar við aðra flokka.
Höfundur er þingmaður Sjálfstœðis-
flokksins í Reykjavík
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Hið umdeilda blað DV gefur sig út
fyrir að vera málsvari Iftilmagnans
í þjóðfélaginu, hinna allra smæstu
sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér.
Áherslan er mjög á afkima samfélagsins og per-
sónulegar hörmungar, en sérstaklega hefur
verlð lagt upp úr því að fjalla um alls kyns þý
á mörkum og handan hins
löglega. Forsíðuupslættirnir
og myndskreytingarnar eru
svo þannig að varla er hægt
að láta blaðið liggja frammi
í siðuðu selskapi og ekki þar
sem börn ná til. Er DV enda komið niður í 32
síður. En áhyggjur blaðsins snúa ekki að þessu.
f leiðara DV skrifar Jakob Bjarnar um fjöl-
miðlafrumvarpið og upplýsir lesendur um að
forsendur þess séu „barnalegur hefndarhugur
Davíðs Oddssonar í garð Baugs". Já, var það?
Þessa sama Baugs og segist nánast ekkert eiga
í fjölmiðlum? Þar sem forstjórinn hefur sagst
vel geta fellt sig við 25% eignartakmörk?
Söngurinn á síðum Fréttablaðsins
er svipaður, nema þar er ekki beitt
sömu aðferð og Jakob ærlegur gerir,
því hann tjáir sig þó í leiðara þar sem engum
blandast hugur um að
verið er að setja fram
skoðun. ( Fréttablaðinu
má fremur greina línuna
á fréttasíðum blaðsins líkt
og gerðist átakaárið mikla
2004, þegar Baugsmiðl-
arnir lögðust á eitt í hinni
opinberu umræðu og höfðu að lokum Alþingi
undir. Það segir enda sína sögu að herforing-
inn Gunnar Smári Egilsson er snúinn heim
úr víkingi í Danaveldi til þess að stýra barátt-
unni enn og aftur.
Með þessum ábendingum er klipp-
ari ekki að halda því fram að nýja
fjölmiðlafrum-
varp Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, mennta-
málaráðherra, sé frábært.
Það er það ekki. Frumvarpið
ber þess merki að vera mála-
miðlunarsamsuða þar sem
grautað ersaman samkeppn-
issjónarmiðum, óljósum hugmyndum um rit-
stjórnarlegt sjálfstæði, en hinar upphaflegu
forsendur um dagskrárvald fjölmiðla nánast
látnar lönd og leið. Hvað kemur afþreyingar-
dagskrá Skjás 1 eða íþróttadagskrá Sýnar þvf
við? Hitt er svo annað mál, að miðað við tísk-
una í viðskiptalífinu verður fjölmiðlaeigendum
sjálfsagt (lófa lagið að fara í kringum lögin
með svonefndum afleiðusamningum og látið
bankana leppa fyrir sig.