blaðið - 09.05.2006, Síða 2
2 I FRÉTTXR
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 blaðið
blaöió=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Yfirboð á vatnslitamynd eftir
Ásgrím endar í jeppaverði
Herdís til For-
varnarhúss
Herdís Storgaard hefur verið
ráðin yfirmaður svokallaðs For-
varnahúss sem Sjóvá er að setja
á laggirnar. Herdís hefur um
árabil starfað að slysavörnum
barna og nú síðast sem verk-
efnisstjóri hjá Árvekni innan
Lýðheilsustöðvar.
Forvarnarhúsið mun starfa
á sviði forvarna er snúa að m.a.
fjölskyldum og börnum.
Rólegt í Kaup-
höllinni
Úrvalsvísitalan féll um 0,72% í
Kauphöllinni í gær. Mest hækk-
uðu bréf Flögu um 3,02% og þá
bréf Actavis um 0,81. Mest lækk-
uðu bréf FL Group um 2,16% og
næst mest bréf Landsbankans
um 1,89%.
Alls námu viðskipti með hluta-
bréf rétt tæpum 2 milljörðum og
þar af 769 milljónir með bréf í
Áctavis.
Öræfajökull og Hornafjarðarfljót,
vatnslitamynd eftir Ásgrím Jónsson,
var seld á uppboði hjá Gallerí Fold á
sunnudag á 5,3 milljónir króna. Það
voru margir um hituna enda um
afar sérstakt verk að ræða. Svo fór
að lokum að mun hærra verð fékkst
fyrir myndina en reiknað var með.
„Þetta er alveg sérstakt verk,“ segir
Tryggvi Páll Friðriksson, listmuna-
sali en hann segir það afar sjaldgæft
að myndir á borð við þessa komi í
sölu. „Myndin er máluð 1912 og er
66 x 102 sentimetrar að stærð, en
flestar myndir eftir Ásgrím frá
tiessu tímabili eru í eigu Listasafns
slands," segir Tryggvi. Hann segir
að kaupandinn vilji ekki láta nafns
síns getið. Á uppboðinu höfðu
margir áhuga á myndinni að sögn
Tryggva, sem bætir við að það hafi
vissulega haft áhrif á verð myndar-
innar, sem fyrir uppboðið var metin
á 1,8 - 2 milljónir króna.
Fremstur á sínu sviði
„Þetta er mynd af Hornafjarðarfljóti
og Öræfajökli og á þeim tíma sem
myndin er máluð var Ásgrímur af
mörgum talinn fremsti vatnslitamál-
ari Norðurlanda og hann var klár-
lega í fremstu röð. Þessar myndir
Þetta vatnslitaverk eftir Ásgrím Jónsson þykir meðal þess besta sem málarinn afrekaði á sínum tíma.
fyrir að svona hátt verð hafi fengist
fyrir þessa tilteknu mynd þýði það
ekki að allar myndir eftir Ásgrím
séu á þessu verði. „Það er eins með
þetta eins og svo margt annað, að
verðið fer eftir framboði og eft-
sem hann málaði fyrir austan eru
taldar vera á meðal þess besta sem
hann gerði í vatnslitum og þær eru
nánast óafáanlegar í dag. Þetta er
því mikill hvalreki,“ segir Tryggvi
en tekur ennfremur fram, að þrátt
irspurn, en líka eftir gæðunum."
Tryggvi segir að þessi tiltekna mynd
sé nokkuð þekkt. „Ragnar í Smára
lét gera eftirprentanir eftir þessari
mynd á sínum tíma og þær eru til
nokkuð víða.“
Einföld og auðskiljanleg leiðakort
Útskriftarnemi í grafiskri hönnun
við Listaháskóla Islands hefur endur-
hannað kort og tímatöflu Strætó bs.
til að gera þau auðskiljanlegri fyrir
notendur. Hann segir erlenda ferða-
menn eiga í erfiðleikum með skilja
núverandi kort.
Er bér heitt?
Skrifstofur
1 Tölvurými
Ci mWnrMlíi
Fundasalir
Sumarhús
Fœranleg Jjpftjk œlikerfi
ÍS-hÚSÍð 566 6000
^ kœlivélalaaerinn
VELFERÐ UMHVERFI NYSKÖPUN
Erlendar fyrirmyndir
Hörður Lárusson, útskriftarnemi í
rafískri hönnun við Listaháskóla
slands, tók sig til og endurhann-
aði kort og tímatöflu Strætó bs.
sem lokaverkefni í námi sínu. Við
hönnun sína notaðist Hörður við er-
lendar fyrirmyndir þannig að kort-
unum svipar til korta í stórborgum
erlendis. Verkefnið var unnið í
samstarfi við Strætó bs. en ekki
liggur fyrir hvort fyrirtækið hygg-
ist nýta sér kortahönnun Harðar í
framtíðinni.
Að sögn Harðar var markmiðið
að einfalda þau kort sem nú eru
til staðar. Hann segir að upplýsing-
arnar sem þau gefa alltof flóknar og
alls ekki nógu hnitmiðaðar. „Núna
er hreinlega of mikið af upplýs-
ingum og þá sérstaklega á þessum
stærri kortum sem eru fyrir allt leið-
arkerfið. Eitt af því sem ég breytti
var að einfalda allt saman og ein-
blína meira á að gefa upplýsingar
bara fyrir hverja stöð fyrir sig.“
Hörður segir núverandi kort
einnig henta illa fyrir erlenda ferða-
menn. „Kortin í dag eru þannig úr
t HO-H
nnneti
“gggggi
A12
LHÍ ► Bíldshöfði
m n 5;
1; n v
v n v
M: 1; t) V
U: 17 M V
U: 17 V V
W I) M M
g
}»
2t
1»
P*
g
Uppíýtlngar I tlma 2700
for msTt IpforRuiion r»l! S4Q 7;
vrww öuvis
ttý'fefaráUfawn
0 assg
o
-f-
✓ ***tó«r *»«•**««
Leiðakort fyrir stoppistöðina við Listaháskóla íslands. Á kortinu má m.a. auðveldlega
sjá hversu langan tíma þaö tekur fyrir strætó aö komast á áfangastað. Þá sýnir kortið
hvar má skipta um vagna.
garði gerð að erlendur ferðamaður
ræður ekki við þau. Þau gera ráð
fyrir þvi að notandi þekki vel til
borgarinnar og allt er miðað út frá
því. Á minum kortum er auðveld-
ara að sjá hvenær strætó kemur og
hversu lengi hann er á áfangastað
svo dæmi sé tekið. Þau ættu að vera
skiljanlegri fyrir þá sem þekkja lítið
sem ekkert til Reykjavíkur."
/„Flugvöllinn
áfram í
Vatnsmýrinni,
fi
Ólafur F. Magnússon,
læknir og borgarfulltrúi
O' Heíóskírt^: LéttskýjaðjSilltrSkýjaö £ Alskyjað^ír-'
Rigning, Iftilshátta
ir^^Rigning^'Súld Sniókomaá^-. SiyddaÆi Snjóél feósSkúr
iiU/jjlr1
Algarve 21
Amsterdam 20
Barcelona 19
Berlín 21
Chicago 15
Dublin 12
Frankfurt 20
Glasgow 18
Hamborg 20
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 17
London 16
Madrid 22
Mallorka 21
Montreai 12
New York 15
Orlando 21
Osló 21
París 11
Stokkhólmur 21
Vín 18
Þórshöfn 09
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands