blaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006
FRÉTTIR I 11
Forseti írans býður Bandaríkja-
mönnum upp á „nýjar lausnir"
Gholam-Hossein Elham, talsmaður
klerkastjórnarinnar í Teheran, til-
kynnti í gær að Mahmoud Ahmad-
inijad, forseti írans, hafi skrifað Ge-
orge Bush, forseta Bandaríkjanna,
bréf þar sem hann býður upp á
„nýjar lausnir' á ótryggu ástandi í al-
þjóðamálum. Sendibréfið þykir vera
óvænt útspil í spennuþrungnum
samskiptum tveggja ríkja sem hafa
ekki átt í opinberu stjórnmálasam-
bandi í tæp þrjátíu ár.
Ekki er enn vitað hvað
felst í hinum „nýju lausnum“ Ahm-
adinijad en innihald bréfsins verður
gert opinbert eftir að Bush hefur
fengið það í hendur. Talsmaður
stjórnarinnar gaf ekki upp hvort
minnst sé á lausnir á deilunni um
kjarnorkuáform klerkastjórnar-
innar en stjórnmálaskýrendur telja
líklegt að svo sé.
Spennan í deilunni fer
stigvaxandi. í síðustu viku lögðu
Bandarísk stjórnvöld ályktun fyrir
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.
Ályktunin vísar í sjöundu grein
stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna
og verði hún samþykkt opnar það
dyrnar fyrir harðari aðgerðir gegn
klerkastjórninni, fallist hún ekki á
kröfur alþjóðasamfélagsins um að
láta af auðgun úrans. Asamt Banda-
ríkjamönnum styðja Bretar og
Frakkar tillöguna en Kínverjar og
Rússar eru henni andvígir og vilja
leita annarra leiða.
Utanríkisráðherrar þeirra ríkja
sem eiga sæti í öryggisráðinu ásamt
fulltrúa Þýskalands hófu umræður
um ályktunina í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York í
gærkvöldi.
Mahmoud Ahmadinijad, forseti frans, ávarpaði Basij-herdeildirnar í Teheran í gær.
Ahmadinijad boðar„nýjar lausnir"
Sigurvegararnir í Tívolísyrpu Glitnis á
sunnudag.
Hjörvar Steinn
sigraði í undan-
móti Tívolísyrpu
Hjörvar Steinn Grétarsson stóð
uppi sem sigurvegari, með fimm
og hálfan af sex mögulegum vinn-
ingum, á hörkuspennandi skákmóti
í höfuðstöðvum Glitnis á sunnudag.
Þrátt fyrir sólskinsblíðu í höfuðborg-
inni komu 26 keppendur til leiks
á síðasta undanmóti Tívolísyrpu
Glitnis.
I yngsta flokki nemenda úr fyrsta
til þriðja bekk, voru fulltrúar Rima-
skóla allsráðandi. í þriðja sæti varð
Dagur Ragnarsson, en í öðru sæti
varð Theodór Örn Inacio Ramos Ro-
cha. Sigurvegari yngsta flokksins
varð hins vegar Patrekur Þórsson.
í flokki barna í fjórða til sjötta
bekk var hart barist um brons-
verðlaunin. Þar var hlutskörpust
á stigum, með þrjá og hálfan vinn-
ing, Birta Össurardóttir, í öðru sæti
varð Einar Ólafsson, en verðskuld-
aður sigurvegari var Dagur Andri
Friðgeirsson.
í elsta flokkinum, krakka í sjö-
unda til tíunda bekk, var einnig af-
rekskona í þriðja sæti, en það var Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir, fyrrum
Tívolímeistari, með fimm vinninga.
Hún var með jafn marga vinninga
og Ingvar Ásbjörnsson sem hlaut
silfur eftir stigaútreikning. Sigur-
vegari mótsins varð Hjörvar Steinn
Grétarsson, með fimm sigrum og að-
eins einu jafntefli.
21 efstu úr undamótunum þremur
hafa þar með tryggt sér rétt til að
tefla á úrslitamótinu í Tívolísyrpu
Glitnis, sem fram fer hinn 28. þessa
mánaðar.
Búið að ákveða
hækkun?
Seðlabanki íslands hefur þegar
ákveðið að hækka stýrivexti sína
þann 18. maí næstkomandi, sam-
kvæmt frétt alþjóðlegu fjármála-
fréttaveitunnar Market News Inter-
national í gær. 1 fréttinni er vitnað
í ónafngreindan aðstoðarseðla-
bankastjóra um málið. Það má telja
óvenjulegt, þar sem bankinn tjáir
sig sjaldan eða aldrei um það hvort
stýrivextir verði hækkaðir eða lækk-
aðir fyrr en á vaxtaákvörðunardag.
Vordagar
ÁLFELGUR OG DEKK!
Samsettur gangur
(1-54rMOJi.r.)
15x10 Dick Cepek-álfelgur
og Chaparral 33" dekk
Dick Cepek-álfelgur
á tilboði frá 13.700 kr.
Samsettir dekkja- og felgugangar á flestar gerðir japanskra
jeppa og pallbíla með njJ^ESEHl á vordögunum!
DW3000Í
12V
Kerruspil fyrir vélsleða- og bátaeigendur
(3000 Ibs) 39.900 kr.
15% afslætti
Cordura-slitvarnarefni, Reissa
5000 mm vatnsvarnar- og
öndunarefni. Hentugur jakki
fyrir sleða- og mótorhjólamenn
8.980 kr.
Hanskar fyrir útivistar- og
mótorhjólafólk, margar gerðir.
Verð frá 1.990 kr.
Allar gerðir af álboxum fyrir
ferðalagið með 20% afslætti.
Kletthálsi 3 | HOReykjavík | Sími 540 4900 | arctictrucks.is
ARCTIC
TRUCKS