blaðið - 28.04.2006, Side 22
22 I GÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2006 blaöiö
Mega barnshafandi konur eiga ketti?
Svokölluð bogfrymlasótt getur verið áhœttusöm fyrir vanfcerar konur, en hversu algengur er þessi sjúkdómur og
hverjar eru afleiðingar hans? Helga Finnsdóttir dýralœknir er sérfróð um kattasjúkdóma og afleiðingarþeirra.
.Bogfrymlasótt er venjulegast ein-
kennalaus sjúkdómur og ekki hættu-
legur heilbrigðum einstaklingum
sem mynda mótefni á í - 2 vikum.
Hjá varnarskertum einstaklingum
og þunguðum konum, getur hún
hins vegar verið hættulegur sjúk-
dómur og getur í verstu tilfellum
valdið alvarlegum skaða á fóstri
og jafnvel fósturláti," segir Helga.
,Tíðni smits er misjafnt eftir löndum
og skortur á hreinlæti, ásamt neyslu
á hráu eða lítt elduðu kjöti, á stóran
þátt í sýkingum manna. Sjúkdóms-
valdurinn er frumdýrið bogfrymill
sem fjölgar sér inni í kyrndum
frumum allra blóðheitra dýra og
fugla.“
Hvaðan kemur þessi sjúkdómur
og hvernig hegðar hann sér?
„Lífsferill bogfrymilsins var
mönnum lengi mikil ráðgáta og það
eru ekki ýkja margir áratugir síðan
það kom í ljós hvernig flóknum lífs-
Sama lága verðið
Allar gæludýravörur
30 % - 50 % AFSLÁTTUR
Full búð af nýjum vörum
TOKYO
gæludýravörur HjaUahraun 4 Hafnarfirði s.565-8444
Fyrir hundinn
þinn
Grensásvegi s:5686668 -
Vorið er komið og fuglamir fara
að hugsa til hreiðurgerðar.
Ano/
Astarfuglar með AJ/C afsl.
aðeins þessa helgi
Þaö er ástæðulaust að lóga kisu þó að kona verði barnshafandi.
ferli hans er háttað. Árið 1970 fund-
ust þolhjúpaðar okfrumur, eða egg, í
kattasaur sem staðfesti að kettir eru
einu endahýslar sníkjudýrsins.“
Er algent að kettir veikist af
bogfrymlasótt?
„Nei, kettir smitast aðeins einu
sinni á lífsleiðinni af bogfrymlasótt,
en veikjast hins vegar afar sjaldan
og eru því heilbrigðir smitberar.
Þremur til ellefu dögum eftir að
kisa smitast, byrja okfrumur að
skiljast út með saurnum og gera það
næstu 2 - 3 vikurnar eða á meðan
ónæmiskerfi kattarins er að virkjast.
Á þeim tíma skiljast út tugmilljónir
eggja.en síðan ekki meir. Erlendar
rannsóknir sýna, að á hverjum tíma
skilja 1 - 2% af köttum út þolhjúp-
aðar okfrumur með saur sem geta
lifað í umhverfinu í mánuði til ár
við kjöraðstæður en eins og allir vita
er það nær ómögulegt fyrir fólk að
varast kattasaur í umhverfinu.því
kettir hafa þann háttinn á að moka
yfir saurinn og lykt og litur og útlit
hans breytist á skömmum tíma í
rökum jarðvegi.“
Margar smitleiðir
Herjar bogfrymlasótt mismikið á
ketti?
„Já, það má segja það. Kettir sem að
eru inni að staðaldri og fá aldrei
tækifæri til að veiða eða komast í
mengað umhverfi smitast nánast
aldrei. En sé um útikött að ræða
minnkar hættan á smiti í fólk veru-
lega sé kassinn hreinsaður daglega,
því eggin verða ekki smithæf fyrr en
2 - 3 dögum eftir að þau ganga niður
af kettinum. Undir venjulegum
kringumstæðum er helsta smitleið
bogfrymla í menn með menguðum
matvælum eða drykkjarvatni, sýktu
kjöti og um fylgju til fósturs, en
talið er að bogfrymlasótt sé afar fá-
tíð á íslandi. Engin ástæða er til þess
að þunguð kona sem á kött þurfi
að losa sig við kisu. En það er mik-
ilvægt að fara eftir varúðarreglum
í hvívetna. Hafi konan hins vegar
áhyggjur af því hvort hún hafi smit-
ast af bogfrymlasótt eða ekki, er rétt-
ast að fara fram á mótefnamælingu
í næstu mæðraskoðun.,“ segir Helga
að lokum.
Mikilvægt er fyrir alla og sérstak-
lega fólki í áhættuhópum, þ.e.
ófrískar konur og sjúklinga með
ónæmisbælandi sjúkdóma, að
gefa forvörnum verðugan gaum.
• Gegnumsteikja allt kjöt (65°C)
og smakka aldrei á hráu kjöti.
• Þvo vel hendur og öll áhöld
sem hafa komist í snertingu
við hrátt eða lítið matreitt kjöt.
Ekki snerta slímhúð (augu,
nef, munn) með óþvegnum
höndum.
• Þvo allt grænmeti og ávexti
fyrir neyslu.
• Fóðra ketti með þurrfóðri/
dósamat og láta ekki láta ein-
staklinga í áhættuhópi hreinsa
gamlan kattasaur úr sandkassa
kattarins, og að þeir þvoi sér
alltaf vel um hendur eftir að
hafa snert kött.
• Verameðhanskaviðgarðvinnu
(og snerta þá ekki slímhúðir
munns, augna eða nefs með
hönskunum),
• Hafa lok á sandkössum
barna og skipta um sand leiki
minnsti grunur á að köttur
hafi gert stykkin sín í sandkass-
ann. Kenna börnum jafnframt
að setja hvorki mold né sand í
munninn.
Meira um ketti og kattarsjúkdóma
og margskonar fróðleik má lesa á vef-
síðu Helgu: www.dyralaeknir.com
margret@bladid.net
Aðskilnaðarkvíði hunda
Fyllist hundurinn þinn angist í hvert sinn sem þú opnar útidyrnar?
þetta með því að fara oft að heiman.
Byrjaðu á stuttum skreppitúrum s.s.
farðuútenkomduafturinnnokkrum
mínútum síðar. Lengdu tímann sem
þú ert í burtu smátt og smátt og þar
með ætti hann að byrja að treysta
því að þú kemur alltaf aftur heim.
2. Láttu hann hafa eitthvað að
gera: Hundar þurfa að hafa ein-
hverja örvun heimafyrir. Þú getur
haldið honum virkum með því að
gefa honum skemmtileg leikföng
eða fá annan hund til að stytta
honum stundir. Það verður þó alltaf
að vera hundur sem er jafningi hans
en ekki einhver eldri og stærri eða
yngri og minni. Það myndi bara
skapa enn meiri vandræði.
3. Fáðu pössun: Hundurinn þinn
fær útrás fyrir félagsþörfina ef hann
fær að vera með einhverjum yfir dag-
inn. Erlendis er það mjög algengt
að fólk ráði til sin einstaklinga til
að fara út að ganga með hundana
eða gæta þeirra hluta úr degi. Þetta
þarf ekki að kosta mikið og sumir
eru meira að segja til í að passa
hundinn frítt. Til dæmis krakkar
eða eftirlaunaþegar sem hafa
gaman af því að fara út að ganga.
4. Lyfjagjöf: Við mannfólkið erum
ekki einu lífverurnar sem hafa tök á
því að taka lyf við hinum ýmsu óþæg-
indum. Dýralæknirinn þinn ætti að
geta skrifað út lyfseðil á róandi fyrir
hvutta, en það ætti þó alltaf að vera
hann, s.s. sérfræðingur, sem metur
hvort raunveruleg þörf er á lyfjagjöf.
Ef hundurinn þinn byrjar alltaf
að gelta þegar þú sýnir á þér far-
arsnið og sýnir önnur einkenni
streitu eins og að reyna að stinga
af; fyllast örvæntingu, pissa
innandyra og fleira, eru miklar
líkur á því að hann þjáist af
aðskilnaðarkvíða.
Hundar sem þjást af aðskilnaðar-
kvíða geta tekið upp á því að gelta
“út í bláinn”. Það þarf þó ekki und-
antekningalaust að vera aðskilnaðar-
kvíði sem fær hundinn til að láta í sér
heyra. Hundar gelta líka af öðrum
ástæðum, til dæmis til að vernda
heimili sitt; spjalla við aðra hunda,
af því þeim leiðist og á meðan þeir
eru að leika sér. En ef hvutti fyllist
angist í hvert sinn sem þú ætlar að
fara, þá er það efalítið aðskilnaðar-
kvíði sem þjakar dýrið.
Leiðir til að sigrast á
aðskilnaðarkvíða
Ef hundurinn þinn er haldinn að-
skilnaðarkvíða er sitthvað sem þú
getur gert, en eftirfarandi ráð hafa
gagnast mörgum hundaeigendum:
1. Hertu hann upp: Þú getur
hjálpað voffa litla að komast yfir
Komdu og spjallaðu við
annað dýraáhugaffólk á einu
æludýraspjalli landsins
m
Risastór gagnagrunnur um fugla, sjávarfiska,
kóralla, ferskvatnsfiska og gróður, hunda og ketti.